Samvinnan - 01.09.1975, Blaðsíða 13
Stíll Norræna hússins
Mörgum þykir Norræna
húsið fallegasta bygging
Reykjavíkur og þótt víðar
væri leitað. Húsið telst með
þeim byggingum, sem finnski
snillingurinn Alvar Aalto
teiknar á síðari hluta ævi
sinnar. Meistarinn, en Finnar
hafa sæmt Aalto því heiti,
eins og við Kjarval og Þór-
berg, er nú hniginn á efri ár,
orðinn 77 ára. Heilsu hans er
tekið að hraka nokkuð, en
samt vinnur hann enn fullan
vinnudag. Hann hefur í þjón-
ustu sinni 16 arkítekta, sem
vinna við verkefni fyrir Finn-
land, Brasilíu, ísrael og
Bandaríkiri.
Eins og sjá má af meðfylgj-
andi myndum, sem eru af
nýjustu byggingum Aaltos,
bera þær mjög svipmót Nor-
ræna hússins hvað form
snertir, og er því ekki ósenni-
legt, að listfræðingar fram-
tiðarinnar telji þau heyra til
ákveðnum stíl á ferli meist-
arans.
Annars hefur Aalto löngum
haft ímugust á öllum stílum
og ismum. „Vandinn er ekki
fólginn í leit að nýjum og
frumlegum formum“, segir
hann. „Hann felst í því að
reyna að skapa form, sem
byggjast á raunverulegu
manngildi."
Alvar Aalto er maður hóg-
vær og lítillátur. Þegar hann
var nýlega spurður um hús,
sem hann hafði teiknað fyrir
finnska tónskáldið Joonas
Kokkonen, sagði hann:
„Það var ósköp lítið og mjög
einfalt.“
Tónskáldið hefur hins veg-
ar sagt fiá því, hvernig Aalto
vann verk sitt. Hann byrjaði
á því að teikna píanó Kok-
konens og spurði síðan:
„Hvorum megin gengurðu í
kringum það?“
Síðan teiknaði hann vinnu-
stofu tónskáldsins út frá
píanóinu og þannig varð hús-
ið smátt og smátt til; hvert
atriði þaulhugsað, hvort sem
það var stórt eða lítið.
Þegar kom að greiðslunni,
hló arkitektinn og sagði:
„Ég vil fá greitt í tónlist.“
Og Kokkonen settist í nýju
vinnustofuna sína, samdi
sellókonsert og helgaði hann
Alvari Aalto. □
Blátt borgarráðshús í Seinajoki sem er í vestur- Finlandia-húsið er úr hvítum marmara og er sú
hluta Finnlands. bygging, sem mesta athygli vekur í Helsinki.
Tækniskóli og rannsóknarstofnun í útjaðri Helsinki.
13