Fálkinn


Fálkinn - 15.03.1961, Blaðsíða 31

Fálkinn - 15.03.1961, Blaðsíða 31
— Ó, herra, þér hafið þá ekki heyrt það, snökkti hún. — Heyrt hvað? — Ungfrú Alistair, sá blessaði engill ... það var ölkelduvatnið hennar .. . það, sem hún er vön að drekka á hverju kvöldi .. . Vesalings kapteinninn er al- veg utan við sig, alveg sturlaður.. 1 nn tók skakka flösku af hillunni í myrkr- inu. Læknirinn kom, en hann kom of seint. Um leið komu Macfarlane orð hennar í hug: Ég hef alltaf vitað að eitthvað hræðilegt bíður Maurice. Ég hlýt að geta hindrað það, — ef einhver getur það þá . . . En jafnvel hún gat ekki leikið á ör- lögin. Hvílík glettni örlaganna, að hún, sem ætlaði að frelsa hann, skyldi verða það, sem olli tortímingu hans. Gamla þjónustustúlkan hélt áfram að snökkta: — Elsku, litla Alistair ... Eins og hún var alltaf blíð og góð, alltaf hugsaði hún um þá, sem áttu bágt, hún gat aldrei séð neinn þjáðst ... Hún hikaði dálítið, en sagði síðan: — Mynduð þér kæra yður um að sjá hana, herra? Mér skildist, að þið hefðuð þekkst fyrir löngu síðan ... fyrir löngu, löngu síðan, sagði hún ... Macfarlane fylgdist með gömlu kon- unni upp stigann og inn í herbergið fyr- ir ofan dagstofuna, sem söngurinn hljómaði frá daginn áður. Efstu rúðu- glerin voru lituð. Þau vörpuðu rauðum ljóma á höfðalag rúmsins. Sígaunastúlka með rauðan klút á höfðinu. Vitleysa, auðvitað voru það taugarnar, sem hlupu með hann í gönur . .. í síðasta sinn horfði hann fast á Alistair Haworth ... IV. — Það er stúlka, sem vill gjarnan tala við yður, herra. — Hvað segið þér? Macfarlane leit utangátta á veitingakonuna. — O, afsakið, ungfrú Rowse ... ég heyrði ekki .. . ég sá víst sýnir. — Ekki þó í alvöru, herra. Það er víst annars undarlegt að horfa á mýrina, þegar rökkrið fellur á. Það er bæði „Hvíta stúlkan“, „Smiður fjandans“ og „Sjómaðurinn og Sígaunastúlkan“. — Hvað segið þér? Sjómaður og Sí- gaunastúlka? — Það eru víst bara munnmælasagn- ir. Það var draugasaga, sem sögð var í mínum ungdæmi. Ógæfusöm ást fyrir mörgum árum síðan. En þau hafa reynd- ar ekki sézt lengi . .. — Ekki það? Ekki skyldi mig undra, þótt þeirra yrði vart aftur ... — Guð, herra! Það er alveg maka- laust upp á hverju þér getið fundið að segja. En hvað með ungu stúlkuna þarna niðri? — Hvaða ungu stúlku? — Hana, sem bíður eftir yður í for- stofunni. Ungfrú Lawes sagðist hún heima. — Ó! Rakel. Hann fann til undarlegs spenn- ings innra með sér, fann, hvernig at- hygli hans var beint inn á aðrar brautir. Hann hafði gægzt inn í annan heim, framandi heim. Hann hafði alveg gleymt Rakel, sem ein tilheyrði þessu lífi. Það var raunverulega eins og eitthvað þvingaði hann til þess að missa sjónar á því sem hann hafði séð, samtímis því sem sál hans hvarf aftur til hins raun- verulega heims, sem aðeins hefur þrjár víddir. Hann opnaði dyrnar á forstofunni. Rakel kom á móti honum og horfði á hann með sínum brúnu og heiðarlegu augum. Eins og maður sem vaknar aft- ur af draumi, fann hann heita hamingju- strauma fara um sig. Hann var lifandi. — Það er aðeins eitt líf, sem maður getur verið viss um, — og það er þetta ... tf.ótf'C Akrifar FRÁ sjónarhóli stjörnuspekinnar Kæra Astró. Vinsamlegast langar mig að biðja þig að lesa úr stjörnun- um framtíð mína. Ég er fædd 15. júní 1940 kl. 0.15. Ég veit ekki hverjar upplýsingar fleiri ég á að gefa, en ég er ógift, en ákaf- lega ástfangin. Hann er fædd- ur 14. nóvember 1937. Hvern- ig heldurðu að það fari? Ég vona að þú getir eitthvað leyzt úr vandamálum mínum, með fyrirfram kærri þökk, fyrir skemmtilegan þátt og fjölbreytni í blaðinu. Lolló. P.S. er ekki hægt að fá svarið skriflegt og bréfið ekki birt? Vanti borgun láttu mig vita. Svar til Lolló. Við ákváðum að svara bréfi þínu í blaðinu því ekkert heimilisfang fylgdi bréfi þínu þannig, að við gátum ekki svarað þér beint. Hægt er að fá lesningu í svipaðri mynd af ævisjám eins og birast í Fálk- anum, beint það er að segja ekki birt í blaðinu, en þá þarf að senda kr. 200,00 gjald á skrifstofu Fálkans, Hallveig- arstíg 10, í ábyrgðarbréfi merktu Astró „einkamál“. Þegar ég setti upp kort þitt, sá ég strax, að þú ert nú und- ir mjög sterkum áhrifum frá Venusi. Þess vegna ertu mjög næm fyrir öllu slíku sem að ástarmálunum lýtur. Mjög athyglisverð eru áhrif plánet- anna í Nautsmerki þínu og Krabbamerkinu. Hið fyrr- nefnda geymir þrjár plánet- ur þínar þar á meðal Júpiter, en venjulega er hann tákn um vel efnaðar manneskjur, þar sem hann er vel settur. Þér er einnið sérlega annt um fögur málverk og myndir. í hinu síð- arnefnda merki, Krabba- merkinu, eru einnig sterkar afstöður, en það merkir að þú sért mikið gefin fyrir að vera heima, og kappkostar að halda öllu til haga þar. Tvíburamerkið gerir þig nokkuð tvískipta í skoðun og verki þannig að þú átt nokk- uð erfitt með að ákveða þig. Fólk undir þessu merki segir oft það í dag, sem er algjör- lega andsnúið því sem það sagði í gær. Þetta merki ger- ir þig fljóta í hugsun og fljóta að átta þig og skilja. Svo maður víki að aðal spurningunni þinni um hvern- ig ástarævintýri þínu muni reiða af, þá verð ég að segja, að mér er ómögulegt að sjá nægilegt samræmi milli ykk- ar til að nægi til hjúskapar. Þegar litið er á sólmerki ykkar kemur í ljós að þú ert opinská, en pilturinn er dul- úðugur og það eykst til muna þegar stundirnar líða fram. Nú sem stendur virkar þessi afstaða hans sem skemmtana- fýsn og jafnvel sem vínhneigð hjá honum, en þessi áhrif breytast með aldrinum og verða mikið fínni og háleitari. Svipað ósamræmi gildir einnig milli mánaafstaða ykk- ar. í þínu korti er máninn í Vogarmerkinu, sem dregur mjög úr tvískinnungsáhrifum frá Tvíburamerkinu í fari þínu og gefur þér aukið jafnvægi og næma tilfinningu fyrir því, sem kallast réttlæti, þannig að þú ert fljót að gera athuga- semd ef þér finnst einhver hljóta of mikið eða lítið. í korti piltsins er Máninn í Fiskamerkinu í samstöðu við Satrún. Þetta virkar þannig, að hann er ósjálfstæður og svartsýnn. Þessi afstaða hneig- ist einnig mjög til neyslu örf- andi drykkja. Pilturinn verð- ur oft að þiggja ráð hjá öðr- um og getur sjaldnast tekið nokkra verulega ákvörðun án samráðs við aðra. Hins vegar er einn bezti kostur þessarar tunglafstöðu sá, að pilturinn er samúðarfullur og mundi vera góður eiginmaður réttri eiginkonu. Síðasta afstaðan, sem til umræðu er í sambandi við ástarmálin, eru afstöður Venusar, en þær eru einnig ó- hagstæðar. Þau öfl, sem þarna eru að verki mundu reynast þér þung byrði, þegar fram í sækir, því hrifningaráhrif Venusar líða hjá. Árekstrar og deilur yrðu uppskeran. Eftir þrjú ár muntu hitta mann, sem fæst við ritstörf og samband ykkar ætti að geta verið samræmiskenndara en þessi ævisjá gefur til kynna. Beztu makar, sem þú átt völ á eru fæddir undir Vogar- merkinu og Vatnsberamerk- inu. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.