Fálkinn - 01.11.1961, Síða 22
Lausn á verðlaunakrossgátu nr. 39
, o FT fí fíT B3T KJ
H Ö T 6 PA y » J) F R L L
fíLfíRÚMfíRRKUfí
U Cr L fl L / M / R R 5 T
5 E LF05SÖVfíB/
TRfíKTefífí/ T fíR
_______\fl-0 fí y U /V £ S fC-O'K fí
Ö F E R 5 K fí R R fíÞ Y N K U R fí
M£L-fíRufí/t)PuKfí& - / M
E/ TURRMMBO R U RÖ SKfí
kMfíÐ Ufífí W'O tf'URfí/< T / R
U / R F / CT) fí /C / 3 ■ 7? E ) T /
\/ tf fí Ætf.fl U T H £ y MS K U f? s
\fí//U£/VCri?fíE / L / F U R U M
M ■ wy T/D HÖ V fí e/ /C R'fí
BfíUJPiVOTGrNflB/ Ð / N fl
O/C R fl P Ö u7) UflFL MAT) U R
t>BSTUL-DUR/)U'fíE£LH/
F /2 E y R ‘ V Æ L / L fl /? T / /Z /V
fi fl L L /FOBflSL fl/JO/V U fí
ú UV T LÖ T UT T U fl / H Cr F fl
5T uT T Þ fí fl A R F / M L fí R "
O Fr U Cr U M S fl T T fí /Y1 U H A/ ♦
Geysimargar lausnir bárust við
verðlaunakrossgátu númer 39 og að
venju var dregið úr réttum lausnum.
Verðlaunin hlýtur að þessu sinni
Steinunn Sigurðardóttir, Heimagötu
22, Vestmannaeyjum. Rétt lausn birt-
ist hér að ofan.
PRENTMYNDAGERÐIN
MYNDAMOT H.F.
MORGUNBLAÐSHÖSINU - S{MI 17152
Erfðaskráiffi
Frh. af bls. 18
25 Langham Court, Abbey Road í Lon-
don.
Hver var Giuseppe Aldindi? Við
horfðum hver á annan og okkur rann
kalt vatn milli skinns og hörunds. Við
kinkuðum kolli til Burfords og skakk-
löppuðumst út á Strandstrætið. Guisep-
pe Aldini, hver var hann eiginlega? Sam
fór inn í almenningssímaklefa og fletti
upp í símaskránni. Jú, þarna var hann.
Guiseppe Aldini, 25 Langham Court,
Abbey Road N.W.S. Auk þess hafði
hann sjálfvirkan síma. Sam vildi, að við
hringdum hann upp, en ég og Alan
vorum á móti því. Við þurftum að kom-
ast að meiru varðandi hann, og eina
manneskjan, sem gat hjálpað okkur, var
Agatha, þjónustustúlkan. Við tókum því
leigubíl beint til íbúðar Elsu heitinnar.
Þegar Agatha opnaði dyrnar, virtist
hún vera hissa. Hún hafði aldrei áður
séð okkur alla þrjá saman. Við gengum
í einfaldri röð á eftir henni inn í stof-
una. Það var ekki sársauklaust fyrir
okkur að horfa á innskotsborðin tóm,
engin glös og engin blóm voru lengur
á þeim. Loksins var þögnin rofin af
Alan.
— Agatha, sagði hann, þú veizt, að
við höfum alltaf verið beztu vinir vesa-
lings frú Lamberts.
— Við munum að sjálfsögðu segja
upp íbúðinni, en við höfum ákveðið að
borga þér briggja mánaða kaup.
— Herra, sagði Agatha, mér hefur
skilizt, að herra Aldini ætli að hafa
mig áfram í sinni þjóðnustu.
— Herra Aldini? Hver er það? spurði
ég fremur hranalega.
— Herra Aldini hefur tekið íbúðina á
leigu. Hann er nýi húsbóndinn minn.
Hann kom hérna í gær ásamt herra
Burford.
— Hver er herra Aldini? hrópuðum
við allir í kór.
— Herra Aldini, sagði Agatha. Það
er herramaðurinn, sem var vanur að
koma hér á hverju sunnudagskvöldi.
FÉLÖG!
FÉLAGSHEIMILI!
Útvegum skemmtikrafta
og hljómsveitir.
Upplýsingar í símum
11029 og 14369.
SKEMMTIKRAFTAMIÐSTÖÐIN
Reykjavík.
22 FÁLKINN
í Englandi er ekki eins auð-
velt að borga húsaleiguna og
í ýmsum öðrum löndum, þar
sem menn geta borgað hana
í reiðufé og kvittað fyrir eða
bara gefið ávísun upp á húsa-
leiguna eða landsskuldina. Frá
örófi alda til þessa dags hafa
afnot af landskikum orðið að
borgast með kynlega táknræn-
um og jafnvel rómantískum
greiðslum. Til dæmis má nefna
þann sið að borga afgjaldið í
silfri, sem kallað var „reiðu-
silfur“, og er unnt að rekja
þessa venju aftur til Saxanna,
en þá kallaðist greiðsla þessi
„Rothe heyder“ eða fjártollur.
Á Marteinsmessu ár hvert
tekur hertoginn af Buccleuch í
mót ákveðnum greiðslum fyrir
þann rétt að fá að fara um
vegina á landareign hans með
kvikfé. Við sólarupprás hittast
bændurnir og ráðsmaður her-
togans við riddarakrossinn á
Knightlow Hill og kastar þá
sérhver búandi skildingum
þeim, sem hann skuldar.
(Skuldirnar nema svona frá
einu penny til tveggja shil-
linga) í holan stein, sem að
fornu var fótstallur riddara-
krossins. Um leið og hver mað-
ur kastar sínum peningi, hróp-
ar hann „reiðisilfrið er greitt“.
Ef menn greiða ekki „reiði-
silfrið“, liggja við þungar sekt-
ir, og eru menn sektaðir um
tuttugu shillinga fyrir hvert
penny, sem þeir skulda í hið
svokallaða „reiðisilfur". Ekki
færri en 25 hreppar verða að
láta eitthvað af hendi rakna
í sjóð þennan, en samt nemur
heildarupphæðin aðeins níu
shillingum og fjórum pensum.
Þegar athöfn þessari er lokið,
safnast allur hópurinn saman
á Dun Cow kránni í Stretton-
on-Dunsmoor og drekkur þar
minni hertogans í rommi og
heitri mjólk.
í Chingford í Essex hefur
annar og mjög kynlegur siður