Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 27

Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 27
Annar boxaranna er Rocco. Hann er blíðlyndur og rómantískur að eðlisfari og ástfanginn af stúlku, sem einnig annar bróðir hans — hinn boxarinn — er sjúklega ástfanginn af. Rocco er skilningsríkur og vel gerður og ævin- lega reiðubúinn til að fórna og fyrir- gefa. Nadia heitir stúlkan, er hálfgerð götudrós, svo að ekki sé meira sagt. Dag nokkurn kemur bróðirinn að þeim Nadáu og Rocco. Hann verður sam- stundis frávita af reiði og nauðgar Nadiu fyrir framan augunum á Rocco. En Rocco er sem fyrr fús til að fórna og fyrirgefa bróður sínum, Simone, og reynir að bjarga honum, en árangurs- laust. Þeir bíða báðir skipbrot. Þeir bera ekki skynbragð á það líf, sem hrærist í kringum þá. Illgirni eins virð- ist vera jafn hættuleg og góðvild ann- ars. Hið miskunnarlausa líf hefur ekk- ert rúm aflögu fyrir þá. Fjölmargir góðir leikarar leika í þessari mynd. Hinn 27 ára gamh franski leikari, Alain Delon, leikur Rocco og landi hans, Annie Girardot, leikur Nadiu. ítalski leikarinn Renato Salavatori leikur Simone, en hlutverk ekkjunnar er í höndum grísku skap- gerðarleikkonunnar Katina Paxinou, sem meðal annars er kunn úr kvik- myndinni eftir sögu Hemingways „Klukkan kallar“. Efst til hægri: Hinir tveir bræður og keppinautar. Efst til vinstri er Claudia Cardinale í nýjasta hlutverki sínu. Þar fyrir neðan: Annie Girardot ásamt einum bræðranna. Og loks: Alain Delon í hlutverki Rocco. TVÆR IMÝJAR KVIK- MYIMDIR SKLGGAR varð til á þann hátt, að 31 árs gamall leikari og leikstjóri, John Cassavetes, boðaði til sín nokkra vini sína og sagði við þá: — Ef hver ykkar getur látið eitt- hvert ofurlítið fé af henti rakna, þá skal ég búa til kvikmynd sem mun vekja athygli bæði í Evrópu og Ame- ríku! Vinirnir létu undan og hið nýja Til vinstri: Lelia Goldoni, — nýtt og áhrifamikið andlit á hvíta lér- eftinu. Til hægri: Eins og skuggar í hliðargötu leita unglingarnir að tilgangi tilverunn- ar. Og loks: Sam- skipti hvítra og svartra er höfuð- viðfangsefni myndarinnar. „kvikmyndafélag“ hóf starfsemi sína. Á einu ári gerðu þessir félagar í tóm- stundum sínum kvikmyndina „Skugg- ar“, sém seinna hlaut verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Næstum peningalausir og án fyrir- fram skrifaðs handrits gerðu þessir ungu bjartsýnismenn kvikmynd sem ekki er aðeins frábær ástarsaga, held- ur lýsir á eftirminnlegan hátt kyn- þáttavandamáli Bandaríkjanna. Aðalefni myndarinnar er ástarsaga hvíts manns og negrastúlku. Hún er svo ljós á hörund, að í fljótu bragði virðist hún vera hvít, en bræður henn- ar tveir eru kolsvartir. Þegar hún í ástarvímunni býður unnusta sinum heim, fer allt í bál og brand. Og hvað svo? Leikstjórinn lét leikendur sjálfa ráða fram úr vandamálinu með seinni hluta myndarinnar og eins og skuggamyndir leita þeir að tilgangi lífsins í hinum skuggalegu hliðargötum New York- borgar. í aðalhlutverkum eru Anthony Ray og Lelia Goldoni — 22 ára gamall leik- nemi, sem var boðið þetta erfiða hlut- verk, án þess að hafa nokkru sinni leikið svo mikið sem smá hlutverk í kvikmynd áður. Eru þess fá dæmi, að leikkonur hafi hlotið svo skjótan frama.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.