Samvinnan - 01.08.1960, Page 31
lyftan var að fara upp, þegar ég kom
á stöðina. Hún var fengin til að hinkra
við meðan ég keypti miða, og kom svo
blaðskellandi í flasið á öllum íslenzku
þátttakendunum í Evrópumeistara-
mótinu, sem þennan dag voru komn-
ir alla leið frá Reykjavík. Undrun
minni verður ekki með orðum lýst, og
hefði ég ekki rekist á þá þarna, hefði
ég e. t. v. ekki fundið stað þann, sem
við áttum að gista á þá um nóttina, þó
hann væri inni í skógi þar upp á fjalli.
Þarna var dásamlegt að vera, út-
sýni eitt hið fegursta á jörðu hér, borg-
in fyrir fótum okkar, en Alparnir í
baksýn.
Ekki var árangurinn hjá mér upp á
marga fiska, er þrístökkskeppnin fór
fram 27. ágúst. Ég stökk 14.11 metra
og varð 23. Sigurvegarinn varð Sjerbak
ov, Rússlandi, 15.90, en annar Svíinn
Norman, 15.40. Af þessu má bezt sjá
yfirburði Rússans.
Gott er að hugleiða það, nú þegar
verið er að búast á enn eitt stórmótið,
þ. e. Olympíuleikana í Róm, að það
er fleira en sigur, sem skiptir máli.
í Olympíueiðnum segir, að aðalatriðið
sé ekki að sigra, heldur að taka þátt
og keppa drengilega. Sá, sem tapar í
dag, getur einnig sigrað á morgun. Á
þessu móti í Bern komust íslendingar
hvergi í úrslit, en þátttaka þjóðarinn-
ar í mótinu var henni aðeins til sóma,
og sannaði það fyrir öðrum þjóðum
álfunnar og öllum heiminum, að litla
,,eyríkið“ á hjara veraldar hefur skip-
að sér á bekk með menningarþjóðum
heims, og er staðráðið í því að halda
því sæti og bera merkið hátt.
e/1 afbMqbsqéw
H BRÚNKÖKUKRYDD T
M ALLRAHANDA / * /
M ENGIFER
M KANILL
M KARDEMOMMDR
. 1 KARRY
J KÚMEN
p\ . 1 MÚSKAT
1 NEGULL
PIPAR
VANILLESYKUR
mrnmíSmm lárviðarlauf
y" ■Ú.i.gf PAPRIKA
ámtskm
VANILLE
8AMVINNAN 31