Samvinnan - 01.09.1975, Síða 15
ina sem miðpunkt. Þá er kind-
inni sleppt og hún fær að njóta
frelsis um stund. Á fjórðu
myndinni eru eins konar lands-
lagsmyndanir og kind á kletta-
snös efst uppi. Þessa mynd
kalla ég Afrétt. Síðan kemur
myndin Haust. Þá er formið
aftur orðið reglulegt og fast-
mótað; gæti minnt á hringrétt
eða eitthvað slíkt. Loks endar
þetta einhvern veginn — á bláu
tungli. Það gæti verið upphaf
að einhverju eða endir; það er
ekki gott að segja.
— Hvernig er myndin gerð?
— Hún er gerð úr marmara-
sandi, hvitu sementi og síðan
er settur steinlitur í, svo að út
kemur steinblanda, sem hefur
ákveðinn lit. Myndin er í tólf
litum. Grunnformin eru dregin
upp á veggina, en öll önnur
form eru frísteypt og unnin
sérstaklega. Þessi form eru
steypt hjá Walter Jónssyni í
Mosaik hf. Hver einasti steinn
er handunninn og engir tveir
eins. í steinana er settur kop-
arpinni og síðan borað fyrir
hverjum steini og þeir loks
límdir með mjög sterkum efn-
um...
Sláturhúsið stendur á opnu
svæði, svo að veggmyndin
nýtur sín vel. Ekki er að efa, að
hún m\mi vekja athygli og
setja svip á staðinn. □
Höfundur, múrarar og fleiri virða
myndina fyrir sér að uppsetningu
lokinni.
Nýja veggmyndin á sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauð-
árkróki er myndband, þar sem
rakið er lífshlaup sauðkindarinnar.
Fyrsta myndin heitir Dögun, önn-
ur Vor, þriðja Sumardans, fjórða
Afrétt, fimmta Haust — og síðan
endar sagan á bláu tungli.
Veggurinn áður en myndin var
sett upp.
Snorri Sveinn vinnur við uppsetn-
ingu myndar sinnar. Snorri er
fæddur og uppalinn á Sauðárkróki.
Hann starfar nú við leikmynda-
gerð hjá sjónvarpinu. (Myndimar
tók Stefán Pedersen).