Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1950, Síða 28

Samvinnan - 01.09.1950, Síða 28
iiiiiii ii imiim iii iiiiiimiiiii iii ii iiMiiiMMiiimiiiiiiiiiiiiiiiiin 111 n 111111111 • ISHAEL EINEYGI Smásaga eftir ALEXANDRE ARNOUX iiiiiiiiiiiimi iii in ii i ii 111111111 ■ iii iii n iii i in ■11111111111111111111111111111111111111 Ismael fæddist í skítugasta úthverfi Bagdað- borgar. Það var á döguin hinna miklu kalífa, fyrir mörgum öldum síðan. Friður sé með sál hansl Saga hans er þrungin uppbyggilegum læidóm. Já, bræður mínir, jafnvel fyrir hina kristnu hunda. Ismael hafði hlotið auknefnið Eineygi, þótt, satt bezt að segja, engin örkuml væru á kropp hans að kenna. Faðir hans og frænd- garður allur, sem allt voru atvinnubetlarar, báru viðurnefni eins og Eineygur, Bægifótur og Kýlafýla, nöfn, er tengd voru líkamslýt- um, sem þeir í fyrstu höfðu gert sér upp, en þurftu nú varla lengur að leika, því að órofa vani er faðir hinnar fullkonmu blekkingar. Einn foreldra hans, kallaður Feigur í Ejör- brotunum, lézt á aldarafmæli sínu, jjegar bandóður tarfur reif hann á hol og tætti úr honum iðrin. í stytztu máli sagt: Ismaél Eineygi var heilskyggn á báðum augum og fékk að föðurleifð örugga betlaraiðju, sem stóð á gömlum merg og naut ágætra við- skiptavina. Það var metnaðurinn, sem steypti honum í glötun. Þegar barnshönd hans hafði teygt fram betlaraskálina bernsku hans á enda, þá fann hann skyndilega hjá sér köllun til yfirgrips- meira starfssviðs. Hann uppgötgvaði, að sál- ina hungraði i athafnir. Hann fann sig lost- inn svíðandi smán þess, að hafa ekki ofan af tyrir sér með vinnu eigin handa, ein- hverjum djarfmannlegum, harðsóttum starfa, iem kryddaður væri göfugri áhættu. Hann ákvað að gerast þjófur. Ismaél hóf ætlunarverk sitt með því að hnupla frá smæstu lontunum í strætanna straumi, auvirðismönnum og kaupmöngur- um. Seinna stóð hann á fjölförnum vegamót- um og goggaði til sín pyngjur vegfarenda, svo brauzt hann inn í hús, sem voru í góðri gæzlu, og loks gerðist hann foringi ræningja- riðils, er veitti atlögu úlfaldajestum á vegum úti. Þá var það, að hann öðlaðist þá hug- sjón, að ná undir sig sjálfum fjársjóðum kalífans. Því að ágirnd hans jókst með vel- gengninni, og einhvers konar kitlandi sóma- tilfinning forbauð honum að takast á hend- ur nokkuð, sem neðar væri sæmd og lofstír, er hann hafði unnið sér í héraðinu. Ismaél var tuttugu og fimm ára gamall, þegar þessi háleita ætlun festi rætur í heila hans. Mánuðum saman þreifaði hann fyrir sér um allt varðandi Jretta. Hann sat löngum í kaffistofunum og blandaði geði við varð- liðsmennina, er gættu fjársjóðanna. Hvíldar- laust var hann snuðrandi hér og þar, njósn- andi um varðskiptin og setti á sig allt, er snerti inngönguna og útgönguna. Kisturnar, hlaðnar gulli, gimsteinum og perlum, hvíldu 28 í djúpum neðanjarðarhvelfingar nokkurrar, scm læst var þrem bronshurðum, og lá undir turi.i, er girtur var sjö virkisgörðum. Ismaél viðurkenndi, að það væri óðs manns æði, að láta sér detta í hug innbrot á slíkum stað. En J)ar eð Guð hafði gætt hann þolinmæði og harðfylgni, í einu orði sagt, öllum dyggðum starfa hans, lét hann alls ekki af ákvörðun sirmi. Okkar er nú að aðgæta, hvernig hann kom ár sinni fyrir borð. Það fyrsta, sem hann gerði, var að hverfa frá umhverfi sínu árlangt, svo að andlit hans og yfirbragð mætti gleymast. Allan Jrennan tíma dró hann fram lífið á smáhnupli. Að árinu liðnu tók hann sér nafnið Abdúl Skyggni og birtist aftur á sjónarsviðinu. Fyr- ir atbeina örlítillar þóknunar, eins og heið- arlegt og sjálfsagt var, réðu liðssmalarnir hann sem liðsmann í varðlið fjársjóðanna. Hrottalegur agi herþjónustunnar skelfdi hann ekki hót. Smám saman vann hann sér trúnað, stig af stigi. í réttri röð var hann kvaddur frá fyrsta virkisgarði til hins sjö- unda, hlaut síðan stöðu í turninum miðsetta, sem líktist öxli í kyrrstöðu sjö boga hjóli. Reglufesti hans og grandvarleikur komu hon- um í hylli hjá gæzlustjóra kistanna, er veitti honum embætti gæzlustjóra fyrstu hurðar, síðan annarrar. Þá stóð honum enginn ofar í trúnaði vezírsins, að Múhameð einum und- anskildum, en hann var áttræður öldungur, sem trúað hafði verið fyrir fimm lyklum Jjriðju og síðustu hurðar. Ismaél hafði fyllt fjóra tugi aldursára sinna, er hann hafði komizt svo langt í þessari seinvirku klófest- ing embættanna. Enn Jrá beið hann ára- tug eftir andlát Múhameðs gamla. Þrátt fyrir græðgi sína rasaði hann aldrei urn ráð fram. Bara að hann hljóti umbun þeirrar hógværðar á degi dómsins, er Drottinn vegur alhafnir hans á metaskálum þeim, er aldrei síga undan skiknum höfga. Loks lognaðist Múhameð út af, og Abdúl sonur Ismaéls, tók við embætti hans í lok aldarfjórðungs trúlyndrar þjónustu og þrályndrar Jtolin- mæði. Þegar gæzlustjóri kistanua, að lokinni helgiathöfn eftir fornri venju, afhenti hon- um lyklana fimm fór um Ismaél sá fagnaðar- skjálfti, að honum sýndist sólin skoppa á turnbroddinum eins og gljáfægð sortulyngs- kúla skoppar á bikaraspilsoddi. Hann lokaði augunum og mxlti fram þennan fornhelga eiðsstaf, sem stílaður var á einhverri æva- fornri mállýzku og skuldbatt hinn eiðssvarna enn ægilegar einmitt vegna jress, að merking orðanna var löngu glötuð, og enginn vissi nú framar undir hvað var verið að játast. Þetta sama kvöld lauk hann upp dyrunum. Þarna stóð hann sokkinn i hugsanir sínar og virti fyrir sér fjársjóðina, sem hann hafði fórnað ævi sinni fram á liaust fullorðins- áranna. Beiskjusár þunglyndistrcgi reyrðist um hjarta lians. Þó jrurfti hann nú ekki ann- að en að fylla pokana af gulli þessu, rúbín- um þessum og perlum, sem í Ijóma sínum endurvörpuðu skini olíulampans í þúsund- uœ ljósbrota. Hann minntist Jieirra tíma, J)egar hann, einn alræmdasti pörupiltur Bagdaðstræta, fór ruplandi hendi um búðar- gluggana, minntist launsátranna bak við rok- sandshólana, undir heiðum stjörnum. Ofur- jtungi þjónustuáranna lagðist á hann eins og kæfandi farg. Hann reyndi að hverfa aft- ur í liðna ævi og leitaðist við að endurfinna ástríðufuna og einbeitni æsku sinnar. En árangurslaust. Hann lét svalandi straum perlanna leika um greiparnar, og hugrenn- ingar hans voru beiskju blandnar: „Ur ágætum dúki hef ég saumað fimmtíu skjóður, sem ég gæti leynt undir skikkju minni. Kenniorðið tryggir mér óhindraða út- göngu. Hvern skyldi gruna mig? í einu vet- fangi gæti ég orðið auðugur maður. Eg gæti öðlast sigurgleði þess, að hafa með bragðvísi minni heykt niður kalífavaldinu. Og samt sem áður hika ég. .. . ég, mannskræfan. .. . Undir oki þessara inniverka, þessa aga og þessarar ráðvendni hef ég gamlast. Nú er svo kornið, að gríman er gróin i andlitsskráp- inn. Abdúl skyggni hefur gegnsýrt Ismaél Eineyga og svipt hann sjálfsvildinni. Við endimörk erfiðleika minna hef ég ekki sinnu til þess að sópa til mín gróðanum. Viljans hvassa egg er slævð. Allah setti mig í sess Jjjóísins í skipan sköpunarverksins, og nú megið þið líta mig— manninn ráðvanda. Vegna þess að ég hef útnýtt líf mitt, er ég ekki verðugur þess að njóta ávaxtanna. Eftir langa föstu eru dregnar úr mér tennurnar andspænis hlöðnum borðum. Er Jietla rétt- latið? Eg get ekki skilið það. Allah hefur látið mig, einfaldan og fávísan, fæðast í allt of margflókinni veröld.“ Síðan lokaði Ismaél þessari fimm skráa hurð. í dögun morguninn eftir, er hann hafði keypt snæri af kaðlara nokkrum í einu úthverfanna, því að nú gat hann ekki framar hnuplað svo miklu sem spottaögn, gekk hann út úr borginni og hengdi sig í háu tré. Svona er sagan, eins og hún var mér sögð og ég segi hana nú. Eigi það við, að draga af henni siðspekilegar ályktanir, leyfi ég mér að láta mér upplýstari mönnum eftir þá önn. Hvað mér við kemur, þá hef ég ekki meira að segja. A. J. þýddi. Hverjir hafa rétt fyrir sér? Þegar við byggjum hús, byrjum við á því að grafa fyrir grunninum og steypa undirstöðurnar. í Japan fara menn öðru vísi að. Fyrst eru settar upp stoðir þær, sem bera uppi þakið, en síðan eru veggirnir reistir. Japanir nota verkfærin öðru vísi en við. Þeir hefla með því að draga hefilinn að sér, sögina draga þeir upp á við, og skrufur og skrúf- ur og borara snúast til vinstri. Þeg- ar Japani kemur inn í hús, dregur hann skó af fótum sér, en hattinn hefur hann á höfðinu. Hann sezt áður en hann heilsar, les bók þann- ig, að hann byrjar aftan á henni og les frá hægri til vinstri. Okkur virð- ist Japanir fara öfugt að öllu. En Japanir segja hið sama um okkur.

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.