Fálkinn - 15.03.1961, Page 7
NbURINN
gáfu af „Tristian og Isolde" eftir Wagn-
er. — Bernhard Shaw varð nú listdóm-
ari við „The World“ og á árunum 1885
-—89 skrifaði hann fjölda greina um all-
ar helztu listsýningar í London og hug-
leiðingar almennt um listir. Síðar varð
hann einnig hljómleikadómari blaðsins
og fékk þá tækifæri til að lýsa aðdáun
sinni á andagift Wagners. í einni af síð-
ustu greinunum, sem William Archer
skrifaði, segir hann ýmsar smásögur af
sér og Shaw í gamla daga. Þ. á m. segir
hann, að þegar Shaw var blaðamaður
við ,,The World“ hafi útgefanda blaðs-
ins gramizt eitthvað, sem Shaw hafi
skrifað og sent honum langt og neyðar-
legt skammarbréf. Shaw þaut að ritvél-
inni sinni og prjónaði langt, fyndið og
ósvífið svar, sem hann sýndi Archer.
Archer benti honum vinsamlega á, að
ef hann sendi þetta bréf, mundu dagar
hans við blaðið vera taldir. En tveim-
ur dögum síðar kom Shaw sigrihrós-
andi til Archer og sýndi honum afsök-
unarbréf frá útgefandanum. Bréfið end-
aði þannig: „Einasta ástæða þess, að
ég iðrast ekki þess, sem orðið er, er
sú, að ég hefi haft það upp úr því, að
fá svo ljómandi skemmtilegt bréf frá
. yður.“
Árin 1880—90 voru mestu byltingar-
tímarnir í lífi Bernhard Shaw. Hann
gerðist þá jurtaæta, bindindismaður á
vín, hatursmaður við tóbak en fyrst og
fremst sósíalisti og ákafur félagsmað-
ur í „Fabian Society“, sem hafði verið
stofnað 1884, og fyrir hans tilstilli fór
að gefa út hinar frægu „Fabian Essays“.
Þessi óframfærni ungi maður, sem hafði
kosið það helzt að þegja á mannafund-
um hingað til, gerðist nú hinn slyng-
asti ræðumaður og stóð enginn honum
á sporði í tilsvörum. Hann talaði fyrir
verkamenn og stúdenta og einu sinni
hélt hann erindi fyrir þvottakonur í
London. Að eigin sögn hélt hann beztu
ræðuðna sína í Hyde Park í London
„í ausandi slagviðri — fyrir ritara fé-
lagsins, sem hafði beðið hann að tala
og sex lögregluþjóna, sem voru sendir
til að hafa gát á honum“. — Þrátt fyrir
ólíka ytri framkomu, hefur Bernhard
Shaw jafnan haft mörg einkenni gatna-
mótaprédikarans.
Árið 1894 dó Edmund Yates ritstjóri
„The World“ og nú hætti Shaw list-
dómara og tónlistardómarastörfum. Árið
eftir varð hann leikdómari við „Satur-
day Review“, sem Frank Harrys gaf út.
Skrifaði hann langa greinaflokka í það
blað til vorsins 1898, og hafa greinarn-
ar verið gefnar út í tveimur bindum
undir heitinu „Dramatic Opinions“, og
mun hún vera sú frægasta og skemmti-
Framh. á bls. 28.