Spegillinn - 01.04.1983, Page 8
Espólín skrifar
Pólitíska ættfræðin hefurverið
vaxandi fræðigrein á íslandi
undanfarin ár og menn hafa æ betur
gert sér grein fyrir samhenginu milli
stjórnmálaog ættfræði. Segja má
að tveir menn hafi einkum markað
grundvöll þessarafræða. Sáfyrri er
Erlendur Einarsson í SÍS en
ættartré það er hann lét prenta er
einn af hornsteinum þeirra. Þar
sýndi hann á óyggjandi hátt
frændsemi sína við Elísabetu II
Englandsdrottningu og
konungaættir Evrópu en
sameiginlegurforfaðirþeirravar
Auðun heitinn skökull. Hafa völd
Erlendar ekki verið véfengd síðan.
Hinn er Ólafur Ragnar Grímsson
stjórnmálafræðingur, prófessorog
doktor í pólitískri ættfræði.
Fræðirannsóknir hans í þessum
efnum og sú stórmerka uppgötvun
að hann sjálfur væri kominn af
Skúla fógeta í beinan karllegg
opnuðu augu hans fyrir því að hann
væri borinn til mikilla valda.
í þessari fyrstu grein í greinaflokki
um pólitísku ættfræðina verðurfarið
nokkrum orðum um lögmál hennar
og tekin dæmi úr framboðum í
komandi alþingiskosningum. Það
skal tekið fram að rannsóknum er
ekki fulllokið og eiga því mörg kurl
eftirað komatil grafarenn. Áður en
lengra er haldið skal það áréttað að
eitt af grundvallarlögmálum
pólitísku ættfræðinnar er að menn
komast til áhrifa (t.d. á þing) vegna
göfugs ætternis en ekki eigin
verðleika eða hugsjóna og eru þar
engar undantekningar sem sanna
regluna. Fyrir hina ættgöfugu skiptir
ekki máli hvaðstjórnmálaflokkurinn
heitir, þarerætterniðofaröllu.
Tökumtil að mynda
Alþýðuflokkinn í Reykjavík.
Þingmenn hans eru dæmigerðir.
Þar eru á ferðinni synir og dætur
feðra sinna með göfuga þræði inn í
aðraflokka, einhverjar
hreinræktuðustu sannanir pólitísku
ættfræðinnar sem um getur. Við
skulum taka þá fyrir einn af öðrum.
mmmmmmmmmm
ímmsmmmmm
\
i w
8