Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1975, Blaðsíða 6

Samvinnan - 01.09.1975, Blaðsíða 6
STARFSEMI SAMVINNU- FÉLAGA HEFUR RÁÐIÐ ÚRSLITUM ágóðavonar. Dæmin um fisk- vinnslustöðvar, bíla- og búvéla- verkstæðin og önnur fram- leiðslu- og þjónustufyrirtæki eru svo mörg, að óþarft er upp að telja. Einnig eru mörg dæmi um að kaupfélög hafi stutt efnilega athafnamenn með framlögum til fyrirtækja þeirra, jafnvel með minni- hlutaþátttöku. Hefur kaupfé- lagið þá í senn verið aflgjafi og skapari trausts og festu. Eitt skemmtilegasta dæmið um slíkt er stofnun Flugfélags Akureyrar á sínum tíma. Lengi er hægt að halda áfram á þennan hátt og ræða um framlög kaupfélaganna til efl- ingar menningarlífs á félags- svæðum sínum o. s. frv. En ég get ekki stillt mig um að minnast á tvennt, sem ég heyrði á byggingaráðstefnu á Akureyri ekki alls fyrir löngu. Ungur maður stóð í ræðustól og sagði frá hve miklum erfið- leikum húsnæðisskortur ylli í sínu byggðarlagi, og þar væru engir byggingaverktakar. Þá gat hann þess, að til umræðu væri að kaupfélagið færi af stað með slíka starfsemi, byggði íbúðir og seldi til að bæta ástandið. Annar ungur maður kvartaði undan erfiðleikum í húsbygg- ingum í sínu byggðarlagi, m. a. vegna þess, að húsbyggjend- ur hefðu ekkert kaupfélag til að styðja sig við. Ég get ekki skilið við þennan þátt án þess að ræða um þann stað, sem samvinnuhreyfingin hefur átt hvað mestan þátt í að byggja upp og treysta, Ak- ureyri. í sögu Akureyrar hafa skipzt á skin og skúrir eins og í sögu annarra byggðarlaga. Tími há- karlaveiða leið og síldin kom í staðinn og hvarf aftur. Ein- stakir athafnamenn hafa lagt mikið af mörkum til eflingar bæjarins. Sum einkafyrirtæki hafa horfið af sjónarsviðinu en önnur hafa haldið áfram, og í dag eru mörg merkileg fyrir- tæki rekin á Akureyri. En það er lán Akureyrar, að í öllum sviftingum íslenzks atvinnulífs hefur bærinn átt gífurlega sterkan bakhjarl þar sem er starfsemi Sambandsins og K. E. A. Iðnaðarfyrirtæki sam- vinnumanna hafa verið bæn- um sú trausta undirstaða, sem staðið hefur af sér öll hret. 1973 voru unnin 1663 mannár i iðnaði á Akureyri, iðnaði samvinnumanna og öðrum, en það voru 35,2% allrar atvinnu- starfsemi í bænum. Og launa- greiðslur kaupfélagsins og Sambandsins námu það ár samtals um 580 millj. kr. sem var 18,8% allra greiddra launa á Akureyri. Ég er ekki í vafa um, að ef þýðing starfsemi samvinnufé- laganna fyrir þróun byggðar á íslandi væri könnuð kæmi í ljós, að hún hefur ráðið úrslit- um í að byggð hefur haldizt á fjölda þeirra staða sem nú eru lífvænlegir. Ég vil sjálfur taka svo djúpt í árinni að segja, að hefði samvinnufélaganna ekki notið við væri ísland þegar orðið, eða að verða, borgriki við Faxaflóa. • ÁSTAND BYGGÐARINNAR 1973 Nú er sjálfsagt kominn tími til að ég reyni að fjalla örlítið um byggðaþróun með tilliti til framtíðarinnar. Fyrsta desember 1973 voru íslendingar 213.499. í þéttbýli bjuggu 185.965 eða 87,1% en í sveitum 27.534 eða 12,9%. Afleiðing þeirrar þróunar, sem ég hef lýst hér að framan er eftirfarandi skipting á landshluta: Rvík og Reykjan. 126.416 59,2% Vesturland Vestfirðir Norðurland Austurland Suðurland 13.649 6,4% 9.983 4,7% 33.251 15,7% 11.758 5,5% 18.442 8,6% Síðan 1901 eða síðan 1940 hefur fólki fækkað einungis á Vestfjörðum, en hlutfallstala allra landshluta nema Reykja- ness hefur lækkað mikið. Við skulum nú aðeins líta á hvern landshluta fyrir sig. Á Reykjanessvæðinu búa nú 126 þúsund í þvílíku nábýli, og við það góðar samgöngur, að allt svæðið er í raun runnið saman í eina félagsheild. 99,1% íbúanna búa í þéttbýli en 0,9% í sveit. Það skiptir ekki höfuð- máli hvar á þessu svæði er búið með tilliti til atvinnu eða þjón- ustukaupa. Þarna er atvinnu- og þjónustuúrval mest. Hins- vegar eru vandamál fjöldans farin að segja til sín þó fólk veiti þeim kannski ekki athygli nema þegar það er fast í um- ferðarkösinni. Ég þekki ekk- ert land á okkar þróunarstigi, sem býr við eins hátt hlutfall höfuðborgarsvæðis af sinni heildaríbúatölu. Næst skulum við líta á Suð- ur og Vesturland. Þetta eru víðáttumiklir landshlutar, mat- arbúr Reykjanessins. Báðir eru þeir nú að tengjast Reykjanes- svæðinu með úrvals vegum og stór hluti íbúa þeirra mun í vaxandi mæli geta notið beinn- ar þjónustu frá Reykjavík. Vegna þess að þetta eru víð- lendustu landbúnaðarhéruð landsins, sem þar að auki eru í beztu markaðssambandi við Reykjanessvæðið, er dreifbýl- ishlutfall þeirra beggja mjög hátt. Á Vesturlandi búa 31,3% í sveit en á Suðurlandi 37,6%, og eru Vestmannaeyjar þó taldar með Suðurlandi. Þetta eru hæstu dreifbýlishlutföll landsins, sem táknar m. a. að báðir þessir landshlutar eiga góðan varasjóð af fólki. Báðir landshlutar eiga góðan aðgang að öðrum auðlindum en land- búnaðarlandi, fiskimiðum og orkulindum. Ekkert bendir því til að hafa þurfi áhyggjur af framtíð þessara landshluta. í báðum eru reyndar jaðarsvæði, Dalasýsla og Vestur-Skafta- fellsýsla, en bæði eru að fá bætt samgöngutengsl við aðra hluta sins landshluta. Ýmis vandamál eru sjálfsagt óleyst i báðum landshlutum, en þau eru þess eðlis, að þau leysast með fjármagninu einu saman. Ef við lítum til þeirra þriggja landshluta sem eru ótaldir, Vestfjarða, Norðurlands og Austurlands, blasir við okkur allt önnur mynd. Allir eru þess- ir landshlutar það langt frá höfuðborginni að þeir fá ekki notið beinnar þjónustu þaðan, og verða íbúar þeirra því að búa að sínu. Á Vestfjörðum hefur fólki fækkað um 2970 manns síðan 1940 eða um 22,9%. Einungis 23% Vestfirðinga búa í dreif- býli, og sé litið til hinna eig- inlegu Vestfjarða, svæðisins frá Látrabjargi til Snæfjalla- strandar, er þetta hlutfall enn lægra. Þetta landsvæði á engan varaforða fólks í sveitum. Og þó tekjur þéttbýlisbúa Vest- fjarða séu mjög háar, flytur fólk enn frá þessum stöðum, þangað sem það hefur aðstöðu til að eyða peningum. Vestfirð- ir eru tvímælalaust sá lands- hluti, sem er í mestri hættu með að leggjast í auðn. Skipu- legar aðgerðir til að stöðva þessa þróun hófust 1964 með gerð áætlunar um samgöngu- bætur innan Vestfjarða og við þá. En hvorttveggja var, að sú áætlun gekk ekki nógu langt og henni hefur ekki verið fylgt nægilega eftir með öðrum að- gerðum, svo að vandamálið er enn fyrir hendi. Norðurl&nd er víðlendur landshluti,, sem skiptist niður í fimm landfræðilega afmörk- uð héruð. 28,9% Norðlendinga búa enn í sveit, misjafnlega eftir héruðum. Höfuðstyrkur Norðurlands er miðjan, Eyja- fjörður ásamt Akureyri, en jað- arsvæði eru þó í verulegri hættu, svo sem Norður-Þing- eyjarsýsla. Hinsvegar er Norð- urland sá þessara þriggja landshluta, sem auðveldast er að efla með ýmsum klassisk- um byggðaþróunaraðgerðum, svo sem samgöngubótum og staðsetningu fyrirtækja og stofnana. Á Austurlandi hafa skipzt á skin og skúrir, en nú má segja að þar ríki tiltölulega stöðugt ástand. Dreifbýlishlutfallið þar er 28%, sem er mun hærra en á Vestfjörðum og aðeins lægra en á Norðurlandi. Brýnt hags- munamál Austlendinga eru samgöngubætur innan lands- hlutans. Hringvegurinn nýi hefur bætt stöðu landshlutans og ef tekst að tryggja rekstur bílferju frá Austurlandi til meginlands Evrópu má búast við talsverðri sálfræðilegri af- stöðubreytingu, þvi þá er Austurland ekki lengur af- skekktur landshluti heldur að verulegu leyti framhlið lands- ins. • VANDAMÁL ALDURS- SKIPTINGAR OG AT- VINNUSKIPTINGAR Eitt einkenni þjóðar okkar er aldursskiptingin. Fæðingar- tala hækkaði mjög á stríðsár- unum og fór hækkandi eftir stríð. Hún var mjög há á ár- unum 1950—1960, en þann ára- 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.