Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Page 10

Samvinnan - 01.08.1960, Page 10
Vilhjálmur Einarsson, íþróttamaður: Ólympíuleikvang- urinn í Helsingfors 1952. Þessi leikvang- ur þykir frábær að öllum frágangi og turn- inn er enn í dag eitt að- alaðdráttarafl fyrir ferða- menn. í turninum er mjög merkilegt iþróttaminjasafn. Vilhjálmur Einarsson, íþrótta- maður, sem gat sér mikillar frægðar á Olympíuleikunum í Ástralíu, keppir á Olympíuleik- unum í Róm í sumar. Vilhjálm- ur ritar hér að þessu sinni ferða- minningar frá árinu 1954, er hann fór í sína fyrstu keppnis- för til útlanda. Ferðaminningar frá 1954. Gott er fyrir æskufólk, sem er óráð- ið í því, inn á hvaða brautir farsælast muni verá að beina lífi sínu, að hug- leiða orsakir og afleiðingar af gerðum sínum. Ef þessa væri vel gætt, væri liægt að forða mörgum skipbrotrtm. íþróttunum fylgja ýmsir kostir, sem leyna á sér, og oft er ekki komið auga á, þegar vegnir eru og metnir kostir og gallar. Hér skal drepið á fátt eitt, að- allega sýndir sumir þeir staðir, sem íþróttirnar hafa gefið mér kost á að sjá- Fyrsta utanferðin var farin með glímufélaginu Ármann til Finnlands. Keppt var á ýmsum stöðum og mót- tökur voru hinar frábærustu. Sá, sem gistir Finnland, finnur þar hjartaþel, sem kemur honum til að finnast að hann sé heima hjá sér. Víða lifði fólkið við mjög frumstæð skilyrði, án raf- rnagns og rennandi vatns, en slíkt kem- ur ekki að sök, allt er hreint og fágað. Helsingfors er falleg borg í örum vexti. Þar ægir sarnan gömlu og nýju, en ekki gleymist að rækta rúmgóða skrúðgarða víða um borgina, og á heit- um dögum má sjá unga sem aldna hópast undir limi trjánna á bekki, eða á grasið. Náttúrudýrkendurnir liggja Finnlandsfararnir 1954. Fremri röS f. v.: Gísli Guðmundsson, hástökkvari, Þórir Þorsteinsson, hlaupari, Hilmar Þorbjörnsson, hlaupari og Stefán Kristjánsson, þjálfari. Aftari röð f. v.: Jóhann Jóhannesson, fararstjóri, Vilhjálmur Einarsson, þrístökkvari, Sigurður Friðfinnsson, hástökkvari og Hörður Haraldsson, hlaupari. Hinir þrír síðasttöldu eru allir starfsmenn SÍS. 10 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.