Samvinnan - 01.09.1950, Síða 14
Sagt frá hinni fornu borg, Písa( í Arnódalnum
í veröld kirkjufeðra og krossfara
Ferðasaga frá ítalíu, eftir Guðna Þórðarson
Ljósmyndimar tók Guðni Þórðarson
r f.j
frjysCTÍ i ' „mmmm f / | WggKUŒ; 1 i ■
IP h ± ■
[Ji m 'tfi r -prjlu
■j HINU FAGRA Toscanahéraði á
Ítalíu, þar sem vínviðurinn stend-
ur á sillum hæðanna, en olífurnar og
kýpursviðurinn setur að öðru leyti
svip á gróðurinn, hafa gerzt stórfeng-
leg ævintýri, sem heimurinn stendur
frammi fyrir orðlaus af undrun.
Þar hafa orðið til þær meginstefn-
ur í fögrum listum, er smekkur okkar
flestra er bundinn við enn þann dag
í dag.
Flórenz er alla jafnan talin höfuð-
borg þess náttúrufagra héraðs, sem
kallað er Toscana. í þeirri borg gerð-
ust líka þeir atburðir í fögrum listum
á miðöldum, semToscana er frægt fyr-
ir. — En Písa, borgin, sem fræg er fyrir
skakka turninn, gæti líka verið fræg
fyrir margt fleira, og þar, nálægt
ströndum Miðjarðarhafsins, á bökkum
Arnoárinnar hefur merkileg og við-
burðarrík saga gerzt, sem líka hefur
lagt skerf til heimsmenningarinnar og
nægt hefði Písa til frægðar, þó skakka
turnsins hefði ekki notið við.
7 dalnum við Arnó
Einn fegursti dalurinn í hinu fjöll-
ótta og tignarlega Toscanahéraði, er
dalurinn, sem áin Arnó rennur um
og kenndur er við ána. Þegar farið
er frá Flórenz til Písa, liggur leiðin
niður dalinn meðfram ánni. Skiptast
þar á bændabýli og þorp, en hlíðar,
hálsar og fjöll setja breytilegan svip
á landslagið víða. I sveitunum eru
Toscanabúarnir ósviknir, eins og þeir
hafa verið í gegnum aldirnar og halda
þar mörgum sínum fornu siðum. Á
árbökkunum, þar sem Arnó beljar
fram á klettaflúðum, eða líður lygnum
straumi, standa menn yfir litlum
kindahópum. Þeir eru meira að segja
oft tveir með 20—40 kindur og hafa
langa stafi í hendi, eins og vitringar
Austurlanda á gömlum biblíumynd-
um.
Borgin Písa er beggja megin á bökk-
um Arnó, en fjórar brýr tengja borg-
Písa menningarborgin foma á bökk-
um Arnófljóts, var eitt sinn voldugt
herveldi og hafnarborg, en er nú
langt inni í landi og fjarri ys og þys
hins stóra heims, en hún geymir enn
fagrar minjar fomrar menningar.
t
Sknliki turninn i Písa.