Fálkinn - 15.03.1961, Qupperneq 16
LEIFTUR
Ingimar Johannsson eða Ingó, eins
og hann er kallaður, æfir sig nú af
miklu kappi. Hann og núverandi
heimsmeistari í hnefaleikum, Floyd
Patterson, hittast um miðjan þenn-
an mánuð. Nú veit Ingó hver voru
mistök hans síðast. Floyd vonar, að
hann geri þau aftur. „En honum skal
ékki verða að óska sinni,“ fullyrð-
ir Ingó.
Franski listmál-
arinn Bernard
Buffet sýnir ein-
göngu myndir
af eiginkonu
sinni, Annabel,
á hinni árlegu
sýningu sinn í
París. Síðasta
hálfa árið hefur
hann málað
hana í 30 mis-
munandi stell-
ingum.
Það getur oft verið skemmtilegt að
skoða gamlar myndir og skyggnast
andartak inn í fortíðina, ekki hvað
sízt þegar heimsfrægt og nafntogað
fólb á í hlut. Sennilega getur enginn
gizkað á, hver er á myndinni hér að
neðan, en það er engin önnur en
kvikmyndaleikkonan og þokkadísin
Sophia Loren. Þegar þessi mynd var
tekin hét hún raunar aðeins Sophia
Scicolone, var fátæk stúlka í Neapel,
og lét sig ekki einu sinni dreyma um
frægð og frama í hinum stóra heimi.
Ungfrú Frakkland 1961. Hún heitir
Michelene Wargnier. Kosningin var
talsvert söguleg, þar sem fyrst hafði
verið kjörin önnur, Luce Auger. Það
kom nefnilega í ljós, að Luce átti
bæði mann og barn og var þar að
auki of ung.
Sjuke Diekstra frá Hollandi sigraði
í listhlaupi á Evrópueistaramótinu í
skautum, sem fram fór í janúarm. s.l.
Staðurinn, sem við lýsum að þessu
sinni með mynd og fáeinum línum, er í
þjóðbraut milli Norður- og Suðurlands
og þar af leiðandi töluverður ferða-
mannabær, einkum á sumrin.
Fyrir nokkrum árum var þessi stað-
ur aðeins lítið sjávarþorp, en er nú
orðinn myndarlegur og stöðugt vaxandi
útgerðarbær með á fimmta þúsund íbúa
og að sjálfsögðu rafmagni og öðrum
nýtízku þægindum.
☆
íbúarnir voru hér áður fyrr hvort
tveggja í senn, sjómenn og bændur, en
seinustu árin hefur landbúnaðurinn
verið lagður á hilluna. Kartöflurækt var
þá með miklum blóma og kartöflur
staðarins voru frægar um allt land fyrir
gæði. Kartöfluræktin hefur stórminnk-
að seinustu árin.
Eftir að vertíð var lokið á vorin, var
tíminn notaður til að plægja og setja í
garðana Kálgarðarnir blómstruðu milli
húsanna á sumrin en á veturna voru
þeir kuldaleg og nakin moldarflög.
Karlmennirnir brugðu sér — og bregða
sér enn — á síldveiðar fyrir Norðurlandi
á sumrin, en á meðan óx og dafnaði
kartaflan í garðinum heima. Konur og
börn sáu um að halda garðinum við og
reita úr honum arfann. Á kvöldin voru
kýrnar sóttar inn fyrir bæinn til þess
að mjalta heima í fjósi.
Þannig var þetta, en nú hefur borg-
arbragurinn gjörbreytt lífsvenjum íbú-
anna.
☆
Á þessum stað eins og flestmn öðr-
um verstöðvum er mikið um harðgerða
og dugmikla sjómenn. Margir þeirra
hafa sótt sjóinn af áhuga og eljusemi
og oftar en einu sinni komizt í hann
krappan Erfið hafnarskilyrði háðu út-
veginum lengi vel, en nú hefur mynd-
azt örugg og rúmgóð höfn. Hafnargerð-
in er aðeins einn liður í þeim miklu
framkvæmdum og framförum, sem orð-
ið hafa þarna síðustu árin. Þeir, sem
koma á þennan stað í fyrsta sinn, geta
varla gert sér grein fyrir þeirri öru
þróun, sem þar hefur orðið seinustu ár-
in, meðan bærinn breyttist í skjótri
svipan úr ofurlitlu sjávarþorpi í stóran
og athafnamikinn útgerðarbæ.
☆
Fyrir nokkrum árum var ein stærsta
verksmiðja ríkisins reist á þessum stað.
Framleiðsla verksmiðjunnar gerir bygg-
ingarframkvæmdir hér á landi auðveld-
ari og ódýrari.
Enn er ónefnt það sem gert hefur
þennan stað einna frægastan á seinni
árum. Það er þátttaka hans í einni grein
íþrótta, sem vakið hefur þjóðarathygli
og hlotið almenna viðurkenningu.