Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Page 21

Samvinnan - 01.08.1960, Page 21
Cá h Capficorn STEINGEITIN 21. des til 19. jan. 011 málefni, sem snerta hjónabönd og önnur vináttubönd eru undir hlið- hollum áhrifum þennan mánuð. Hugsanlegt er, að einhver verzl- unarviðskipti hafi ástarævnitýri í för með sér, einkum fyrir þá, sem ungir eru. Ef starf yðar er viðvíkjandi bókmenntum eða vísindum, verður mánuðurinn yður efalaust mjög hagstæður á flestum sviðum. Gætið þess að of- reyna yður ekki, og verið ósmeykur við að leita hjálpar; hún mun fúslega verða veitt. Hið hag- sýna eðli Steingeitarinnar er með yður. A quarius VATN SBERINN 20. jan. til 18. febr. Hamingjan, sem hefur að ýmsu leyti verið yður mótsnúinn sfðast- Iiðinn mánuð, snýst nú í lið með yður á ný. Þó eru enn blikur ;)■ lofti; sérstaklega er hætt við heim-^ iliserjum. En kærið yður kollóttan, því slíkir á- rekstrar hreinsa loftið og búa í haginn fyrir betri tíma. Þér getið búist við fjárhagslegum á- vinningi, þeim mun meiri sem þér erfiðið meira. Gerið ekki ráð fyrir óvæntum gróða. Hætt er við, að ástamál yðar verði í hálfgerð- um ólestri framan af, en það lagast vonandi er Iíður á mánuðinn. FISKARNIR 19. febr. til 20. marz. Að öllum líkindum verður mánuður- inn yður mjög óhagstæður fjárhags- lega séð. Ef til vill fáið þér nýja og betri atvinnu. Heimilislíf yðar verður einnig friðsamlegt. Flestir þeir, sem umgangast yður, virðast hafa á yður velþóknun, og kemur það yður á margan hátt að góðum notum. Sterkar líkur benda til, að þér fáið bréf eða skjal af einhverju tagi, sem opnar yður ný svið eða leiðir af sér afdrifaríkt stefnumót. Eina hætt- an, sem yfir yður vofir, er að þér freistist til að gefa einkamálum yðar fullmikinn gaum, en for- smáið önnur atriði. Ef þér gerið þetta, er voðinn vís. Forðist það því fyrir alla muni. HRÚTURINN 21. marz til 20. apríl. Engin ástæða er til að efast um að næstu fjórar vikur verði yður að flestu leyti í vil, að því fráskildu, að heimilisfriðurinn verður líklega fyrir einhverjum truflunum, ef til r Pisces vill sökum húsnæðisvandræða. Reynið að herða upp hugann til að komast yfir þetta, og ein- beitið yður að störfum, sem líkleg eru til að bera góðan ávöxt í framtíðinni. Ef þér eruð metnaðargjarn og þar að auki hæfilega sjálfsgagnrýninn, er naumast hætta á öðru en gæfan brosi við yður. Ef til vill gefst yður tækifæri til að öðlast mikinn frama á skömmum tíma, eða þér gerist þátttakandi f ör- uggu gróðafyrirtæki. NAUTIÐ 21. apríl til 20. mai. Heimilislíf yðar er undir hagstæð- um áhrifum þennan mánuðinn, eink- um framan af. Ef þér eruð hús- næðislaus, eignist þér sennilega íbúð. Kannske náið þér eignar- haldi á einhverjum hlut, sem þér hafið lengi þráð að prýða með heimili yðar. Vel getur kom- ið til greina, að óvæntur gestur hafi mikil og heillavænleg áhrif á framtíð yðar. Mánuðurinn er sérstaklega hagstæður ungu fólki. Sé það að byrja að vinna fyrir sér, er ekki annað sjáanlegt, en heppnin verði því hliðholl fyrst um sinn. Ef þér hafið í hyggju að gerast leikari, söngvari, hljómlistarmaður eða eitthvað því um líkt, mun yður ganga svo vel að undrun sætir. w T aurus TVÍBURARNIR 21. maí til 20. júní. 'Eíklegt er að þér verðið fyrir óþægindum af rógi og illmælgi ein- hverntíma í þessum mánuði, en tak- . . ið það ekki alvarlega. Fregnir, sem Gemmt v , . ,,, . your berast al sliku, geta vel ver- ið orðum auknar, og ef til vill sagðar í ekki sem beztum tilgangi. Töluverðar líkur eru til þess að þér lendið ferðalögum, og stofnið ef til vill við það tæki- færi til nýrra kunningjasambanda, sem verða til að gefa lífi yðar léttari og ánægjulegri blæ en áður. Séuð þér kvæntur (gift), er allsenni- legt að maki yðar öðlist fjárhagslegan ávinning, ef til vill í gegnum happdrætti eða verðlauna- veitingar. Þegar líður að lokum mánaðarins, er hætt við að fjölskyldudeilur færist í aukana, og geta þær jafnvel leitt til hjónaskilnaðar og annarra álíka vandræða, nema fyllstu stillingar og varúð- ar sé gætt. KRABBINN 21. júní til 20. júlí. Hamingja yðar þennan mánuð er að mestu komin undir skapgerð yðar. Séuð þér þannig gerður, að þér viljið hafa yðar fram hvað sem það kostar, munuð þér fljótlega komast að raun um, að þér eruð að lemja höfðinu við óbrjótandi steinvegg. Ástundið þolinmæði, og fljótlega mun sýna sig, að allt hefur sína eðli- legu framrás. I fjármálum hafið þér heppnina með yður all- an mánuðinn. Reynið að forðast deilur, þvf ef þér lendið í þeim, tapið þér sennilega og getið þá orðið fyrir einhverjum hnekki, t. d. fjárhags- legum. Leo LJÓNIÐ 21. júlí til 21. ágúst. . Nú gengur yður allt í haginn. c~mHverskyns breytingar á högum yð- j — ar verða til batnaðar. Vinsældir yð- ar virðast fara vaxandi. Menn sýna vaxandi tilhneigingu ti! að verða yð- ur að liði, og kemur það yður að góðu haldi. Gætið þess að lítilsvirða ekki ráðleggingar kunningja yð- ar. Undir þeim getur mikið verið komið. Eitt er það einkum, .sem vissara er að varast. Reynið að forðast að undirrita alla samninga ti! langs tfma, sérstaklega ef þeir eru varðandi hús- eignir. MÆRIN 22. ágúst til 22. sept. Næstu vikur er mikið undir því kom- ið, að þér látið ekki minniháttar erfiðleika valda yður áhyggjum. Efalaust reyna vinir yðar og kunn- ingjar að fá liðveizlu yðar í sínum vandræðamálum. Stingið þá af og látið þá bera sínar byrðar sjálfa. Ef þér gætið þess að líta einkum á hinar bjart- ari hliðar lífsins, verður gæfan yður naumast mótsnúin. Vaxandi hagnaður í verzlunarviðskipt- um er meira en líklegur. VOGIN 23. sept. til 22. okt. Verið varkár í peningasökum næstu vikurnar, og verið sérstaklega vel á verði gagnvart tilraunum til að fá yður til þátttöku í fjárglæfrafyrir- tækjum. Ef þér gætið þess, gengur allt vel, einnig í sambandi við fjármál. Heima fyrir geta ýmsir erfiðleikar orðið á vegi yðar, og stafa þeir sennilega frá eldra fólki. Sýnið því samúð og skilning, en haldið yðar striki engu að síður. Sennilega verða vinir yðar vður til mikillar hjálpar. Með aðstoð þeirra munuð þér öðlast margskonar vinning, bæði í atvinnulegu. fjárliags- legu og félagslegu tilliti. SPORÐDREKINN 23. okt til 22. nóv. Ef þér lendið í einhverjum erfiðleik- um eða vandræðum þennan mánuð, getið þér engum um kennt nema sjálfum yður. I fjármálum og við- ikiptum verður hamingjan yður hlið- Framh. d bls. 26. Scorpió SAMVINNAN 21

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.