Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 13

Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 13
JÖN JÓNSSON — ómissandi á bryggjunni í brimrótinu og skipverjar héldu sér og héngu í reiðan- um og reyndu að standa af sér ólögin. Skipið tók nú mjög að brotna. Allt í einu heyrðist yngsti skipverjinn, Eiður Benedikts- son, kalla: „Ég ætla að reyna að komast í land með línu.“ Félagar hans bundu síðan um hann línu og Eiður kast- aði sér út í æðandi brimið og reyndi að krafsa sig að landi. Er hann var kominn nokkuð áleiðis, tók útsogið hann og kastaði honum fram að skipinu, en skipsmenn drógu hann um borð. Ekki gafst Eiður upp við svo búið og náði landi í þriðju atrennu, þá orðinn meiddur' og marinn. Honum tókst að f esta línuna í landi, og eftir það lásu skip- brotsmenn sig í land einn af öðrum. Það, sem bjargaði þeim úr heljargreipum, var þrek og karlmennskulund yngsta skip- verjans, Eiðs Benediktssonar. Eftir að hafa lesið frásögn Guðmundar,fórum við nokkru áður á fund Eiðs og hittum hann að afloku kaffi, þar sem hann borðar. Erindið var að fá hann til að segja frá strand- inu. Eiður sagði, að það væri nú búið að skrifa nóg um það. Svo hefði komið maður hérna fyrir nokkru og ætlað að skrifa, en ekkert hefði hann séð af því. — Hvort hann væri Akur- eyringur? — Nei, nei, Vestfirðingur, fæddur og uppalinn á ísafirði. Flutti norður um tvítugt. — Hvers vegna? — Meiri vinna og fiskur í Eyjafirðinum. Og svo barst talið að sjó- sókn fyrr og nú. Eiður sagði frá því, er hann var á skipi, sem réri frá Hnífsdal, þá ung- ur maður. Þeir fóru 130 róðra yfir úthaldið, og þegar búið var að gera upp, var kaupið 137 krónur. Hundrað krónur fóru í kostnað og þeir þótt- ust heppnir að hafa þrjátíu- og-sjö-kallinn. Eiður varð skipstjóri árið 1906 og stundaði sjóinn allt þar til fyrir þrem árum. „Ein- hverntíma verður maður að hætta,“ sagði hann. Og þarna á Strandgötunni ræddust þeir við Halldór og' Eiður, þegar við kvöddum, og þeir voru báðir svo vissir um að tolla ekki á filmu, að það væri hreinn óþarfi að hafa fyrir að smella af. í Skipagötunni er Hús- gagnaverzlunin Kjarni, og þegar okkur bar að, var verzl- unarstjórinn, Jón Níelsson, fyrir utan að pakka inn ein- hverskonar borði. Við spurðum Jón, hvort hann seldi mikið af húsgögn- um þessa dagana, og hvort menn borguðu skuldir sínar. Jón sagði, að það seldist alltaf nokkuð af hinu og þessu. Dagamunur væri að vísu á HAUKUR SIGURÐSSON — fjörðurinn dauður í ár INGÓLFUR INGÓLFSSON — gott að selja Fálkann þessu. Suma daga væri dauft, en aðra mikið að gera. Fólk greiddi yfirleitt skuldir sínar skilvíslega, þó fyrir kæmi, að menn væru auralausir tíma og tíma. — Koma svo ekki kunn- ingjarnir og spjalla við þig? — Jú, það kemur oft fyrir. Og svo tók Jón aftur til við innpakkninguna, því að mjólk- urbíllinn átti að taka borðið, og hans var von á hverri stundu. Og svo lá leiðin niður á bryggju. Þar lá Esjan, og upp- og út- skipun í fullum gangi. Þar hittum við Jón verkstjóra. í hugum þeirra, sem hafa komið á skipi til Akureyrar og fylgzt með því, sem fram fer, er Jón óaðskiljalegur hluti umhverfisins, enda hefur hann lengi stjórnað öllu, sem fram fer á bryggjunni þegar um af- greiðslu skipa er að ræða. Við byrjuðum að stríða Jóni á því, að hann væri orðinli gráhærður, en hann sagði að það væri betra en að hafa skalla. — Verður verkfall? spurð- um við. Nokkrar litlar svipmyndir frá sólskinsdegi á Akureyri I

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.