Fálkinn - 23.05.1931, Qupperneq 11
F Á L K I N N
11
Þótt víða sjeu notaðir lit-
skrúðugir þjóðbúningar og
fallegir, svo sem í Noregi,
Svíþjóð, Suður-Þýskalandi
og slavnesku löndunum í
Evrópu, er talið að hvergi
sjeu þjóðbúningarnir eins í-
burðarmiklir og á Spáni. Á
mgndinni hjer til vinstri
sjást tvær hefðarfrúr í skart-
búningi á leið i samkvæmi.
En spgrjum ungu stúlkurn-
ar hvort það muni vera
þægilegt að ganga í svona
klæðum.
I St. Petersburgh í Florida
er eitt skrautlegasta sjóbað
í heimi, þar sem auðkýfing-
ar hafast við í frístundum
sínum. Myndin til hægri er
þaðan.
Kvenfólk í Englandi og Skotlandi hefir áirlega lcappmót í hock-
egleik sín á milli, og er þetta viðburður, sem fylgt er með mikl-
um áhuga. Myndin sýnir skozka flokkinn þegar hann er að
ganga inn á leikvöllinn, er siðasta kappmót var haldið. Gengur
hljóðfæraflokkur með „bag-pipes“ í fylkingarbroddi.
Myndin hjer að ofan er úr síðustu kvikmynd Chaplins „City
Lights“, sem nú er verið að sýna í fleslum stórborgum erlendis.
Hefir mynd þessi vakið afar milda athygli, ekki síst fyrir það,
að Chaplin gerir sjer ekki eins mikið far og vant er, um að
vera hlægilegur, en leikur hans er sagður töfrandi eigi að síður.
1 norðlægari löndum eru það liljurnar, sem mest er selt og
keypt af, fyrir páskana. En suður i Róm kaupa menn pálma til
þess að skreyta híbýli sin með á páskunum og sýnir myndin
pálmasala á torginu þar.
Myndin hjer að ofan sýnir hve snöggum umskiftum vorvind-
arnir og sólin valda. Hún er tekin suður i Alpafjöllum og sýnir
útsprungin vorblóm neðan við fannhjarnið.