Andvari - 01.01.1932, Qupperneq 62
58
HeyþurkunarvéL
Andvari
loffsins (og raunar er þetta töluwert lægra, ef reiknað
er með lægra verðinu fyrir dráttarvélina). Og þess ber
að gæta, að ekki þyrfti nema tvær manneskjur við
vinnuna, einn til að aka heyinu að og annan til að
koma því fyrir í hlöðu — auk mannsins, sem með vél-
ina færi, því að hann ynni því nær fullt verk fyrir það,
þó að hann sæi um að halda vélinni í gangi.
Enn er eftir að skýra frá verðinu á heyþurkunar-
vélunum. Það var í haust sem leið: Hreyfanlega vélin
380 sterlingspund, en hin grunnmúraða 297 sterlings-
pund, báðar í Lundúnum. Við verðið er það að athuga,
að hin fyrnefnda er þar af hendi látin fullgerð, eins og
hún á að notast. En, eins og að framan sést, er hún
svo stór, að eflaust yrði mjög erfitt að flytja hana, því
að hún yrði að flytjast í einu lagi. Aftur er grunnmúraða
vélin ekki öll innifalin í þessu verði, því þar þarf að
gera undirstöðurnar, steypa kassann og hlaða eldstóna.
Hér er auðvitað um allmikinn kostnað að ræða, en þó
er það bót í máli, að það mun vera á flestra færi að
vinna þetta verk sjálfir og því gera það svo ódýrt sem
unnt er. Að vísu verður steypa þessi að vera vel gerð, því
að hún á að vera loftheld. Flutningurinn á henni yrði
auðveldur og ekki mjög dýr, því að hún yrði flutt í pört-
um. Það er ekki unnt að segja ákveðið, hvað hún myndi
kosta hingað komin, fullgerð og uppsett, en líklega yrði
hún ekki miklu dýrari en hin vélin, og búast mætti við
því, að hún kostaði aldrei meira en 10000 krónur, og
þó líklega vel í lagt.
Þá skal með fám orðum skýrt frá því, hvernig vél
þessi vinnur það verk, sem henni er ætlað að vinna.
Mér gafst kostur á að sjá allmikið af heyi, sem hún
hafði þurkað og ýmsar tegundir, þar á meðal smáhey,
mjög líkt vorri töðu. Og ég býst við, að allir, sem