Fálkinn - 22.11.1961, Qupperneq 24
'omtn
Börnin bíða óþreyjufull eft-
ir jólunum, gerið þeim biðina
skemmtilega. Gefið þeim
jóladagatal, sem hengt er upp
1. dag desembermánaðar ár
hvert. Hengið svo litla gjöf, t.
d. bara brjóstsykursmola við
hverja dagsetningu. Það
kemur ábyggilega til að vekja
eftirvæntingu og gleði á
morgnana að opna pakka. Ef
hafizt er handa strax, ætti að
vera nægur tími fram að mán
aðamótum til að sauma eitt
slíkt dagatal.
Efni: 21X115 c. hvítt eða
grátt jansefni (mál. 11 þræð-
ir, 1 cm), 15X95 cm. vliese-
lín, 17X97 cm. rautt fóður,
24 plasthringir, 2 stk. 24 cm.
langa bambursprik. — Grænt,
Hlífið eldhúshnífunum,
látið þá ekki liggja hvern
innan um annan í eldhús-
skúffunum.
Hnífa á að geyma þann-
ig, að þeir liggja hver út
af fyrir sig í þar til gerð-
um raufum. Einnig er gott
að hengja þá upp á vegg,
er og auðvelt að grípa
þar til þeirra.
Vilji maður hlífa hníf-
unum, notum við þá bara
til þess sem þeir eru ætl-
aðir. Notum við t. d. kjöt-
hnífinn til að skera brauð
sljóvast hann fljótt.
Þegar skæri verða bit-
laus er bezt að brýna þau
á þennan hátt: Kaupið
fínan sandpapplr, klipp-
ið 5—6 sinnum í sand-
pappírinn og skærin geta
bitið á ný.
Gataðar korkplötur eru
til margs nytsamar í eld-
húsinu. Hægt er t. d. að
festa þeim innan á skáp-
hurðir, innan á skápana
sjálfa upp á vegg eða
hafa þær sem botn í
grænmetisskúffuna
í plöturnar getum við
svo fest krókum, þar sem
smáhlutir geta átt sama-
stað, sem að öllu öðru
jöfnu fljóta í skúffunum.
rautt, hvítt, gult og dökkblátt
auróragarn.
Saumið með 3 þráðum yfir
2 þræði í efninu. Byrjið að
ofanverðu, dragið út 2 þræði
nál. 11 cm. frá brún og saum-
ið venjulegan húllsaum yfir 2
þræði á röngunni. Farið eins
að á neðri endanum, en bíðið
með það, þar til búið er að
sauma röðina af hjörtunum.
Neðri húllsaumurinn er nál. 6
þræðir frá síðastá hjartanu.
10 þráðum frá efri húll-
saum er byrjað á stjörnu
jólatrésins. Nál. 2% cm. eða
30 þráðum frá jólatrésfætin-
um er byrjað á hjörtunum
(48 talsins), sem saumuð eru
eftir miðju dagatalsins. Nál.
7 V2 cm. frá miðju dagatalsins
beggja vegna er saumuð
lykkjusporrönd yfir 2 þræði
með dökkbláu alla leið upp úr
og niður úr yfir húllsaumana.
Faldið dagatalið á hliðunum,
saumið í bláu röndina á röng-
unni.
Teljið nú út miðjuna milli
bláu randarinnar og ytri
brúnar hjartans, þræðið alla
leið. Saumið svo grenigrein
út frá miðsporinu á hverju
fylltu hjarta til skiftis vinstra
og hægra megin, byrjið
vinstra megin. Þ. e. a. s. greni-
Frh. bls. 38
FALKINN