Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 31

Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 31
Ormur s hjarfa Frh. af bls. 13 einhverjar dyr hlutu að vera á honum. Á þihnu til hliðar við hann var smáop og renniloka fyrir. í gegnum þetta op mátti sjá tvö dökk augu, sem fylgdust af áhuga með því, sem gerðist í salnum, einkum fylgdust þau með íslendingn- um og virtust hafa samúð með honum, því að veran, sem augun átti, kipptist við, í hvert skipti sem hann fékk lag af hnífum hinna gulu. Um leið og ungi maðurinn komst inn í ganginn, hurfu augun úr gatinu á veggnum. Nú gátu aðeins tveir sótt að honum í einu og var þröngt, — hann gat því hörfað skipu- lega, en hreyfingar hans voru orðnar silalegar og höggin voru ekki hættuleg. Honum sýndist það, sem hann var að berjast við helzt vera tvær ófreskjur, umluktar rauðri þoku. Honum tókst einhvern veginn að reka oddinn á mel- spírunni í magann á annarri ófreskj- unni, svo að hún hneig niður, en hin sótti á sem ákafast. Allt í einu datt hann um eitthvað, vopnið hrökk úr höndum hans, hann lá á bakinu. O- freskjan henti sér ofan á hann og tók báðum höndum um kverkar hans. Jæja, hugsaði hann, þá var víst öllu lokið. Það korraði í honum, hinn her- skái, guli fjandi ætlaði ekki að láta sitt eftir liggja. Hann fann heitan andar drátt Kínverjans við vit sér, hann heyrði eins og í draumi, að sá guli tautaði með sigurhrósi í röddinni: „ísland mikill bardagamaður.“ Það var eins og Ásgeir hefði verið klipinn með logandi töng, hann þekkti mál- róminn, þetta var bölvaður Kínverjinn, sem hafði ginnt hann hingað. Hann fylltist heiftarbræði, það var eins og einhver undarleg og ótrúleg orka blossaði upp í honum, eins og einhver varaforði hefði allt í einu losnað úr læðingi. Hann dró sig saman í kút og spyrnti fótunum í magann á Kínverj- anum svo kröftuglega, að hann hent- ist marga metra í burtu. Þeir spruttu báðir jafnsnemma á fætur, en nú var aðstaðan önnur. Þeir ruku saman eins og grimmir hundar, lungu þeirra erf- iðuðu eins og smiðjubelgir. Fötin lágu í druslum utan um íslendinginn, svo að illt var að ná taki á honum. En Kín- verjinn var seigur og liðugur og sleip- ur eins og áll. Að lokum tókst Ásgeiri að berja frá sér með báðum höndum, höggið kom á andlit mótstöðumanns- ins, og hann hrökklaðist undan. Höggið var svo mikið að Ásgeir var nær dott- inn sjálfur. hann lét fallast upp að þil- inu og gekk upp og niður af mæði. Hon- um fannst sem hann ætlaði að missa meðvitund. Hann sá og heyrði óljóst, að menn komu hlaupandi eftir ganginum, en um leið lét þilið undan þunga hans, og hann steyptist í gegn, en veggurinn að baki hans fór hljóðlaust í samt lag NÆLON PR3ÓNASILKI fyrirmyndin að söguhetjunni. Þá mundi ein af fegurstu tálmyndum lífs hennar verða að engu: Tálmyndin um að hún, hin fullkomna unga heimsdama hefði unnið ástir gáfaðs rithöfundar, sem heimurinn hefði dekrað við. Hann biðlaði — og fékk jáyrði. Hún var upp með sér að sigrinum —■ fyrst og fremst af því að hún elskaði hann, en einnig af því, að henni hafði heppnazt að fela fyrir honum hvað hún var saklaus sveitastúlka og lítil heims- dama Hjónabandið varð hamingjusamt, af því að ósannindin, sem leyndust að baki því, voru eins saklaus og þau voru yndisleg. Oft spilar hann „Rose du Province“ fyrir hana — og bros hans er engu síður ásthrifið en glettnislegt. aftur. Kínverjarnir, sem komið höfðu hlaupandi, stukku yfir félaga sinn, sem hafði hnigið niður, og æddu áfram og ætluðu að grípa þrjótinn, en þeir gripu í tómt, það var eins og hann hefði orð- ið uppnuminn. Svo skuggsýnt var í ganginum, að þeir höfðu ekki orðið varir við, er veggurinn opnaðist Þeir störðu fyrst hver á annan, síðan stungu þeir hnífum sínum hér og þar í vegg- ina, en það glamraði í. Það voru stál- plötur, Það var ekkert um að villast. Hvergi var hurð sjáanleg eða nokkurt op. Þeim fór nú ekki að verða um sel. Hjátrúarhræðslan blossaði upp í þeim, og þeir sneru sem skjótast til baka og drógu hinn fallega félaga sinn á eftir sér. Frammi í salnum var orðið ljótt um- horfs. Innan um flöskubrot og alls konar drasl lágu failnir Kínverjar á víð og dreif um gólfið. „Litli“ stóð einn af þeim þremenningum eins og klettur úr haf- inu. Kraftar hans virtust óþrjótandi, hann veifaði þungum borðfæti yfir höfði sér, og menn hrukku frá honum eins og flugur. Hann ruddi sér braut til dyra og komst út og um borð og sagði skipstjóranum allt af létta. Hann bölvaði þeim í sand og ösku, því að skipið átti að fara út um kvöldið. Hann fór samt í land og fékk lögregluna í lið með ,sér Er þeir komu að knæpunni, fundu þeir stóra Jan og hásetann liggjandi í blóði sínu fyrir utan Þeir rannsökuðu knæpuna að innan hátt og lágt, en fundu Ásgeir hvergi. Var knæpueigandinn tekinn fastur, en ekkert hafðist upp úr honum um þessa atburði, og sór hann og sárt við lagði, að hann vissi ekkert um íslendinginn. Stóra Jan og hásetanum var komið fyrir á sjúkrahúsi og fengnir aðrir hásetar og „Catendreckt“ lét úr höfn um mið- nætti. Islenzkur ræðismaður var látinn vita um afdrif Ásgeirs og að litlar líkur væru til þess að hann væri á lífi. Sveitarósin Frh. af bls. 11

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.