Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Page 28

Samvinnan - 01.08.1960, Page 28
Kosningadagur Frh. af bls. 15. Svo var það liann Bjarni hennar. Eí til vill var það fyrst og fremst hátta- lag hans, sem hafði valdið henni áhyggjum. Hann hafði hneigzt að þess- um ofstopaflokki, sem kenndur var við Rússa. Og þess þóttist hún fullviss, að ekki myndi föður hans hafa geðjast að því. Það var sagt, að þessi flokkur væri flokkur ribbalda, sem tröðkuðu á guðs og manna lögum, fjandsköpuð- ust við kirkjuna og væri ekkert heil- agt. Hún fékk sting í hjartað í hvert sinn sem fréttir bárust af ofbeldis- verkum þessara Rússa úti í löndum, en það gerðist æ tíðar á síðustu og verstu tímum — því henni bauð í grun, að Bjarni hefði svarizt í fóstbræðralag við fylgjendur þessara slæmu manna og myndi réttlæta allt þeirra athæfi. Það var mikil breyting, sem orðið hafði á honum frá því hann var lítill drengur. Áreiðanlega hafði hann þá verið góður í sér, þótt hann væri dulur og stundum þrjózkur. Og víst hafði hann Ari líka verið góður drengur, síkátur og hvers manns hugljúfi. Og enda þótt snemma bæri á tilhneigingu hjá honum til þess að sjá sinn hag í viðskiptum, þá hafði hann samt haft lag á að hafa alla með sér. Þannig hafði það verið. En mál- tækið segir, að snemma beygist krók- urinn. Ojá ojá . . . Hún hrökk upp úr hugsunum sín- um við að Ari sonur hennar barði að dyrum, birtist í dyragættinni brosandi eins og hans var vandi. — Góðan daginn, mamma, sagði hann vingjarnlega. Hvernig líður þér í dag? — Góðan daginn, Ari minn. Æ, mér líður engan veginn. Ég er eitthvað undarleg í dag. — Jæja, góða mín. En gott er nú blessað veðrið. Heldurðu þú vildir ekki ljúka því af að koma snöggvast með mér að kjósa til þess að koma því frá meðan ösin er minnst á kjör- staðnum? — Ég fer ekkert að kjósa, sagði gamla konan þrjózkulega. — Jú, heldurðu að þú gerir það ekki fyrir mig að skreppa snöggvast að kjósa? Ég fer auðvitað með þig í bíln- um. — Nei, ég vil ekkert eiga við að kj(')sa. Það verður þá engin óánægja út úr því. — Hm. Mér þætti nú mikils um vert, að þú vildir kjósa í þetta skipti. Aldrei hefur verið meiri þörf á því en nú að standa saman til þess að verjast áhlaupi rauðliðanna. Maður vjeit aldrei nema eitt atkvæjði geti riðið baggamuninn. — Þvu, hvað ætli það skipti máli, hvort ég kýs, hálfvitlaus kerlingaraum- inginn. Og ætli honum Bjarna mín- um finnist rétt, að ég sé að kjósa á móti honum. Enda held ég sé sama, hverjir komast að í þessum kosning- um — bara menn séu vandaðir og góð- ir rnenn, það er fyrir mestu. Nei, ég ætla ekkert að kjósa. — Jæja, þú ræður því auðvitað mamma. Ég hélt bara, að þú myndir gera þetta fyrir mig. En þú ræður. Og sonur hennar gekk til dyra en sneri sér við í dyragættinni um leið og hann sagði: — En ég er alltaf til taks að skreppa með þér í bílnum, ef þér skyldi snú- ast hugur. Skyndilega var gamla konan orðin æst, án sjáanlegrar ástæðu. — Skárri er það nú eftirgangssem- in, sagði hún. Sonurinn lét hurðina liægt að stöf- um á eftir sér. Það stóð ekki vel í bælið hennar í dag, hugsaði liann. Það skyldi þó aldrei vera, að hann Bjarni hefði verið að hræra eitthvað í henni? En það væri einum of mikið af honum — honum, sem aldrei hafði lagt svo mikið sem eyri með henni! Gamla konan lét prjónana síga í kjöltu sér, þegar sonur hennar var farinn. Um leið varð henni litið á myndina á kommóðunni. Hún teygði út höndina eftir henni. Það var mynd af sonum hennar frá því þeir voru 6 og 8 ára. Þannig höfðu þeir litið út þá, drengirnir hennar, sviphreinir, fall- egir snáðar með spyrjandi augu. Pabbi þeirra sagði, að það væri gott að geta hjálpað þeim til að mennta sig. En hins vegar væri samt sem áður það eina, sem skipti máli, að þeir yrðu vandaðir og góðir menn. Auðvitað var það rétt hjá honum eins og allt, sem hann sagði. En þeir höfðu víst sjálfir ekki haft neina sérstaka löngun til þess — eða ekki fannst henni það. Fólki þótti nú á dögum allt annað skipta meiru máli. Stundum hafði hún reynt að afsaka drengina sína með sjálfri sér. Kannske hafði fólk heldur ekki liugsað svo mikið um það, þegar hún var ung, að verða vandað og gott fólk. En þá voru líka tímarnir allt aðrir. Þá var lífsbaráttan svo hörð, að allt snerist um hana. Nú ætti vissu- lega ekki að vera þess þörf. En samt. . . Aftur var kvatt dyra hjá henni. Að þessu sinni var það Ólína tengdadótt- ir hennar, konan hans Bjarna. — Sæl og blesuð, Kristín mín, sagði tengdadóttirin og kyssti hana. — Sæl komdu, anzaði garnla konan, um leið og illur grunur um, að hún væri kornin til þess að fá sig til að kjósa, læddist að henni. — Ja, ég átti leið hérna fram hjá, er nefnilega að fara til þess að kjósa og datt í hug að spyrja þig, hvort þú yrðir kannske samferða. Ég meina, við getum auðvitað farið í bíl. — Þvu! Ég er búin að margsegja ykkur, margsegja ykkur, að ég fer ekk- ert að kjósa! Um leið kom þetta yfir hana, þetta, sem hana hafði verið að dreyma. Umhverfið fjarlægðist hana, eins og því væri kippt burt. — Ég er ----ég er. Meira gat hún ekki sagt. Henni fannst hún verða að komast upp úr stólnum og tókst það. Jafnskjótt sortnaði henni fyrir augum, og hún riðaði og greip um stólbakið. Tengdadóttirin kom þjótandi og greip utan um hana. — Ertu lasin, Kristín mín. Gamla konan japlaði með munn- inum en engin orð komu. — Ertu lasin, Kristín mín, endur- tók tengdadóttirin, en fann um leið, að gamla konan var að hníga niður. Andlit hennar varð náfölt. Og þótt augu henanr væru opin sá hún ekki tengdadóttur sína, skynjaði ekkert, þráðurinn var í sundur. 28 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.