Samvinnan - 01.09.1950, Side 6
Jón Magnússon.
Vilhjálmur Árnason.
Þorsteinn Loftsson.
Þorleifur Þórðarson.
Sveinbj Sigurjónsson.
10 ára reynsla af bréfaskólanámi á íslandi
Bréfaskólar sérstaklega hentugir í strjcdbýli
AÞESSU liausti eru tíu ár liðin síð-
an Bréfaskóli SÍS tók til starfa.
Á árinu 1939 var stofnun Bréfaskól-
ans undirbúin. 1. des. það ár sam-
þykkti stjórn SÍS að verja fé í þessu
skyni en Ragnar Ólafsson, h.r.l. hafði
gert áætlanir um rekstur nokkurra
námsgreina væntanlegs bréfaskóla.
Skyldi kennsla hefjast næsta liaust,
og var Ragnar Ólafsson lögfræðingur
fyrsti skólastjóri skólans. Síðan var
skólastjóri Jón Magnússon fil. cand.,
og nú Vilhjálmur Árnason, lögfr.
í októbermánuði 1940 tók skólinn
til starfa og kenndi fjórar námsgrein-
ar: Skipulag og starfshætti samvinnu
félaga, kennari Ragnar Ólafsson, lög-
fræðingur; fundarstjórn og fundar-
reglur, kennari Ólafur Jóhannesson,
lögfr.; bókfærsla, kennari Þorleifur
Þórðarson, forstj., og enska, kennari
Jón Magnússon fil. cand. Á næsta ári
(1941) bættust tvær nýjar námsgrein-
ar við: Búreikningar, kennari Guð-
mundur Jónsson, skólastjóri, (núver-
andi kennari í búreikn. er Eyvindur
Jónsson, búfr.) og íslenzk réttritun,
kennari magister Sveinbjörn Sigur-
jónsson. Síðan hafa þessar námsgrein-
ar bætzt við ár frá ári: Reikningur
og bókfærsla II, kennari Þórleifur
Þórðarson, siglingafræði, kennari
Jónas Sigurðsson, kennari í Stýri-
mannaskólanum; hagnýt mótorfræði,
kennari Þorsteinn Loftsson, vélfræð-
ingur Fiskifél. íslands; algebra, kenn
ari Þóroddur Oddsson, menntaskóla-
kennari, og esperantó, kennari Magn-
ús Jónsson, bókbindari. Nú er í und-
irbúningi að hefja á þessu hausti
kennslu í nokkrum nýjum námsgrein-
um, sem munu auglýstar jafnskjótt
og kennsla getur hafizt í þeim. Er m.
a. stefnt að því að samræma kennslu
Bréfaskólans skólakerfi landsins þann-
ig, t. d., að skólinn veiti kennslu und-
ir landspróf. Standa vonir til að á
næsta vetri verði hægt að veita meiri
eða minni tilsögn í flestum lands-
prófsnámsgreinum, þar sem einkum
er þörf á slíkri tilsögn. Þá er og leit-
ast við að veita kennslu í ýmsum hag-
nýtum greinum í sambandi við fram-
leiðslustörf og athafnalíf í landinu.
Nemendafjöldi Bréfaskólans hefur
vaxið ár frá ári. Fyrsta heila árið
(1941), sem skólinn starfaði innrituð-
ust 140 nemendur en á síðasta ári
(1949) bættust við 544 nýir nemend-
ur. Samtals hafa innritast í Bréfaskól-
ann frá byrjun 3242 nemendur, mið-
að við 10. ágúst s. 1. Innritaðir nem-
endur frá upphafi í þeirri námsgrein,
sem flestir höfðu lagt stund á, eru nú
alls 1041. Nemendur eru hvaðanæfa af
landinu, bæði úr bæjam og sveitum.
Aðsókn sú, sem verið hefur og er
að Bréfaskólanum, sýnir að mikil þörf
er fyrir slíkan skóla. Hann gerir hvort
tveggja að ná til margra, sem ekki
eiga kost á að sækja aðra skóla og
hann auðveldar námsbrautina einn-
ig hjá þeim, sem aðra skóla vilja sækja.
Af umsögnum nemenda Bréfaskól-
ans virðist svo að hann njóti vinsælda
þeirra, og reynslan leiðir ótvírætt í
ljós, að þetta kennslu-form er gott.
Hins vegar skortir á, að skólinn kenni
allar þær námsgreinar sem æskilegt
væri og um er spurt, en úr því mun
bætt eftir því sem tök eru á. Það er
og bagalegt við bréfakennsluna ef
póstsamgöngur eru ekki góðar og vill
námið stundum tefjast nokkuð af
þeim orsökum. Hér verða hin af-
skekktari héruð að sjálfsögðu harðast
úti en þar eru margir nemendur skól-
ans, þótt flestir að tölunni til séu úr
Reykjavík og öðrum stærri bæjum
landsins. Bréfaskólinn leitast að sjálf-
sögðu við að flýta afgreiðslu bréfanna
til nemendanna og stytta þannig bið
þeirra eftir því sem unnt er.
Samvinna skólans við nemendur
hefur yfirleitt gengið mjög vel á und-
anförnum árum, enda eru margir
þeirra sérstaklega áhugasamir og sýna
skólanum vinarhug. Þeir eru úr öll-
um stéttum þjóðfélagsins víðsvegar
um landið.
Það er ánægjulegt fyrir Bréfaskól-
ann að geta veitt þeim, sem bera hita
og þunga dagsins við hin nauðsyn-
legu störf, tækifæri til þess að afla
sér þekkingar. Verði það vel af hendi
leyst þá hefur skólinn að gegna mikil-
vægu hlutverki í menningarmálum
landsins.
Reynsla Bréfaskólans á þeim tíu ár-
um, sem liðin eru frá stofnun skólans,
gefur góðar vonir um vaxandi starf-
semi og aukinn árangur í framfara- og
menningarátt.
Bréfaskólinn sendir nemendum sín-
um, eldri og yngri, beztu kveðjur með
þökk fyrir gott samstarf. V. Á.