Fálkinn - 22.11.1961, Blaðsíða 32
INNRÁS I
PARADÍS
í Andorra hefur tíminn staðið kyrr
í þúsund ár. Þetta litla ríki er hátt uppi
í Pýreneafjöllum, á landamærum Frakk-
lands og Spánar. Þangað liggja aðeins
tveir vegir. Annar þeirra; vegurinn frá
Frakklandi, um Envaliraskarð, sem er
2500 metra yfir sjó, er aðeins fser fimm
mánuði á árinu. Frakkar og Spánverj-
ar komust fyrir löngu að þeirri niður-
stöðu, að það borgaði sig bezt að láta
Andorra vera sjálfstætt. En Frakklands-
forseti og spánski biskupinn af Urgel
eru samkvæmt lögum æðstu stjórnend-
ur landsins, og hafa báðir umboðsmenn
í Andorra.
Öldum saman hafa Andorrabúar ver-
ið bláfátækir, en nú er velmegun í
þessu litla landi. Stafar hún sumpart
frá borgarastyrjöldinni á Spáni og síðari
heimsstyrjöldinni, því að þá fengu An-
dorrabúar að lifa í friði og fengu gott
verð fyrir framleiðslu sína og smygl-
vörur. Og síðustu fimmtán árin hafa
Andorrabúar grætt of fjár á skemmti-
ferðafólki. Landsbúar eru 6.500, af kata-
loniskum ættum, og búa í mörg hundr-
uð ára gömlum steinbæjum með hellu-
þaki og svölum úr tré. En nú eru farin
að rísa þar stór gistihús og verzlanir,
eftir fyrirmyndum frá París. í stærsta
bænum, Escaldes, var rutt bílastæði fyr-
ir nokkrum árum, en það er þegar orðið
of lítið. Því að á síðasta sumri komu
400.000 — fjögur hundruð þúsund —
skemmtiferðamenn til Adorra. íbúarnir
taka fegins hendi við peningunum, sem
þeir skilja eftir, en hitt er þeim öld-
ungs óskiljanlegt, hvað allt þetta fólk
sé eiginlega að vilja til Andorra!
En þarna er mikil náttúrufegurð, sem
heimamennirnir ekki sjá vegna þess að
þeir hafa hana alltaf fyrir augunum.
Og þarna er allt lygilega ódýrt, því að
Andorrabúar tolla ekki vörurnar. Þarna
er allt miklu ódýrara en það er í land-
inu, sem framleiðir það. Frönsk ilmvötn,
svissnesk úr, þýzkar ljósmyndavélar og
enskir bílar. Úrvals skór fást fyrir 75
krónur og dýrasta kampavín fyrir 20
krónur .... En — svo vandast málið
við frönsku eða spönsku landamærin,
þegar tollmennirnir fara að gramsa í
farangri þeirra, sem eru að fara frá
Andorra.
Það er fleira eftirtektarvert við An-
dorra en þetta lága vöruverð. Þar eru
til dæmis aðeins sex lögregluþjónar og
einn fangavörður. Og honum hundleið-
ist, því síðan 1953 hefur enginn maður
verið settur í tukthúsið. Fjórir læknar
og fjórir málaflutningsmenn eru í An-
dorra. En yfirréttur er þar enginn, og
öll mál, sem skotið er til æðri réttar,
eru flutt fyrir frönskum eða spönskum
dómstólum, eftir því hvort ákærði vill
heldur.
Ferðafólkið tekur líka eftir hvað ekki
fæst í Andorra, ekki síður en eftir hinu,
sem fæst þar. í Andorra eru engin sér-
stök frímerki eða peningar, en franskir
og spánskir eru notaðir þar jöfnum
höndum. Ekkert blað kemur út í An-
dorra, og engin prentsmiðja er til þar.
Þar er ekkert listasafn eða fornmenjar,
engar rómverskar rústir, enginn tennis-
völlur og golf-völlur, og enginn flugvöll-
ur. Það er hvergi hægt að koma hon-
um fyrir milli fjallanna! — Og fólkið
borgar enga skatta!
Eini iðnaðurinn í Andorra er tóbaks-
og vindlagerð. Og vindlarnir frá An-
dorra eru gerðarlegir. Þeir eru sumir
40 sm langir og vega allt að 800 gr
stykkið.
Arðbærasta atvinnan í Andorra er
smyglið. Þeir smygla tóbaki til Spánar
og nautgripum til Frakklands. Þó skrít-
ið sé, er hægara að smygla kúnum en
tóbakinu. Þær eru reknar um fjalla-
skörð, sem enginn vörður er í. Auk
þess hafa franskir nágrannabændur rétt
til sumarbeitar fyrir kýr í Andorra, og
það gerir smyglunina auðveldari.
Andorrabúar taka fegins hendi við
því, sem ferðafólk skilur eftir af pen-
ingum. En þeim finnst fremur ómerki-
legt starf að snúast í kringum útlend-
inga. Smyglið er veglegri atvinna. Það
gefur lífinu einhvern tilgang — mark
og mið!
Signethringurinn
Framh. af bls. 23
leikur fyrir ungan iþróttamann, sem
hefur kaðal í rúmfætinum og lætur
hann lafa út um gluggann.
Norman-Dyke hrökk við.
— Og, hélt lögreglumaðurinn áfram,
sannanirnar, sem með djöfullegum
klókindum var komið fyrir í herbergi
saklauss manns. eru ekkert á móti
þessu .... lítið þér á.
Hann brá stækkunargleri á farið á
marblettinum á hálsi hins látna.
Norman-Dyke leit á.
Farið varð stærra, það lyftist móti
honum .... skjöldur með þremur
stöfum og hring utan um.
— E. N. D. hvíslaði hann.
— Já, upphafsstafirnir yðar, svar-
aði Wardle. Signetshringurinn, sem
þér eruð með á fingrinum. Ég gerði boð
eftir yður til þess að sjá hann. Lítið
nú á hve glöggt stafirnir koma fram
í hringnum: Everand Norman-Dyke.
Þér hafið innsiglað framtíð yðar með
hringnum yðar. Varið yður, Everand.
Norman-Dyke rak upp öskur og rauk
til dyra. En þar stóð þreklegur lögreglu-
þjónn og varnaði honum útgöngu.
NÆLONKÁPUR
POPLINKÁPUR
TWEEDKÁPUR
— M. LOÐKRAGA
PEYSUR
GOLFTREYJUR
BLÚSSUR
BRJÓSTAHÖLD
STÍF SKJÖRT
SKINNHANZKAR
frá kr. 886,00
------- 880,00
— — 1570,00
------ 1590,00
------ 265,00
------341,00
------195,00
— — 70,00
— — 262,00
264,00
„ASKJA“ POPLINKÁPA M. LOÐFÓÐRI OG LAUSRI
HETTU Kr. 1150,00
„MANON“ POPLINHETTUKÁPA M. LOÐFÓÐRI — 1475,00
„MANET“ POPLINHETTUKÁPA M. LOÐFÓÐRI — 1475,00
„MAMSELLE“ POPLINKÁPA M. VATTFÓÐRI
OG LAUSRI HETTU
— 1518,00
ENNFREMUR VATTFÓÐRAÐIR POPLINJAKKAR,
LOÐFÓÐRAÐAR LEÐURLÍKIKÁPUR o. fl.
IIIVDIV «/*
Ingólfsstræti 8.
Sími 13669. Póstsendum.
LOÐHÚFUR, 14 litir
TERYLENEPILS
SMÁBARNAHÚFUR (í gjafakössum)
frá kr. 199,00
------ 580,00
— 130,00
32
FÁLKINN