Fálkinn - 15.12.1928, Side 3
>
@0 o o o o o o o o o o o o o o o©o o o o o o o o o o o o o o o o©o O O O 0 o o o o o o o o o o o®o O O O O • • O 0 O O ®£)0 O O O O O O O 0 o o o©c O O O 0 o o o c o o o©o o o o o o o o o o o o©o • o o o o o o c o o 0(2)0 o o o • o o • o o o o oo.0o°aoo®
cP ° ®
O °Ooo°I
ÁHRIFAMAÐURINN MESTI
Q-
: JOLAHUGLEIÐING
o
I Eftir dr. theol. JÓN HELGASON biskup
o
o
o
Qoooooooooooo 000 0 0000 00*1^0000000000000000 O .
o”?
o O
°°2
oO
oo
9°^
° H
Hd Ö o
. o ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo O O O oO OoðOoO
„Af hans gnægð liöfum vjer
allir fengið“ (Jóh. 1, 16).
’ÓLIN sera fæðingarhá-
tíð frelsarans er um
fram alt minningarhá-
tíð. En þegar vjer
höldum minningarhá-
tíð einhvers manns, sem vjer
vitum oss í þakkarskuld við,
þá dettur oss sjaldan í hug
að dvelja við fyrstu byrjun
lífs hans, heldur dveljum vjer
við Iíf haiis fulltíða, því að
mæti hans stendur ávalt og
fyrst og fremst í sambandi við
það, hvílíkur hann var i lífi sínu
og hvað hann fjekk afrekað öðr-
um til heilla. Og eins er farið
minningunum um Jesúm Krist.
Þær hljóta allar að snúast fyrst
og fremst um það, hvílíkur hann
var sem fulltíða maður og hvað
vjer eigum honum að þakka.
— En þetta tvent stendur i nán-
asta sambandi hvað við annað.
Þegar vjer af sjónarhæð nú-
tímans rennum augunum yfir
þróunarferil mannkyhsins um
næstliðnar 19 aldir, þá dylst oss
ckki, að þar verður fyrir oss
sægur mikilla áhrifamanna, sem
mannkynið er í þakkarskuld við.
En einn er sá, er ber ægishjálm
yfir alla aðra áhrifamenn ver-
aldarsögunnar og meiri ljóma
leggur af en öllum öðrum. Þessi
• æini er maðurinn Jesús Kristur.
Meiri áhrifamaður lifði aldrei
hjer á jörðu.
Hver áhrifamaður hann var,
kom þegar í ljós á holdvistar-
dögum hans, eins og þeim er
lýst i guðspjöllum vorum. Al-
staðar þyrpist fólkið að lionum
til að hlýða á mál hans og sjá
verkin, sem hann vinnur, svo að
hann fær aldrei að vera i friði,
nema helst blánóttina, sem hann
þá einkum notar til þess að eiga
tal við sinn himneska föður og
auðgast við það að nýjurn þrótt
og nýrri djorfung. Að sjálf-
sögðu hefir fox-vitnin dregið
marga, enda fer því fjarri, að
að allir þessi mörgu menn tryðu
á hann. En hvað sem þvi líður,
þá var aðsóknin mlkil alla jafna.
Sjerstaklega voru það þó þeir,
er ininst áttu undir sjer, sem
hændust að honum og leituðu
samfunda hans, óbreytt alþýða
og öreigalýður. Fyrstu lærisvein-
ar hans voru, sem kunnugt er,
allir óbreyttir alþýðumenn.
Fyrsti söfnuðurinn, sem mynd-
ast um hann, hefir vafalítið að
ixieiri hlutanum verið fólk, sem
telja mátti til öreigalýðs, sem
nú er svo kallað. Það er þvi síst
að furða þótt öreigalýðurinn i
heiminum hafi einatt viljað
eigna sjer Jesúm Krist sjerstak-
!ega, enda verður þvi aldrei
neitað, að Jesús var vinur ör-
eigalýðsins öllum öðrum fremur,
sem lifað hafa á þessari jörð.
En hann var það sem „vinur
syndaranna“ yfirleitt og allir
voru í vissu tilliti öreigar fyrir
guði í hans augum. En liitt er
jafnvist, að Jesiis kendi sjerstak-
lega í brjósti um alla þá menn,
sem urðu á einhvern hátt að
fara varhluta af þvi, sem ahnent
er talið lífsgæfa, og fyrir því
söfnuðust slíkir menn sjerstak-
lega að honum. Þeir fundu, að
hjer var sá, sem vildi þeim vel,
ekki þekti neitt manngreinarálit,
ekki leit niður á þá, svo sem ein-
hverja óæðri tegund manna,
heldur elskaði þá sem bræður og
systur, sem börn eins og sama
föður, sem þá, er allir væru jafnt
ákvarðaðir til arftöku i guðs
ríkinu. Ekki síst fundu þeir til
þessa, sem, eins og tollheimtu-
menn og bersyndugir, sættu al-
mennri fyrirlitningu, eða þá þeir,
sem manmiðarleysið og harð-
ýðgin vildi helst útiloka úr
mannlegu fjelagi fyrir það eitt,
að þeir voru haldnir einhverjuin
sjúkdómi, sem þótti vera vottur
guðlegrar reiði vegna sjerstakra
synda þeirra.
En þeir voru fleiri, sem leituðu
á fund Jesú. Vjer sjáum meðal
þeirra einnig menn af hinum
æðri stjettum, menn, sem sist
verða taldir til öreigalýðs, menn
eins og t. a. m. hundraðshöfð-
ingjann í Kapernaum, sam-
kunduhússtjórann Jairus, ráð-
herrana Nikódemus og Jósef frá
Arimatea, rika unga manninn o.
fl. En Jesús gerði þeim ekki i
neinu hærra undir höfði en liin-
um. í hans auguin voru þeir
allir öreigar fyrir guði, menn,
sein þurftu hjálpar og Jesús að
sjálfsögðu var boðinn og búinn
til að hjálpa.
En öllum þessum mönnum
kemur saman um það, að Jesús
sje ekki eins og fólk flest. Allir
kannast þeir við hann sein sjer-
stakan yfirburðamann, hvernig
sem standi á yfirburðum hans.
Og allir kannast þeir við hann
sem afburða-áhrifmann, bæði
vinir hans og óvinir.
Hversu vinir hans fundu til
þess, sjáum vjer við hvert fót-
mál hans. Þegar við fyrstu sam-
fundi verður Símoni Pjetri að
orði: „Far frá mjer herra, þvi
að jeg er maður syndugur".
Hann er þá ekki heldur i vafa
um hvernig á yfirburðum hans
stendur, er hann við annað tæki-
færi segir við hann: „Til hvera
ættum vjer að fara, þú hefir orð
eilifs lífs“. Og fyrstur allra ber
Símon Pjetur fram játninguna
miklu: „Þú ert Kristur, sonur
hins lifanda guðs“. Þá dylst ekki
heldur hundraðshöfingjanum
hver áhrifamaður Jesús sje:
„Bjóð þú aðeins með einu orði,
og mun sonur minn verða heil-
brigður“. Eða samkunduhús-
stjóranum, er laut honum og
mælti: „Dóttir mín er nýskilin
við, en kom þú og legg hönd
þína yfir hana, þá mun hún
Jifna“. Eða þá blóðfallssjúku
konunni, sem trúði því, að hún
mundi heil verða, fengi hún að-
eins snortið yfirhöfn hans. Og
svona mætti lengi halda áfraitf
til að sýna hver áhrifamaður
Jesús var. Algengasta viðkvæðið
verður: „Hann talar eins og sá,
er vald hefir, en ekki eins og
fræðimenn þeirra“. En einnig
óvinir Jesús geta ekki orða
bundist: „Sjá allur lýðurinn
heldur sjer fast að honum og
hlýðir á hann“, sögðu æðstu
prestarnir og hlestu menn þjóð-
arinnar, og Farisearnir sögðu
fullir gremju: „Hvað eigum vjer
til bragðs að taka, þar sem þessi
maður gjörir svo mörg krafta-
verk?“
En áhrif Jesú eru sist bund-
in við jarðlíf hans. Aldrei kem-
ur það á stórfeldari hátt í ljós
hvílíkur áhrifamaður hann er,
en eftir burtför hans úr heim-
inum að sýnilegum návistum.
Öll kristnisaga heimsins er saga
Framhald á 15. siðu.
1