Fálkinn - 23.05.1931, Qupperneq 4
4
F Á L K I N N
Yfir þvert ísland á skíðum.
Eftir HELGE TORVÖ
sem liann nú lifir, búið sjer til
nýjan líkama]. Vísindamennirn-
ir munu verða mjer ósammála
[á víst að vera spíritistarnir,
andatrúarmennirnir, ekki scien-
tists eins og þar stendur, heldur
spiritualists], en jeg er ennþá af
efni gerður, likamlegur (mate-
rial), og meðan jeg er af efni
gerður (material) finst mjer jeg
vera eins maður og jeg var á
jörðinni. [Orðið material er í
öðrum staðnum í gæsarlöppum,
en þær stafa auðsjáanlega ekki
frá Conan Doyle] Price spyr:
Hvað haldið þjer um framtíð
spiritismans hjer i landi, (Eng-
landi) haldið þjer að liann muni
renna saman við liið vísinda-
lega? Doyle segir: .... Jeg er
sannfærður um eitt, þó að marg-
ir af vinum minum muni ekki
taka undir það með mjer: það
sem verið er að reyna með spiri-
tismanum, mun takast með stór-
fenglegri vísindalegri útskýringu
(explanation). [,,Útskýring“,
sem setur hreina náttúrufræði í
staðinn fyrir dulfræði, er þegar
komin fram, og er því spá Doyles
um að svo muni verða, meir en
lítið merkileg]. Price: prófessor
Julian Huxley segir, að trúin
(religion) muni að lokum breyt-
ast í vísindi. [Menn taki eftir þvi,
að orðið devolve er notað, en ekki
evolve]. Doyle svarar: Það mun
fara svo; þegar maðurinn losnar
betur við ótta [fear of complex-
es bögumæli fyrir the fear-com-
plex] og verður í nánara sam-
bandi við alheiminn, þá mun
hann skilja hinn ótakmarkaða
veruleika lífsins, og það er ekki
trú. [Þetta er framúrskarandi
illa orðað, en það sem átt er við
er þetta, að mennirnir komast
á vísindastigið í þeim efnum sem
spíritisminn fæst við, þegar þeir
öðlast þekkingu á sambandinu
við lífið á stjörnunum]. Öll trú-
arbrögð munu líða undir lok,
eins og sagan sýnir oss, að sum
trúarbrögð eru þegar undir lok
liðin. Jeg lít dálítið öðruvísi á
þetta nú, en jeg gerði meðan jeg
lifði á jörðinni.
II.
Flest í svörum þessum, sem
eignuð eru Conan Doyle, er af-
arilla orðað, og þarf enginn að
ætla, að hinn mikli rithöfundur
og ræðuskörúngur hafi ekki bet-
ur til stefnt. En orð hans hafa
færst mjög úr lagi, sakir rangra
sannfæringa og vanþekkingar
þeirra sem að tah þessu stóðu
hjer á jörðu. En jafnvel þessi af-
skræmdu svör eru þó afar merki-
leg, þvi að það er alveg augljóst,
að svörin eru ekki frá rótum til-
búin (ósjálfrátt) af Harry Price
og miðhnum. Sannleikurinn
brýst í gegn, þrátt fyrir alt, og
það kemur greinilega fram, að
Conan Doyle er að reyna til að
segja þetta sama, sem jeg hefi
nú alllengi verið að leitast við að
fá menn til að skilja: að lifið
eftir dauðann er líkamlegt og á
öðrum jörðum, en ekki í neinum
öðrum lieimi. En afleiðingarnar
af þeim skilningi munu verða
liinar stórkostlegustu.
III.
Fleiri hafa átt býsna fróðleg-
a)" viðræður við hinn framliðna
Conan Doyle, en Harry Price. Er
af slíku sagt á mjög eftirtektar-
verðan liátt í tímaritinu Bulletin
des Polaires, apríl 1931 og áður.
Les Polaires er fjelag franskra
dulrænumanna, og er nafnið ein-
kennilegt: hinir heimskautslegu
eða norðlægu; hafa dulrænu-
rnenn þessir mikla trú á norðr-
inu og búast við einhverjum sem
er nefndur Celui qui attend, sá
sem bíður; búast þeir við mjög
þýðingarmikilli fræðslu úr þeirri
átt. Þessir menn hafa nú fengið
samband nokkurt við Conan
Doyle, einn maður úr fjelagi
þeirra tekið þátt í sambands-
fundum í Lundúnum. Er sagt að
skamt sje til mikilla tíðinda, og
að boðskapur sá sem Conan
Doyle muni reyna að koma fram,
verði um þá viðburði; er talið
að gera megi ráð fyrir hinum
stórkosllegustu breytingum.
Hygg jeg að þetta sje rjett mælt.
Tel jeg vafalaust, að fyrir miðja
öldina sje stærri tiðinda von, en
áður hafa orðið hjer á jörðu. En
hvort þessar gjörbreytingar
verða til góðs eða ills, er undir
þvi komið hvort mönnum auðn-
ast að læra að meta, eins og rjett
er, sannindi, sem að vísu fyrst
hafa verið i ljós leidd i landi, sem
norðarlega liggur á hnettinum.
Er því óhætt að segja, að liinum
frönsku dulrænumönnum ferst
giftusamlega, er þeir horfa svo
mjög í norðurátt; liefi jeg sagt
þeim að mjer sje ekki alveg ó-
kunnugt um „þennan sem bíður“
og kenningar hans, og hefir því
verið vel tekið, og hefir mjer þó
ekki virst ástæða til að segja
mikið af, að sinni. — Býst jeg v.ð
að rita síðar meir nánar um
þessa frönsku norðurhorfsmenn
og það sem fram kemur í rit-
um þeirra.
14.—18. maí.
Helgi Pjeturss.
Við sjóðum egg í Geysi.
(Fyrir nokkrum árum fór L. H.
Miiller kaupmaður, hinn kunni fröm-
uður skiðaíþróttarinnar hjer á landi
yfir þvert ísland á skíðum að vetrar-
lagi og hafði það aldrei verið gert
áður, svo menn viti. í för með hon-
um voru tveir menn. Eflaust átti sú
för einna mestan þátt í þeim vax-
andi áhuga, sem síðan hefir orðið
vart hjer á suðurlandi í þessum efn-
um síðan og ljósast má sjá að hinni
auknu starfsemi Skíðafjelags Reykja-
víkur, sem aldrei hefir verið meiri
en i vetur.
Norðlingar hafa löngum verið
meiri skíðamenn en Sunnlendingar
og iþróttin verið iðkuð talsvert mik-
ið í ýmsum sveitum norðan lands;
þó frekar til gagns en gamans. En
nú er það einn staður á norðurlandi,
sem langsamlega skarar fram úr öll-
um stöðum þessa lands, hvað iðkun
skíðaiþróttarinnar snertir og það er
Siglufjörður. Það eru nokkur ár síð-
an Siglfirðingar fóru að halda árleg
skiðakappmót og i vetur rjeðust þeir
í að fá til sín norslcan kennara, Helge
Torvö að nafni, sem dvalist hefir þar
undanfarna mánuði. Er skíðagöngum
þar nú komið í það horf, sem óhjá-
kvæmilegt er til allra verulegra fram-
fara: að börnin iðka skíðagöngur. —
Og nýlega fetaði Torvö í fótspor
landa síns og brá sjer hingað suður
á skíðum, ásamt Guðmundi Skarp-
hjeðinssyni skólastjóra á Siglufirði.
— Fer hjer á eftir ágrip af ferðasögu
þeirra fjelaga, sem Torvö hefir góð-
fúslega ritað handa „Fálkanum".
Um páskana datt okkur Guö-
mundi Skarphjeðinssyni í liug,
að gaman væri að bregða sjer
suður yfir land á skíðum. Svona
ferð liafði verið farin áður og
tekist ágætlega, en við höfðum
hug á að fara aðra leið, vestlæg-
ari, sem aldrei hafði verið farin
áður að vetrarlagi. Á þessari leið
gafst færi á að sjá marga fagra
og merkilega staði. Völdum við
þessa leið: Af Siglufirði í Skaga-
fjörð og um Skagafjarðardali,
Hveravelli, milli Hofsjökuls og
Langjökuls, fram hjá Hvítár-
vatni, suður hjá Bláfelli austan-
verðu til Geysis. Þaðan um Þing-
velli til Beykjavikur.
Þessi ferð var hin ánægjuleg-
asta og ógleymanleg frá upphafi
til enda, og veðráttan liagaði sjer
þannig, að alt fór vel. Menn geta
gert sjer í hugarlund, hvernig
tilfinningar bærast í brjósti þess
manns, sem eftir þriggja daga
ferð á eilífri fönn, stendur alt í
einu á Hveravöllum, þar sem
grasið er grænt og grundin heit
og notaleg undir fótum manns.
Alt í kring sýður og bullar í heit-
um hverunum, og þar getur mað-
ur á svipstundu velgt upp mat-
I tjaldstað á fönn.
HEMBEMTSPRENT
BANKASTRÆTI 3 REYKJAVÍK SÍMI 635
PRENTSTOFA HEFTISTOFA
HÖFUM ALLSKONAR SKRIF- PRENT- OG LÍM-PAPPÍR, KARTON, NAFN-
SPJÖLD (HANDGERÐ OG VENJULEG) í MISM. STÆRÐUM OG GERÐUM