Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Page 15

Fálkinn - 11.04.1962, Page 15
tæki t. d. Bergmann Boch og A. E. G. í sambandi viS þessi viðskipti fór Eiríkur til Þýzkalands, kynnti sér nýj- ungar og gerði út um viðskipti. Bræð- urnir Ormsson fluttu inn mikið af alls konar vélum og tækjum unz stríðið sleit öll viðskiptasambönd við Þýzka- land árið 1939. Frá öðrum löndum gekk þá einnig illa að fá vélar og verkfæri. Þegar svo var komið, tók Eiríkur upp þráðinn þar sem frá var horfið og fór að smíða raístöðvar á verkstæði sínu við Vesturgötu, þar voru smíðaðir raf- alar, rafmagnshreyflar og vatnstúrbín- ur, en allt þetta hafði hann flutt inn fyrir stríð. Alla þessa framleiðslu teiknaði Eirík- ur og reiknaði út, og smíðaði sumt sjálf- ur, eins og t. d. túrbínuhjólin. Einu sinni kom til hans smiður ofan af Akra- nesi, sem vantaði nauðsynlega jafn- straumshreyfil í fræsara. Þetta þurfti að vera mjög hraðgeng vél og eftir að hafa hugsað málið nokkuð var smíðin hafin og henni lokið á skömmum tíma. En þótt hinir tæknilegu hlutir séu Eiríki hugstæðir, hefur hann ekki gleymt uppruna sínum. Bóndinn hefur alla tíð blundað í honum; minningin um ilminn úr skaftfellskri jörð hefur verið honum hugstæð. Fyrir allmörg- um árum keypti Eiríkur Skeggjastaði í Mosfellssveit, reisti myndarlegt hús, fullkomna rafstöð og bætti jörðina að öðru leyti. Hann dvelur oft á Skeggjastöðum og þar er fjölmennt á stundum: Börn tengdabörn og barnabörn og jafnvel barnabarna-börn. Eins og að er vikið hér að framan, hefur mikill fjöldi rafvirkja lært hjá Eiriki Ormssyni. A verkstæði hans við Vesturgötuna hefur jafnan verið betri vinnuaðstaða en víðast hvar ann- ars staðar og það ásamt áhuga meistar- ans fyrir því að nemendur lærðu sem mest og yrðu sem beztir fagmenn og færir í flestan sjó er námstíma lyki, hefur aukið gildi mannsins. Jafnhliða mikilli vinnu við rafvélar á verkstæði hafa störfin verið við raflagnir og vélar í skipum, lagnir í hús og síðast en ekki sízt við röntgentæki sjúkrahúsanna hér á landi. Á ferðum sínum í Þýzkalandi kynnti Eiríkur sér meðferð og viðgerðir þess- ara tækja, sem nú þykja ómissandi á hverju sjúkrahúsi. Hann og starfsmenn hans, settu síðan upp og héldu við Frh. á bls. 34 FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.