Fálkinn - 23.05.1931, Qupperneq 10
10
PÁLIINN
Hinn 31. þ. m. eru 15 ár liðin, síð-
an .aðalsjáorusta heimsstyrjaldar-
innar var háð við Jótland, milli
Þjóðverja og Breta. Þann dag láta
Þjóðverjar nýjan bryndreka hlaupa
af stokkunum, þann stærsta sem
þeir hafa smíðað síðan stríðinu
lauk. Verður það að ýmsu leyti full-
komnasta herskip, sem smíðað hef-
ir verið í heiminum, búið öllum
nýjustu tískutækjum og á að stand-
ast betur atlögur, en hin stærstu
skip Breta, „Rodney“ og „IIood“. í
sambandi við þetta afmæli er rjett
að birta myndir þær, sem sjást hjer
til vinstri. Önnur myndin sýnir
þýska beitiskipið „Seyditz“ eins og
það var útlits eftir orustuna. Var
það mjög illa útleikið og stórt gat
eftir lcúlu á annari hliðinni, eins og
myndin sýnir. Á hinni myndinni
sjest holan sjálf; er lu’in ekkert smá-
ræði, heldur líkust hellismunna.
Myndir þessar hafa ekki verið birt-
ar opinberlega fyr en nú alveg
nýlega.
Japanar eru í flestu frábrugðnir
Evrópuþjóðunum, þó að þeir í nær
heila öld hafi reynt eftir megni að
semja sig að siðum þeirra í flest-
um efnum. Einkum er það til sveita,
að fornir þjóðsiðir og hættir haldast
enn í dag, bæði hvað snertir híbýla-
háttu og búnaðaraðf'erðir. 1 borgun-
um verður að vísu annað uppi á
teningnum. Stórborgarstrætin í Jap-
an líkjast borgarstrætum vestur-
landa; byggingarlag húsanna er líkt
og sporvagnar og bifreiðar þjóta
fram og aftur um strætin. Flest fólk
hefir sama klæðaburð og Evrópu-
fóllc, en þó sýnir myndin, hjer til
hægri, að svipurinn á götulífinu er
annar en hjá vestrænum þjóðum.
Myndin er tekin á Ginzagötu í
Tokíó á fögrum vordegi. Er það að-
algata borgarinnar■
: ' : '
I
fC ' ' ' ^ 'v
Mi
Bústaður forsætisráðherrans enska
er í Downing Street nr■ 10 í London,
en auk hans hefir ráðherrann til
afnota sveitabústað, skamt frá
London, er nefnist „Chequers". Þar
er ráðlierrann í tómstundum sínum
og þangað býður hann merkuslu út-
lendum gestum, sem að garði bera.
Er oft skrafað um málefni sem al-
heim varða á „Chequers“ en ekki
síst varð staðurinn frægur á ófriðar
árunum, í forsætisráðherratíð Lloyd
George, sem var þarna öllum stund-
um, sem hann mátti við koma. Um
þessar mundir er von á þýska kansl-
aranum og utanríkisráðherranum í
heimsókn til Englands og verða þeir
meðal annars gesiir Ramsay Mac
Dinalds á „Chequers“ í þeirri ferð.
Er mynd af þessum stað lijer til
vinstri. Ilver veit nema gert verði
nýtt samkomulag með Bretum og
Þjóðverjum undir þessu þaki bráð-
lega?