Stúdentablaðið - 01.12.1952, Qupperneq 34
26
STÚDENTABLAÐ
eyrnasjúkdómum. írá stoínun háskólans. Við því starfi
Þá var dr. Magnúsi
Jónssyni veitt lausn
frá prófessorsembætti
i guðfræði samkvæmt
eigin ósk frá 1. sept.
að telja. Settur próf-
essor Magnús Már
Lárusson gegnir em-
bætti hans eins og ver-
ið hefur undanfarin
ár.
Ráðinn varnýrkenn-
ari að tannlæknadeild
skólans. Á hann að hafa kennslu á hendi í tannrétt-
ingu. — Til starfans var fenginn Jóhann Finnsson,
tannlæknir.
Breytingar á háskólareglugerð.
Hinn 27. ágúst staðfesti forseti Islands breytingar
á reglugerð Háskóla Islands. Voru innritunar-, skrán-
ingar- og póstskírteinagjöld hækkuð mikið og nokkr-
ar breytingar gerðar á prófum í íslenzkum fræðum.
Islenzka hefur nú verið aftekin sem námsgrein til
B.A.-prófs, en í hennar stað settar reglur um sérstakt
cand. mag. próf, sem hægt er að taka eins og hér
segir:
I íslenzku (bókmenntasögu og málfræði) ásamt
einni aukanámsgrein, þ. e. einhverri þeirri námsgrein,
sem nú er kennd til B.A.-prófs.
1 sögu (Islandssögu og mannkynssögu) ásamt einni
aukagrein.
Loks er svo hægt að taka kennarapróf í islenzkum
fræðum eins og verið hefur.
Gjafir
bárust háskólanum nokkr-
ar. — Frú Ingibjörg Cl.
Þorláksson og kjördætur
hennar gáfu háskólanum
kr. 50000, er mynda skyldu
sjóð til minningar um Jón
Þorláksson, verkfræðing.
Hlutverk hans á að vera
að styrkja efnalitla verk-
íræðinema við Háskóla íslands eða til framhaldsnáms
við aðra háskóla.
Frú Ragnheiður Benediktsdóttir, sem nýlátin er, á-
nafnaði háskólanum fjárhæð, er nam 10.800 kr., og
á að stofna með henni sjóð til minningar um Benedikt
sýslumann Sveinsson, föður gefanda. Tilgangur sjóðs-
ins er að veita efnalitlum stúdentum styrki.
Þá bárust minningarsjóði Þórunnar og Daviðs Sch.
Thorsteinssonar tvær gjafir, samtals 4000 kr. frá
stofnanda sjóðsins, Þorsteini Sch. Thorsteinsson, lyf-
sala.
Sendikennarar
erlendra háskóla starfa hér þessir: Dr. phil. Ole
Widding í dönsku, fil. lic. Gun Nilson í sænsku, cand.
philol. Ivar Orgland í norsku og lic. és lettres Edouard
Schydlowsky í frönsku.
Gestir háskólans.
Á skólaárinu komu nokkrir vísindamenn hingað
til lands og fluttu fyrirlestra í boði háskólans:
Próf. dr. Gwyn Jones frá háskólanum í Aberyst-
wyth í Wales, flutti 18., 21. og 25. sept. 1951 fyrir-
lestra um Mábinogion, velsk rit frá miðöldum.
Próf. dr. Didrilc Arup Seip írá háskólanum í Osló
flutti 15. og 16. júní 1952 fyrirlestra um norska tungu.
Sean MacBride, fyrrv. utanríkisráðherra Ira, flutti
11. ág. 1952 fyrirlestur um atjórnmálajtr&unina á Ir-
landi.
Próf. Hans A. Múller frá Columbia-háskólanum í
New York flutti 6. júní 1951 fyrirlestur um svartlist og
jtróun hinna einstöku greina hennar.
Fyrirlestrar f'yrir almenning í hátíðasalnum.
1. Próf. dr. Stefán Eiuarsson: Tvær draumvisur í
Sturlungu, 23. sept. 1951.
2. Próf. Magnús Már Lárusson: Dómkirkjan í Skál-
holti, 25. nóv. 1951.
3. Dr. Sveinn Bergsveinsson: Bókmenntastefna
kynnt (Stefán frá Hvítadal), 3. febr. 1952.
4. Próf. dr. Þorkell Jóhannesson: Skúli Magnússon
og innréttingarnar, 6. april 1952.
5. Dr. med. Gísli Fr. Petersen, yfirlæknir: Geislavirk
gerviefni og hagnýting þeirra í læknisfræði.
6. Prófessor Ásmundur Guómundsson: Upprisa Jesú,
2. og 8. nóv. s.l.
Háskólalóðinni
hefur enn verið komið í betra horf. Einkum var
unnið að lagfæringu fyrir aftan skólahúsið. Þar voru
bílastæði og akvegur malbikuð, gangstígar hellulagðir
og ljóskersstaurum komið fyrir. Umhverfi nýja Garðs
hefur einnig verið lagfært og verið er að girða lóð-
ina þar. Þá hefur trjágróðri verið plantað meðíram
vegum og gangstígum. Má segja að lóðin tæki stakka-
skiptum með hverju ári.
tók Stefán Ólafsson læknir.