Fálkinn


Fálkinn - 19.04.1961, Page 22

Fálkinn - 19.04.1961, Page 22
Herb Stillman var að stilla heyrnar- tækin og hátalarann í útvarpsstöðinni á Mountain View Airpark. Þetta var seinlætisstarf, en Herb hafði það á hendi. Strákarnir á flugvellinum voru vanir að erta hann með því að hann yrði gamall fyrir tímann, af öllu erg- elsinu við stillinguna á svona stórri stöð. En Herb lét það ekki bíta á sig. Hann hélt áfram að skrúfa og skrúfa, þolin- móðari en allt sem þolinmótt er. Og nú heyrði hann allt í einu kallið aftur, greinilegar en áður. — Hjálp! Gerið svo vel að hjálpa mér! Það var drengur sem kallaði, og hann var hræddur. Hræddur við hæðina, hræddur við að vera aleinn þarna uppi. — Pabbi er veikur — HJÁLP! Ég veit ekki hvernig á að stýra flugvélinni. Herb varð agndofa dálitla stund. Barn? Hafði hann heyrði rétt? Var drengurinn aleinn uppi í flugvél? Herb snéri sér aftur að Don Pierson, ljós- hærðum ungum manni. — Don, náðu í hann Swanson. Fljótt! Pierson stóð upp og fór fram að dyr- unum. Dokaði við í dyrunum og spurði: — Ertu viss um að þú viljir fá Swan- son hingað? — Já. Mig langar ekki beinlínis til að ónáða hann. En hann er húsbónd- inn hérna. Nú heyrðist röddin aftur í gjallar- hornunum og heyrnartækjum Herbs — kveinandi, úrvinda af hræðslu: — Gerið þið svo vel að hjálpa mér! Einhver verður að hjálpa mér! Herb greip taltækið og sagði rólega: — Þetta er Mountain View Radio. Við heyrum til þín. Segðu okkur hvar þú ert. Hin röddin hélt áfram að kalla á hjálp og svo heyrðist grátur. Herb reyndi ekki að kalla til hans aftur. Hann vissi að það var árangurslaust. Meðan hann gat heyrt til drengsins, var tækið hans stillt á sendingu og gat ekki tekið við sendingum frá turninum. Dyrnar bak við Herb opnuðust og hann heyrði þungt og hratt fótatak Swansons. Swansons, sem ekki hafði neitt vit á flugi, nema að það var góð atvinna að selja flugmönnum benzín og leigja þeim skýli. — Hvaða bull er Þetta um strák uppi í flugvél? Hvaða bjálfi hefur stjórnað því? Hann drepur sig vitanlega. í þessu þagnaði hátalarinn. Herb greip taltækið í flýti. — Halló! sagði hann. — Þetta er Mountain Veiw Radio. Geturðu heyrt til mín? Nú heyrðist rödd drengsins aftur, hrædd, en ekki alveg eins örvæntandi. — Já, ég heyri í yður. Getið þér hjálp- að mér? — Halló, halló! Þetta er Mountain View aftur, kallaði Herb. — Ég get ekki talað við þig, þegar þú þrýstir á hnapp- inn á taltækinu þínu. Þú verður að sleppa honum þegar þú talar ekki sjálf- 22 ur. Því annars heyrir þú ekki til mín. Skilurðu það? — Já, ég skil það. Hann pabbi sagði mér það áðan — áður en hann varð veikur. Og ég mundi það núna. — Hver ertu? Og veiztu, hvar þið eruð? — Nei, ég veit ekki hvar við erum. Við höfum villzt. Swanson þreif í öxlina á Herb. — Reyndu ekki að láta hann lenda hérna! Ég vil ekki hafa, að smástrákar drepi sig og mölvi vélar á mínum flug- velli. Heyrðirðu það — taktu hann ekki niður hérna. Það fór hrollur um Herb og hann reyndi árangurslaust að kveikja sér í vindlingi. — Halló, kallaði hann í taltækið. -— Eruð þið einir um borð? Ég meina, ekki aðrir en þú og pabbi þinn. — Já, svaraði hann, — við erum ein- ir. En hann pabbi stillti stýrið þannig að vélin flýgur sjálf, áður en hann varð veikur. Og hann sýndi mér hvernig ég ætti að nota talsambandið. Herb horfði á hina mennina tvo. Itfauðle FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.