Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1975, Qupperneq 25

Samvinnan - 01.09.1975, Qupperneq 25
og þriggja ára“. Frú Sylvíu varS ekki haggað. „Þú lætur þér sem sagt fátt finnast um ósiðsemina undir þínu eigin þaki“. Rödd hans brast, hann var gramur, þegar hann fann það og ræskti sig. „Langar þig að fara niður og trufla þau?“ Frú Sylvía tók út- saumað bókamerki af nátt- borðinu og lagði frá sér bók- ina. Boði gekk að glugganum, sem sneri út í garðinn og horfði niður. Það var ekki kveikt Ijós niðri í herberginu, en samt sá hann ekkert annað en daufiit, gul gluggatjöldin. Skyndilega sneri hann sér frá glugganum. Hann svimaði og svitnaði í lófunum. „Ekki ber ég ábyrgðina gagn- vart foreldrura hennar“. „Þetta er heldur ekki á þina ábyrgð. Ábyrgðin er hennar. Farðu niður og rektu kærast- ann út. Þú ga;tir fengið að sjá sitt af hverju‘. „Veistu, að ég hata þig". Boði gekk hægt að rúminu. Frú Sylvía mætti stingandi, illgirn- islegu augnaráði hans rólega. Hún lagðist afturábak á kodd- ana og brosti. „Já, ég veit það“. „Þú ert orðin gömul“. „Já, en ég er kona ennþá. Ert þú ungur? Heldurðu, að hún vildi þig?“ Orð hennar voru háðsk og eggjandi. Hann svaraði ekki. Hann kom alveg að rúminu. Og svo hné hann niður á hækjur sínar. J enný teygði sig í slökkvar- ann og Hét ljósið reka myrkr- ið i burtu. Hálfsitjandi beygði hún sig niður yfir andlitið, sem hún hafði gefið alla æsku sína. Skær roði litaði kinnar hennar yndislega: „Varstu að sofna?“ „Ég get ekki sofið í nótt?“. „Þú mátt vel skoða herbergið mitt. Ég puntaði upp á það með fjólum". Hann settist líka upp og leit í kringum sig. Litirnir hlógu honum í móti. Fötin þeirra lágu á stólnum. Síðan sneri hann sér að henni og kyssti ungu öxlina, sem sneri að honum. Hún strauk yfir hár hans. „Ég hélt ekki, að það væri svona fallegt, þegar tvær manneskjur sameinuðust". „Jú, það er fallegt, Jenný". Hann tók hana í faðminn og hallaði andliti hennar afturá- bak og gældi við það með koss- um sínum, hann fann munn hennar, sem auðmjúkt laukst UPP fyrir honum. Og hún fann hita umlykja sig eins og mikill eldslogi brenndi hana upp. □ ÞAR KOM AÐÞVÍ„. Þar kom að því, að við gætum kynnt nýjar gerðir af hinum landsþekktu CANDY þvottavélum — tvær splunkunýjar gerðir, sem eru þegar komnar til landsins. hefur 14 grunnkerfi og hifabreytisrofa, en það þýðir að hægt er að lækka hitastigið á flestum kerfunum án þess að stytta þvottatímann. ÞETTA ER NYJUNG. Sparnaðarrofa er sjálf- sagt að nefna, en með honum er hægt að breyta vélinni úr 5 kg vél í 3 kg vél. Með þessu má spara rafmagn, vatn og þvotta- efni. Margt fleira má nefna, s.s. að þvotta- tromlan er úr ryðfriu stáli, aðeitt af kerfunum fyrir mjög viðkvæm efni er fyrir ull, að Candy M 140 smákælir vatnið áður en skolun hefst og hlífir þar með þvottinum. er fullkomnasta þvotta- vélin frá Candy verk- smiðjunum. Auk framangreindra at- riða hefur hún þessa kosti: 750 snúninga þeytivindu, 18 þvottakerfi, tímabreytirofa en með honum er hægt að lengja þvottatímann á öllum kerfunum um 4-30 mínútur. Athyglin mun beinast að þessum vélum vegna kostanna. Þetta er árang- ur af 30 ára reynslu. Engin verksmiðja í Evrópu framleiðir jafn margar þvottavélar á dag og Candy verksmiðjan. Við bjóðum að sjálfsögðu af borgunarskilmala. Candy M 140 Candy 250 Verzlunin Skólavörðustíg og Bergstaðastræti — Sími 26788 Áskriftarsími Samvinnunnar er 81255 25

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.