Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1953, Page 30

Samvinnan - 01.01.1953, Page 30
yfir boiðið og kyssti hana. Þá komu þau auga á mig og hlóu aftur. Ég sá þau ekki aftur, fyrr en síðdegis, þegar næturkulið var að byrja að læðast niður dalinn á milli trjánna. Þau komu út í garðinn, drukku glas af bjór, en hurfu svo aft- ur til herbergis síns. Þau sátu skammt frá mér og stúlkan sneri að mér, þannig að ég gat litið til hennar öðru hverju án þess að mikið bæri á. Hún var gullfalleg, en það var eitthvað meira en fegurðin við hana, sem laðaði að sér. Maðurinn kveikti í sígarettu fyrir hana, og ég fann þeg- ar til afbrýðissemi, sem ég þó vissi að var fráleit tilfinning *Dg á stóð. Það rökkvaði óðum, og ég hefði ekki getað ana, ef ekki hefði verið ljósglæta innan úr matsaln- um, þar sem gestir gistihússins voru að safnast til kvöld- verðar. Það voru snotrar stúlkur þeirra á meðal, en þær voru flestar klunnalegar. Þessi stúlka var gerólík þeim. Þau stóðu skyndilega á fætur og gengu inn í húsið, og þá sá ég, að hún var hávaxin og hafði undurfagrar lneyfingar. Ég geri ráð fyrir, að ég hafi verið á réttu stigi til að verða ástfanginn og hefði fallið fyrir hvaða fagurri konu, sem var. En samt var þetta eitthvað annað og meira. Ég átti eftir að sannfærast um það alla ævina, að þetta var engin augnabliksást. Og nú á gamals aldri trúi ég því statt og stöðugt, að maður geti orðið ástfanginn af einni konu, sem verður í hans augum öllurn öðrum yndislegri til æviloka. Um morguninn, er ég vaknaði, flýtti ég mér að baða mig og klæða, en gægðist þess á milli út á svalirnar til að sjá, hvort hún væri þangað komin. En ég sá hana hvergi. Ég borðaði morgunverð minn, og enn sást hún hvergi. Þá spurði ég herbergisþernuna um þau, og hún kvað þau þegar vera komin út í skóg. Eftir þetta lét ég þernuna vekja mig á morgnana til þess að ég missti ekki af þeirn. Er ég spurði um nafn þeirra, svaraði þernan: „Þetta eru doktor Múller og frú.“ Ég var ungur, en þó nógu ver- aldarvanur til þess að skilja, að slíkt fólk er ekki í raun og veru „doktor Múller og frú“. Ég gerði furðulegustu hluti, svo sem að reyna að kom- ast að, livert í skóginn þau hefðu haldið, og reyndi svo að elta þau. í fjóra daga flæktist ég um skógarstígana, en fimmta daginn fann ég þau á lækjarbakka langt neðan við gistihússið. Þau höfðu lokið við að borða skrínukostinn, og dökkhærði maðurinn svaf með höfuðið í kjöltu henn- ar. Þá varð mér ljóst, að ég var þarna óboðinn gestur, sem hegðaði sér eins og kjáni. Ekkert mundi breyta aðstöðu minni og ég mundi varla komast nær henni en ég var á þessu augnabliki. Ég ætlaði að snúa við og hlaupa á brott, en á sama augna- bliki varð hún þess vör, að einhver var að horfa á hana og leit til mín. Mér var því nauðugur einn kostur að halda áfram göngu minni framhjá þeim, rétt eins og ég hefði rekizt þarna á þau af tilviljun, en ekki fundið þau eftir fjögurra daga leit. Hún brosti til mín og brá fingur að vörum sér. Bros hennar var óþvingað og heillandi og ég fann, að ég roðnaði, en einhvern veginn komst ég framhjá henni án þess að verða mér til minnkunar. Ég kvaldist ekki aðeins á daginn. Um nætur lá ég and- vaka og hugsaði til hennar og elskhuga hennar, sem höfðu herbergi handan við garðinn. Ég sá fyrir mér perluhvítar tennur hennar, dökku augun og gullnu lokkana. Ég vissi, að ég varð að fara, og á hverju kvöldi ákvað ég að leggja af stað heimleiðis næsta morgun. Þegar til átti að taka gat ég ekki farið. Ég reyndi að fá gilda veitingamanninn til að tala um hjónaleysin við mig, en þar sem hann talaði álíka lítið í ensku og ég í þýzku, varð árangurinn lítill. Þegar ég spurði, hvaðan þau væru, svaraði hann: Vínarborg, og síð- an leit hann á mig með glettnina ljómandi í augunum, rétt eins og hann vissi mætavel hvað amaði að mér. Næstu daga sá ég þau nokkrum sinnum, en aðeins einu sinni yrti hún á mig. Við mættumst þá á götu, og hún sagði með hænisbrosi „Grúss’ Gott“ á bændavísu, rétt eins og hún vissi líka, hvernig mér var innanbrjósts. Þegar ég var kominn fxamhjá þeim, leit ég við, því að jafnvel göngu- lag hennar yljaði mér. Þá leit liún einnig við og brosti til mín. Hjartað barðist í brjósti mér og ég hugsaði: Að búa með slíkri konu! Nei, svo dásamleg getur ástin ekki verið! Svo var það eitt kvöld, er ég kom úr skógargöngu, að þau voru farin. Þegar ég spurði veitingamanninn, hvert þau hefðu farið, svaraði hann: „Til Múnchen, en þau hafa ekki viðdvöl þar, heldur halda áfram til Austurrík- is.“ Eitt augnablik hvarflaði það að mér að elta þau. Ef til vill fyndi ég hana eina. En þó svo færi, hvað gat ég sagt við hana, sem ekki var hlægilegt? Gæti amerískur unglingur verið nokkurs virði slíkri konu? Ég hafði nú misst af sjóferðinni heim og var þegar of seinn í skólann. Alla nóttina lá ég vakandi og um morg- uninn fór ég. Þegar ég hafði greitt reikning minn, sagði gestgjafinn við mig: „Og nú skal ég segja yður allt af létta um herra og frú Múller. Þér eruð Ameríkumaður, sem er að fara heim, og það skiptir engu máli, ef þér lofið að segja þetta engum.“ Ég lofaði því, og hann hélt áfram: „Maðurinn er prins af Hohenheim og ríkisarfi. Konuna þekki ég ekki og það má vel vera, að nafn hennar sé Múller. Ég vann í eina tíð í eldhúsi kastalans, og þess vegna er það, að prinsinn kem- ur hingað.“ Ég býst við, að hann hafi sagt mér þetta leyndarmál nreðfram vegna þess, að hann kenndi í brjósti um mig, og meðfram af því, að hann gerði sér von um, að hróður litla gistihússins hans í Svartaskógi mundi berast út með þess- ari sögu. Hver vissi nema ég mundi segja auðugum Ame- ríkumönnum, að prinsar gistu í Gasthof Eckermann í Bad Múnster. Ég gekk til næsta bæjar og fór með járnbrautinni til Múnchen, en gat hvergi fundið þau. Það var því ekki annað að gera en taka saman pjönkur sínar, fara til Ham- borgar og sigla heim til hins drungalega hversdagsleika Ameríku. Ég var hugsjúkur í þeirri trú, að ég mundi aldrei framar sjá stúlkuna, sem hafði litið til mín og brosað, er hún bar fingur að vörum sér í hinum heillandi Svartaskógi. 26

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.