Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 20
Slgrún Ragnarsdó'ttir krýnir Ungfrú ísland 1961.
Úrslit fegurösrsamkeppninnar
1961 voru kunnjjjrS aS Hótel
Borg laust fyrir klukkan tólf í
gærkveldi. Ungfrú ísland 1961
var kjörin Maria Guðmundsdóttir,
í öðru sæti varð Kristjana Magn-
úsdóttir, sem /lýtur tiiilinn Ung-
frú Reykjavík 1961, þriðja varð
Kolbrún Kristiánsdóttir, númer
fjögur varð Þuríður Elín Magnús-
dóttir og í fimiríta sæti varð
Anna l-larðardóttir, sem jafn-
framt var kjörin bezta Ijósrnynda-
fyrirsa-fan 1961.
Hin nýkjörna fegurðardrottn-
íng íslands, María Guðmundsdótt-
ir, er nitján ára gömul og starf-
ar sem skrifstofustúika hjá húsa-
meistara ríkisins. María hefur
gert víðreist, hún dvaldist í
Þýzkalandi i vetur við þýzku-
nám í Heidelberg, en áður hefur
hún dvalizt i Englandi. María
hefur auk þess ferðazt um Norð-
urlönd, Holland og Frakklai d og
nú á hún í vændum för til Kali-
forniu til þess að taka þátt í
keppninni um titilinn Miss World.
María hefur mikinn hug á að ger-
ast tizkusýningarstúlka og
draumaborg hennar er þar af
leiðandi París.
Ungfrú Reykjavík 1961, Krist-
jana Magnúsdóttir, er tuttugu
ára og starfar sem símamær hjá
Loftleiðum. Kristjana hefur ver-
ið eitt ár í Ameríku og annað í
Englandi, og nú á hún í vændtrm
för til Florida, til þess að taka
þátt í Miss Universe-keppninni.
Draumur Kristjönu er að komast
til Frakklands og auk þess lang-
ar hana til þess að geirast flug-
freyja.
Þuríður Elín Magnúsdóttir (4), Kristjana Magnúsdóttir (2), M*ría Guí
mundsdóttir (1), Kolbrún Kristjánsdóttir (3), Anna Harðardóttir (5).