Samvinnan - 01.09.1950, Page 18
Samvinnan á erlendum vettvangi árið 1949
ALÞJÓÐLEGA verkamálaskrifstof
an útbýr á ári hverju skýrslu um
ýmsa þætti atvinnulífsins í löndunum
og leggur hana fyrir þing alþjóðlega
verklýðssambandsins. í þessari skýrslu
er jafnan einn kafli, sem fjallar um
framkvæmdir samvinnumanna í hin-
um ýmsu löndum. Skýrslan fyrir árið
1949 er nýlega komin út, og þar segir
forstjóri skrifstofunnar, David A.
Mores, svo m. a.:
„Hið liðna ár einkenndist af veru-
legum framkvæmdum samvinnu-
manna innan iðnaðar og landbúnaðar,
í þeim tilgangi að efla framleiðsluget-
una, skipuleggja vörudreifinguna og
stuðla að almennri hagsæld. F.ftir
heimssyrjöldina hefur orðið ör þróun
með tveimur mismunandi þáttum
samvinnustarfsins, og báðir þessir
þættir hafa á liðnu ári eflst og vaxið.
Hér er annars vegar um að ræða neyt-
endasamvinnuna, en hins vegar fram-
leiðslusamvinnuna, j^ar með talin
samvinna handverksmanna og iðnað-
armanna um framleiðslu fyrir heima-
markað. Samvinna framieiðenda inn-
an landbúnaðarins hefur einnig eflst
verulega.
STÆRSTU skrefin fram á við í
neytendasamvinnunni hafa verið
tekin í löndum, sem urðu hart úti í
styrjöldinni og í þeim löndum, sem
skammt eru á veg komin í iðnaðarþró-
un og uppbyggingu. Á sviði smáiðn-
aðar hefur samvinnuhreyfingin í
mörgum löndum ráðist í stofnun
nýrra fyrirtækja, til dæmis í Burma,
Ceylon, Kína, Þýzkalandi, Hindústan,
Pakistan og Filippseyjum. Stefnt er að
því að létta félagsmönnum aðgang að
ýmiss konar vörum og hráefnum. I
öðrum löndum, eins og Algier, Aust-
urríki, Brasilíu, Tékkóslóvakíu og
Danmörku, hafa samvinnufélögin lagt
megináherzlu á að fullnýta framleiðslu
landbúnaðarins og auka möguleikana
til landbúnaðarframleiðslu með auk-
inni véltækni, aukinni notkun tilbú-
ins áburðar og með kynbótum og sér-
ræktun. Mjög mikilvæg er einnig sú
mikla aukning á viðskiptaveltu sam-
vinnufélaga, sem átt hefur sér stað í
löndum eins og Kína, Tékkóslóvakíu,
Frakklandi, Grikklandi, Indlandi,
Hollandi og Túnis. Sama máli gegnir
um þá aukningu samvinnulánsfjár-
möguleika, sem gerðir hafa verið í
Belgísku Kongó, Kína, Equador,
Frönsku Vestur-Afríku, Mexíkó og
Júgóslafíu. í mörgum löndum eru það
landbúnaðarstörfin á vegum sam-
vinnuhreyfingarinnar, sem taka við
innflytjenda-vinnuaflinu, þar sem að-
sókn innflytjenda er mest, eins og t. d.
í Brasilíu, Kólombíu og ísrael.
SAMVINNUFÉLÖGIN hafa tekið
til úrlausnar ýmis verkefni er
miða að bættri aðbúð og aukinni
menningu félagsmannanna. Þannig
hafa samvinnufélögin sums staðar t. d.
tekið að sér að skipuleggja frístunda
vinnu manna til þess að stuðla að
lausn húsnæðisvandræða. Sautjánda
þing Alþjóðasbands samvinnumanna,
sem haldið var í Prag árið 1948, benti
sérstaklega á þýðingu byggingasam-
vinnunnar, sem útbreidd er í öllum
menningarlöndum og er í stöðugum
vexti. Tilgangur byggingasamvinn-
unnar er að útvega fjölskyldum með
litlar tekjur viðunandi húsnæði með
viðráðanlegum kjörum. Alþjóðaþing-
ið mælti með því að þessi mál yrðu
rækilega athuguð innan samvinnusam-
takanna í hverju landi og taldi, að
nauðsyn væri að fá viðurkenndar
nokkrar grundvallarreglur og starfsað-
ferðir sem framlag samvinnuhreyfing-
airnnar á sviði húsnæðismálanna.
Verulegur árangur að þessu leyti náð-
ist á árinu 1949 í Kólombíu, Egypta-
landi, Grikklandi, Indlandi og Hol-
landi.
SAMVINNUHREYFINGIN hefur
reynt að auka mátt sinn og starfs-
hæfni með því að sameina krafta sína
innan allsherjarsambanda. Allmörg ný
samvinnusambönd voru stofnuð í
þessum tilgangi, ennfremur fram-
kvæmdaráð og stofnanir, t. d. í Belgíu,
Ítalíu, Brasilíu og Kólombíu. Þá er
ljóst, að samvinnuhreyfingin hefur
víða hlotið aukna viðurkenningu
stjórnarvaldanna. Þau gera sér betur
Ijóst en áður hverja þýðingu sam-
vinnuhreyfingin hefur í því efni að
auka framleiðslugetuna og jafnframt
að tryggja réttláta dreifingu varanna.
Sérstaklega áberandi er, að ríkis-
stjórnir í þeim löndum, sem skammt
eru á veg komin í efnalegri uppbygg-
ingu, sýna vaxandi tilhneigingu til
þess að sjá, að samvinnuskipulagið
hefur miklu hlutverki að gegna í að
breyta frumstæðum framleiðslu- og
verzlunarháttum til betri vegar. Þessi
vaxandi áhugi fyrir samvinnustarfinu
hefur komið í ljós með ýmsum hætti,
svo sem með lagasetningum, sem við-
urkenna starf samvinnufélaganna og
marka þeim frjálslegra rúm en áður.
Er hér um að ræða jafnt neytendasam-
vinnu og framleiðendasamvinnu. —
Nefna má t. d. að neytendasamvinnan
í Japan hefur hlotið sérlega viður-
kenningu í lögum og einkum þó sam-
vinna fiskimanna. í öðrum löndum, t.
d. Brasilíu, Kína, Kólombíu og Jama-
ica, hefur verið komið á fót opinber-
um stofnunum, sem hafa það hlutverk
að aðstoða og hvetja samvinnustarfið
og koma því til leiðar að það sé eflt
og jafnframt bætt hið innra. . . .“
30 ára starfsafmæli
Grímur Thomsen, umsjónarmaður,
hafði verið 30 ár í þjónustu Samb. ísl.
samvinnufélaga 1. september siðastl.
18