Andvari - 01.01.1932, Blaðsíða 84
80
Síldarleit úr iofti 1931.
Andvari
því að bíða lengi eftir afgreiðslu. Þess vegna flaug
Alftin í síldarleit vestur á Húnaflóa á fimmtudaginn og
fann mjög mikla síld með öllum Ströndum frá Reykjar-
firði norður að Syðra-Horni. Varð árangurinn af þeirri
ferð sá, að nokkur skip fóru frá Siglufirði þangað vestur
til að veiða og leggja upp aflann á Vestfjörðum. Má
því segja, að næstum allt hafi verið fullt af síld fyrir
Norðurlandi þessa viku og jafnframt góð tíð.
Vikuskýrsla 23.—29. ágúst: Þessa viku flaug Álftin
í síldarleit allt frá Horni og austur fyrir Rifstanga og sá
töluvert af síld, slæðing meðfram Ströndum og tölu-
verða síld við Skagann, út af Eyjafirði, og einnig inni
á firðinum út af Hrísey og fram undan Olafsfirði;
einnig sást síld kringum Flatey. Þessa viku veiddist
mikil síld, sem fór því nær öll í bræðslu.
Vikuskýrsla 30. ágúst — 5. september: Þessa viku
var flogið allt frá Steingrímsfirði og austur fyrir Tjörnes
og sást geysimikil sild á Húnaflóa, dálítil sild við Skag-
ann og lítið eitt út af Haganesvík og kringum Flatey.
Inni á Eyjafirði hefir allt af sézt slæðingur af síld út
af Ólafsfirði. Nú eru sem næst öll skip hætt veiðum
og hættir því síldarleitin að mestu.
Horft til baka.
Mönnum er í fersku minni, að sumarið 1928 var gerð
tilraun með síldarleit úr lofti í tæpa viku í ágústmánuði
(13.—17. ágúst) að tilhlutun atvinnumálaráðuneytisins.
Veður var þá mjög hagstætt og sást þá mikið af síld;
útgerðarmenn fögnuðu þessari nýjung og var það al-
menn ósk, að tilraunum þessum yrði haldið áfram.
Sumarið 1929 var leitað síldar úr lofti frá 19. júlí til
2. september. Kostnaðinn við síldarleit þessa greiddu þá
togaraeigendur (einkum h.f. Kveldúlfur), síldareinkasalan