Samvinnan - 01.09.1975, Blaðsíða 23
hann innan í eitthvað grænt.
„Þið hafið blessun mína, ég
hef elskað alla mína daga“.
Hún leit upp. Augun voru allt
í einu orðin köld. Jenný stóð á
fætur og vissi ekki hverju svara
skyldi. Hún hafði einu sinni
séð stóra, feita konu, sem sat
og seldi aðgöngumiða að mark-
aðsrólu. Frúin líktist þessari
konu. Jenný hneigði sig hrædd.
„Ég fer þá“. Hún gekk yfir
gólfið og framhjá speglinum.
Hún kveikti ekki ljós í forsaln-
um. Hún flýtti sér að skella í
lás að baki sér og lyfti andlit-
inu feiginsamlega mót myrkr-
inu útifyrir. Hún hélt alltaf á
húfunni og setti hana ekki upp.
Hún hálfhljóp eftir hellunum
og beygði sig liðlega undir
þyrnirunnann, sem aldrei var
klipptur. Hliðið skall aftur á
eftir henni. Síðan gekk hún
hratt uppeftir í áttina að veg-
inum, sem lá til stöðvarinnar.
Að baki hennar stóð stóra hús-
ið, umkringt eplatrjám og háu
limgerði, áður en það hvarf í
myrkrið. Fótatak hennar var
eftirvæntingarfullt og ungt.
Það byrjaði að rigna, fínlegir,
litlir dropar féllu blíðlega á
andlit hennar.
Þ au stóðu í skjóli við limgerð-
ið nokkrum klukkustundum
seinna, ungur maður og ung
kona, runnin saman í eina
veru í myrkrinu, tvö hvít and-
lit, nálægt hvort öðru. Jenný
skynjaði þögnina, sem fylltist
niði af þungu dropafalli regns-
ins og hvíslaði: „Kristinn, en
hvað það er gott, að þú komst“.
„Ég var búinn að skrifa, að
ég kæmi“.
„Ég trúði því ekki, fyrr en
ég sá þig. Ég hef verið svo ein-
mana“.
„Eru þau ekki almennileg við
£>ig?“ Hann horfði upp að hús-
inu. Á annarri hæð mátti
greina Ijós bak við þéttofin
hvít gluggatjöld.
„Jú, en að þú skyldir samt
koma“. Hún lét hendina líða
yfir kinn hans. Nú mátti tím-
inn vel hætta að líða. Henni
^SAKON
er mörgum kostum gœdd
• Ljósritunarhraði allt að 50 eintök á mín.
• Mjög hagstætt verð á ljósritunarpappír.
• Pappírsforði á rúllu og stærð ljósrits alltaf skorið eftir stærð frumrits.
• Ljósritar upp í 298 mm. á breidd og óendanlega lengd.
• Ljósritar alla liti, prent, handskrift, ljósmyndir, teikningar og úr bókum.
TÖKUM AÐ OKKUR LJÓSRITUN D^ÍIÆ\O[f^]Q=0^ K JARAN HF:
Á MEÐAN BEÐIÐ ER skrifstofuvélar & -verkstæði Tryggvagötu 8, sími 24140
Enginn kann ó öllu skil
,BÓKIN UAA BARNIÐ'
gefur svör við yfir 800 atriðum sem upp kunna
að koma i sambandi við barnauppeldi og
foreldrum er nauðsyn að kunna skil á.
Höfundurinn — dr. Benjamin Spock — er
virtasti barnalæknir heims og i bókinni er sá
reynsluauður, sem hann hefur viðað að sér við
áratuga þrotlaust starf i þágu barna og mæðra
— raunar fjölskyldunnar yfirleitt.
Þýðandinn — Bjarni Bjarnason læknir — er einn helzti áhugamaður i
læknastétt varðandi allt, sem snertir heilbirgðismál, og hann hefur
einnig hagnýtt áratuga reynslu sina við þýðingu bókarinnar. Halldór
Hansen yngri ritar formálaog minnistþar starfa dr. Spocks.
,,Bókin um barnið”
er tvimælalaust ein bezta gjöf, sem nokkur móðir getur fengið, enda
segir hið fornkveðna, að ,,barn er móður bezta yndi.”
Þessi bók verður hverri móður góð stoð við umönnun og uppeldi barns
6Ö3. barna
SKARÐ • BÓKAÚTGÁFA • Lækjargötu 10
Sími 1-3510 • Pósthólf 147
23