Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 21
Cá
h
Capficorn
STEINGEITIN
21. des til 19. jan.
011 málefni, sem snerta hjónabönd
og önnur vináttubönd eru undir hlið-
hollum áhrifum þennan mánuð.
Hugsanlegt er, að einhver verzl-
unarviðskipti hafi ástarævnitýri í
för með sér, einkum fyrir þá, sem ungir eru.
Ef starf yðar er viðvíkjandi bókmenntum eða
vísindum, verður mánuðurinn yður efalaust mjög
hagstæður á flestum sviðum. Gætið þess að of-
reyna yður ekki, og verið ósmeykur við að leita
hjálpar; hún mun fúslega verða veitt. Hið hag-
sýna eðli Steingeitarinnar er með yður.
A quarius
VATN SBERINN
20. jan. til 18. febr.
Hamingjan, sem hefur að ýmsu
leyti verið yður mótsnúinn sfðast-
Iiðinn mánuð, snýst nú í lið með
yður á ný. Þó eru enn blikur ;)■
lofti; sérstaklega er hætt við heim-^
iliserjum. En kærið yður kollóttan, því slíkir á-
rekstrar hreinsa loftið og búa í haginn fyrir
betri tíma. Þér getið búist við fjárhagslegum á-
vinningi, þeim mun meiri sem þér erfiðið meira.
Gerið ekki ráð fyrir óvæntum gróða.
Hætt er við, að ástamál yðar verði í hálfgerð-
um ólestri framan af, en það lagast vonandi er
Iíður á mánuðinn.
FISKARNIR
19. febr. til 20. marz.
Að öllum líkindum verður mánuður-
inn yður mjög óhagstæður fjárhags-
lega séð. Ef til vill fáið þér nýja
og betri atvinnu. Heimilislíf yðar
verður einnig friðsamlegt. Flestir
þeir, sem umgangast yður, virðast hafa á yður
velþóknun, og kemur það yður á margan hátt
að góðum notum.
Sterkar líkur benda til, að þér fáið bréf eða
skjal af einhverju tagi, sem opnar yður ný svið
eða leiðir af sér afdrifaríkt stefnumót. Eina hætt-
an, sem yfir yður vofir, er að þér freistist til að
gefa einkamálum yðar fullmikinn gaum, en for-
smáið önnur atriði. Ef þér gerið þetta, er voðinn
vís. Forðist það því fyrir alla muni.
HRÚTURINN
21. marz til 20. apríl.
Engin ástæða er til að efast um að
næstu fjórar vikur verði yður að
flestu leyti í vil, að því fráskildu,
að heimilisfriðurinn verður líklega
fyrir einhverjum truflunum, ef til
r
Pisces
vill sökum húsnæðisvandræða. Reynið að herða
upp hugann til að komast yfir þetta, og ein-
beitið yður að störfum, sem líkleg eru til að bera
góðan ávöxt í framtíðinni.
Ef þér eruð metnaðargjarn og þar að auki
hæfilega sjálfsgagnrýninn, er naumast hætta á
öðru en gæfan brosi við yður. Ef til vill gefst
yður tækifæri til að öðlast mikinn frama á
skömmum tíma, eða þér gerist þátttakandi f ör-
uggu gróðafyrirtæki.
NAUTIÐ
21. apríl til 20. mai.
Heimilislíf yðar er undir hagstæð-
um áhrifum þennan mánuðinn, eink-
um framan af. Ef þér eruð hús-
næðislaus, eignist þér sennilega
íbúð. Kannske náið þér eignar-
haldi á einhverjum hlut, sem þér hafið lengi
þráð að prýða með heimili yðar. Vel getur kom-
ið til greina, að óvæntur gestur hafi mikil og
heillavænleg áhrif á framtíð yðar.
Mánuðurinn er sérstaklega hagstæður ungu
fólki. Sé það að byrja að vinna fyrir sér, er ekki
annað sjáanlegt, en heppnin verði því hliðholl
fyrst um sinn. Ef þér hafið í hyggju að gerast
leikari, söngvari, hljómlistarmaður eða eitthvað
því um líkt, mun yður ganga svo vel að undrun
sætir.
w
T aurus
TVÍBURARNIR
21. maí til 20. júní.
'Eíklegt er að þér verðið fyrir
óþægindum af rógi og illmælgi ein-
hverntíma í þessum mánuði, en tak-
. . ið það ekki alvarlega. Fregnir, sem
Gemmt v , . ,,, .
your berast al sliku, geta vel ver-
ið orðum auknar, og ef til vill sagðar í ekki
sem beztum tilgangi.
Töluverðar líkur eru til þess að þér lendið
ferðalögum, og stofnið ef til vill við það tæki-
færi til nýrra kunningjasambanda, sem verða
til að gefa lífi yðar léttari og ánægjulegri blæ
en áður. Séuð þér kvæntur (gift), er allsenni-
legt að maki yðar öðlist fjárhagslegan ávinning,
ef til vill í gegnum happdrætti eða verðlauna-
veitingar.
Þegar líður að lokum mánaðarins, er hætt
við að fjölskyldudeilur færist í aukana, og geta
þær jafnvel leitt til hjónaskilnaðar og annarra
álíka vandræða, nema fyllstu stillingar og varúð-
ar sé gætt.
KRABBINN
21. júní til 20. júlí.
Hamingja yðar þennan mánuð er að
mestu komin undir skapgerð yðar.
Séuð þér þannig gerður, að þér
viljið hafa yðar fram hvað sem það
kostar, munuð þér fljótlega komast
að raun um, að þér eruð að lemja höfðinu við
óbrjótandi steinvegg. Ástundið þolinmæði, og
fljótlega mun sýna sig, að allt hefur sína eðli-
legu framrás.
I fjármálum hafið þér heppnina með yður all-
an mánuðinn. Reynið að forðast deilur, þvf ef
þér lendið í þeim, tapið þér sennilega og getið
þá orðið fyrir einhverjum hnekki, t. d. fjárhags-
legum.
Leo
LJÓNIÐ
21. júlí til 21. ágúst.
. Nú gengur yður allt í haginn.
c~mHverskyns breytingar á högum yð-
j — ar verða til batnaðar. Vinsældir yð-
ar virðast fara vaxandi. Menn sýna
vaxandi tilhneigingu ti! að verða yð-
ur að liði, og kemur það yður að góðu haldi. Gætið
þess að lítilsvirða ekki ráðleggingar kunningja yð-
ar. Undir þeim getur mikið verið komið.
Eitt er það einkum, .sem vissara er að varast.
Reynið að forðast að undirrita alla samninga ti!
langs tfma, sérstaklega ef þeir eru varðandi hús-
eignir.
MÆRIN
22. ágúst til 22. sept.
Næstu vikur er mikið undir því kom-
ið, að þér látið ekki minniháttar
erfiðleika valda yður áhyggjum.
Efalaust reyna vinir yðar og kunn-
ingjar að fá liðveizlu yðar í sínum
vandræðamálum. Stingið þá af og látið þá bera
sínar byrðar sjálfa.
Ef þér gætið þess að líta einkum á hinar bjart-
ari hliðar lífsins, verður gæfan yður naumast
mótsnúin. Vaxandi hagnaður í verzlunarviðskipt-
um er meira en líklegur.
VOGIN
23. sept. til 22. okt.
Verið varkár í peningasökum næstu
vikurnar, og verið sérstaklega vel á
verði gagnvart tilraunum til að fá
yður til þátttöku í fjárglæfrafyrir-
tækjum. Ef þér gætið þess, gengur
allt vel, einnig í sambandi við fjármál. Heima
fyrir geta ýmsir erfiðleikar orðið á vegi yðar,
og stafa þeir sennilega frá eldra fólki. Sýnið því
samúð og skilning, en haldið yðar striki engu
að síður.
Sennilega verða vinir yðar vður til mikillar
hjálpar. Með aðstoð þeirra munuð þér öðlast
margskonar vinning, bæði í atvinnulegu. fjárliags-
legu og félagslegu tilliti.
SPORÐDREKINN
23. okt til 22. nóv.
Ef þér lendið í einhverjum erfiðleik-
um eða vandræðum þennan mánuð,
getið þér engum um kennt nema
sjálfum yður. I fjármálum og við-
ikiptum verður hamingjan yður hlið-
Framh. d bls. 26.
Scorpió
SAMVINNAN 21