Fálkinn


Fálkinn - 01.11.1961, Qupperneq 6

Fálkinn - 01.11.1961, Qupperneq 6
Stimplavörurnar komnar Vasastimplar Plötustimplar Verðstimplar Dagsetningastimplar Stafrófssett Stimplapúðar Stimplastatíf. ALLSKONAR SMÁPRENTUN. Alls konar gerðir af stimplum o. m. fl. Sækjum, sendum. STIMPLAGERÐIN Hverfisgötu 50 . Sími 10615 Heildsölubirgðir: H. A. TULINIUS WINDUS fæst í mjög þægilegum og smekklegum umbúðum. WINDUS léttir hús- móðurinni störfin. Þessi viðurkenndi þvottalögur er liand- hægur og fljótvirkur. Hreinsið gluggana, speglana og baðflisarn- ar með WINDUS. Gorgeir og hofmóður. Kæri Fálki. — Hvernig er það. ætla allir montrassar á íslandi að fara að gefa út æfi- sögur sínar? Er ekki komið nóg af öllu þessu helvitis grobbi? Mér finnst taka út yfir allan þjófabálk, þegar ýmsir mætir menn ætla að fara að metast um kvennaför liðinna ára. Svo ætlar víst einhver kona að gefa út æfi- sögu sína, sem œun fjalla um ástir og ævintýri, sem hinir og þessir hafa tekið þátt í af miklum gleðskap og kátínu. Hvernig væri þá að við sjó- mennirnir tækjum okkur til og skrifuðum um öll okkar ævintýri. sem við höfum lent í hér og hvar? Ætli það yrði ekki vinsælt? Ó. Ó. Svar. Prýöisgóö lmgmynd. Hrindið henni strax í framkvæmd og viö erum þess fxdl vissir aö ævintýri þessi munu veröa vin- soelt lestrarefni, einkum ef þau veröa myndskreytt. Gaul og raul. Reykjavík 5. okt. 1961. Hvað á ég að gera til þess að venja dóttur mína af ein- um ósið, sem mjög fer í taug- arnar á okkur hér á heimil- inu. Hann er sá, að hún getur aldrei á sér setið að opna út- varpið og stilla það sem hæst, þegar þessum árans dægur- lögum er útvarpað. Þesi sí- felldi glymjandi ætlar alveg okkur lifandi að drepa og við getum ekki ráðið neitt við hana, enda verður engu tauti komið við stelpur á hennar aldri, segir faðir hennar. Getið þið ráðlagt okkur eitt- hvað í þessum efnum? Ein áhyggjufull. Svar. Hérna í gamla daga var sagt, ef stúlkur voru óþekkar, œtti aö: Loka þœr úti og lemja þær. ViÖ þetta er aöeins einu aö bæta, vizkan vex meö aldrinum. Þvi er bezt að láta þetta vera um sinn og sjá til, hvort þetta lagast ekki.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.