Fálkinn - 22.11.1961, Side 33
Kuldaúlpur á börn og fullorðna.
Drengjajakkar úr rafsoðnu plasti, þola frost
og regn.
Telpnabuxur úr ullarefm. Stærðir 4—14.
Stakar drengjabuxur, allar stærðir.
Drengrablússur, Drengjahúfur.
Drengjaskyrtur í mörgum litum.
STAKKUR
Laugavegi 99,
gengið inn frá Snorrabraut.
Sími: 24975.
I\leð Borgfirðingum Frh. af bis. 21
hann búinn að vera þar lengi
og var kennari og skólastjóri
í 46 ár fyrst á Akranesi, þar
sem hann byrjaði 1912 og síð-
ar í Borgarnesi þar sem hann
var skólastjóri í 38 ár.
Þrátt fyrir stöðuga aðsókn
að langborðinu með kaffi-
brauðinu sást þar ekki lát á
kökum, brauði og öðru góð-
gæti.
í eldhúsinu var líka mikið
um að vera, en eldhúsið í
Sjómannaskólanum er rúm-
gott og það amaðist enginn
við okkur þótt við litum inn.
Sú sem stjórnaði hernaðarað-
gerðum í eldhúsinu var frú
Lára Jóhannsdóttir frá
Sveinatungu, systir Eyjólfs
heitins. forstjóra Mjólkurfél-
ags Reykjavíkur. Lára hefir
staðið fyrir veitingum öll þau
skipti, sem Borgfirðingum yf-
ir sextugt hefir verið boðið til
slíks fagnaðar og hún hefir
einvalaliði á að skipa, eða
svo sagði hún sjálf. Lára
sagðist eiga dásamlegar
bernskuminningar úr heima-
byggð sinni ,enda þótt hún
hefði farið þaðan ung.
Tvær frammistöðustúlkur
komu í þessu með tertur á
fötum, þær Sigríður Þórðar-
dóttir og Ragnheiður Magn-
úsdóttir sem ekki er Borg-
firðingur, heldur Skaftfell-
ingur, ættuð frá Prestsbakka
á Síðu, systir séra Björns.
Hún var fjögur ár á Borg og á
þeim tíma kynntist hún eig-
inmanninum Hermanni Há-
konarsyni frá Hafþórsstöðum
í Norðurárdal.
Það voru fleiri en við sem
lögðum leið okkar í eldhúsið
því að í þessu kom Magnús
Þórðarson frá Högnastöðum í
Þverárhlíð, núverandi skrif-
stofumaður hjá Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna. Hann leit
terturnar girnarauga og hið
sama gerði Þórai'inn Magnús-
son, sem eins og fyrr greinir,
er framámaður í þessum fé-
lagsskap og hefir sennilega
viljað vita hvað olli manna-
ferð hinni miklu í eldhúsið.
Fólkið var almennt staðið.
•
upp frá borðum er við kom-:
um aftur fram í salinn og'
hafði blandast. Jóhannes'
Benjamínsson, sá er kvæðin
kvað fyrr á samkomunni, tók
upp dragspil. Hann er har-
mónikkuleikari ágætur og
brátt hljómuðu „polkar og
rælar og valsar“. Á leið til
dyra sáum við Jón ívafsson
forsjóra ásamt eiginkonu og
þar var líka Davíð Björnsson
frá Þverfelli. Guðmundur 111-
ugason stóð í dyrum og tók í
nefið. Guðmundur var ánægð-
ur og mátti vera það því þetta
var góð skemmtun þar sem
fólk ástundaði þær fornu
dyggðir; ættrækni og átt-
hagatryggð.
BG
2 nýjar L. P. 12“ hljómplötur, CPMA. 5 — CPMA 6, með
orgel-Ieik Dr. Páls ísólfssonar nú komnar á markaðinn.
Á plötum þessum túlkar Dr. Páll orgel-tónverk eftir
viðurkennda evrópska meistara, svo og nokkuð af eigin
tónsmíðum.
Þessar plötur eru vissulega fengur fyrir alla þá, er
unna orgel-tónlist.
Fást einnig í öðrum hljóðfæraverzlunum bæjarins.
FÁLKIIMIM H.F.
(hljómplötudeild)
FÁLKINN
33