Spegillinn - 01.07.1965, Blaðsíða 17
Tilvonandi tungl
tarar í geim-
ferðaþjálfun á
Islandi
Háloftasnarfarar hyggjast nú bráSum
hefja til mánans ferð,
en fjöld þarf af tygjum og tækniráðum
er tilraun sú verður gerð.
Til ferðalags þessa þykir bezt
að þjálfa á frónskum slóðum,
þvi Tunglið og ísiand eru, um flest,
áþekk aö kostum góðum.
NJÓTID
LÍFSINS
»
I
NAUSTI
Á tunglinu er obbi af eldbrunnum löndum
eins og hver maður veit,
með innantóm fjöll á eyðisöndum,
áh'ka og Mývatnssveit,
ófærugjár og apaihraun
eins og hjá Lakagígum,
fullþung verður víst flestum raun
að fara á þeim refilstígum.
Og karlinn í Tunglinu sýnir það sjálfur,
að sammerkt við iandann hann á,
oft er hann fullur og oftar hálfur
og allur hann ljómar þá,
en hitt á morgnana hendir oft
— sá háttur er gamalkunnur —
að auminginn læðist upp á loft,
ósköp fölur og þunnur.
En flokki erlendra ofurhuga,
sem ætla að sækja okkur heim,
við hljótum i einu og öllu að duga
og eigum áð hjálpa þeim
að þreyta geym-ferða þjálfun fast
með þolinmæði og natni,
en það mundi verða þénle"'st
á Þórsmörk og Hreðavatni.
Balli.
LETT RENNUR CEREBOS SALT
Spegillinn 17