Fálkinn - 22.11.1961, Side 6
Viö hinar erfiðustu aðstæður
er enginn líkur LAND-ROVER
Hvar sem er um víða veröld, í hverskonar landslagi
og við allra erfiðustu aðstæður er óhætt að treysta
LAND-ROVER.
Ef þér þurfið á öruggum, aflmiklum og traustum bíl
að halda, sem hefur drif á öllum hjólum, þá ættuð þér
að líta á LAND-ROVER og kynnast kostum hans.
Áætlað verð á 7 manna LAND-ROVER
(220 cm. milli hjóla,) með benzín-
hreyfli, málmhúsi og hliðargluggum:
Kr. 115.550,00
Aftursæti — 1.990,00
Miðstöð og rúðublásara: — 1.890,00
LAND^
^ROVER
★
Áætlað verð á 7 manna LAND-ROVER
(220 cm. milli hjóla): með diselhreyfli,
málmhúsi og hliðargluggum:
Kr. 132.100,00
Aftursæti — 1.990,00
Miðstöð og rúðublásari: — 1.890.00
BEIMZÍIM
EÐA
DIE8EL
Allar nánari uppl. hjá einkaumboðsmönnum:
THE ROVER COMPANY LTD.
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Hverfisgata 103. — Sími: 11275.
6 FÁLKINN
Kjarnorka.
. .. Ógurlegir glæpamenn
eru þessir Rússar. Ætla þeir
að eyðileggja allt mannkyn
með þessum andskotans
kjarnasprengjum? Og svo eru
þessi litlu kríli hér, sem kalla
sig kommúnista, að sleikja sig
upp við Rússana. Mér finnst,
að banna ætti kommúnista-
flokkinn á íslandi án tafar,
því að satt að segja eru þeir
varla annað en ótíndir bófar
þessir Rússa-andskotar . . .
Y.
Krúsi er bara bezti karl.
. . . Loksins fengu þessir
kapítalistar á baukinn svo um
munaði, þetta er rétta leiðin
til þess að sýna heiminum, hve
Rússar eru máttugir. Mér
finnst, að kapítalistar ættu nú
að sjá sig um hönd og viður-
kenna sósíalismann sem sögu-
lega staðreynd. En eitt þykist
ég vita, að Krúsi sé bezti karl.
Það er áreiðanlegt, að hann
fer ekki út í kjarnorkustyrj-
öld, nema hann verði neydd-
ur til þess .. .
H.
FriSur.
. . . Eftir að Rússar sprengdu
þessa 50 megatonna sprengju,
hef ég sagt mig úr Friðarsam-
tökum kvenna, því að mér
finnst það gjörsamlega óverj-
andi að vera í friðarsamtök-
um, þegar svo stendur á.
B.
V erðlaunagetraun.
Til Fálkans. — Hvernig er
með þessar verðlaunagetraun?
Á mynd nr. 2 er alls ekki
hægt að finna fimm atriði, það
hafa t. d. margir komið til
mín og sagt, að það væri ó-
mögulegt að finna fimmta at-
riðið. Voru ekki nema fjögur
atriði, sem finna átti á þess-
ari mynd.
Halli.
Svar:
Nei, upphaflega voru þau
fimm, en vegna lélegrar prent-
unar ákváðum vi'ð að láta
nægja fjögur atriði á öðrum
hluta keppninnar. En gœtið
þess, að senda bara alla hlut-
ana saman í umslagi vendi-
lega merktu: Fálkinn, póst-