Fálkinn - 01.11.1961, Page 33
„Það yrði áreiðanlega tekið vel á
móti þér“, sagði hann.
„Mundir þú taka á móti mér“, sagði
hún.
„Ef ég væri heima“, sagði hann.
„Segðu mér frá landinu þínu“, sagði
hún.
„Það er ekkert að segja“, sagði hann.
„Strönd og fjöll, gras og mold og grjót
— bara land“.
„Þú segir ekki vel frá“, sagði hún.
,,Ég veit ekki hvað þú ert. Kannski
ertu ekki neitt — bara fallegur og hef-
ur átt góða foreldra“.
„Kannski“, sagði hann.
„Ég segi ekki vel frá“, sagði hún, „svo
tala ég ekki nógu vel ensku“.
„Það er betra“ sagði hann. „Þú getur
talað spönsku. Þú ert ekki komin til að
tala ensku. Þú ert komin til að dansa
haitískan dans. Þar býr hvítt fólk, sem
mundi hampa þér, einmitt vegna þess
að þú ert ekki hvít og talar spönsku
en ekki ensku. Svona getur hvítt fólk
verið margslungið“.
„Ég þarf að vita, hvar landið þitt er“,
sagði hún.
„Ég skal sýna þér það næst þegar ég
hitti þig“.
„Hvenær ætlar þú að hitta mig?“
sagði hún.
,,Á morgun eftir hádegi“; sagði hann.
„Ég á vakt frá hádegi í dag og þangað
til“.
„Við getum farið á baðströndina“,
sagði hún og tók að naga hold hans.
„Þú skalt koma hingað“ sagði hún.
„Ekki á Rauða köttinn“.
„Verður þú á Rauða kettinum“, sagði
hann.
„Ekki þegar þú kemur“, sagði hún.
„Það er ánægjulegt að heyra“ sagði
hann.
„Þú skilur þetta ekki“, sagði hún.
„Horfðu í kringum þig í Havana. Hvers
vegna horfir þú ekki í kringum þig?“
Hún leit í augu hans og brosti að skiln-
ingsleysi hans
Eitthvað var að læðast að þeim. Nasa
vængir hennar titruðu. Þannig titraði
hún oft. Fyrst leit hún á hann stork-
andi, svo tóku nasavængir hennar að
titra og hvítar, reglulegar tennurnar
komu í Ijós. Það glóði á þær eins og
stál í sólskininu.
Gluggahlerarnir voru fyrir gluggan-
um á herbergi Lenu. Kaupmaðurinn
hennar í búðarholunni á móti seildist
bak við eyrað, tók stóra rauða blýantinn
og fór að reikna með hátíðlegan alvöru-
svip á andlitinu. Lena var ekki heima.
Hann hratt upp gluggahlerunum og sett
ist í kistuna, eins og hún hafði gert
fyrsta morguninn, sem þau áttu saman.
Hún hafði lofað að taka vel á móti hon-
um í þetta sinn, en það leit út fyrir. að
hann yrði að bíða eins og fyrri daginn.
Skyndilega læddist að honum grænleit
grunsemd. Honum varð litið á alvizku-
lega ásjónu heilags Antóníós í skraut-
lega glerrammanum. „Heilagur Antóníó
— getur það verið? Auðvitað getur það
NÝiUNG SEM GERIR AFRITUN
AUÐYELDARI EN ÁÐUR
]/eri£sLX
> AFRITARINN
SPARAR TÍMA, VINNU OG PENINGA
Verzlun Hans Petersen h.f.
SlMI 13-2-13
Tvær tegundir fyrirliggjandi:
Yerifax Bantam kr. 6.297.00
Verifax Signet — 9.913.00
★ VERIFAX-tækið gefur afritað upp í 21,6X35,6 cm.
VERIFAX-tækið skilar afritunum þurrum á auga-
bragði, með sáralitlum kostnaði.
★ VERIFAX-tækið er búið til af KODAK, svo að ekki
þarf að efast um gæði þess.
★
f hinu nýja VERIFAX-tæki getið þér afritað bréf og
fleira í öllum venjulegum stærðum.
FÁLKINN
33