Fálkinn - 11.04.1962, Side 21
I
wmmM
■
: ■" :■ ■:
mm
.
. i-:
■' .•
■. ■"
'•:V •'■"•' • ■ v
ÉÉSt
. '"■':,
• ■ '£
SIIIIIm
'
■
■ ■•:■': I
• • -
«5
•:Ss::í®SWk;:™
Steikt önd.
bita, látin í eldfast mót. Salti
og pipar stráð yfir. Allt ann-
að soðið saman augnablik.
Hellt yfir öndma, steikt í ofni
nál. 1 klst. Borið fram með
soðnum kartöflum og öðru
grænmeti.
Óvenjuleg lambasteik.
2 kg. læri.
3 dl. rauðvín.
1 dl. edik.
1V2 dl. salatolía.
V2 msk. salt.
V2 msk sykur.
1 laukur, rifinn.
1 lárberjalauf.
1 msk. rosmarin.
Örlítið hvitlauksfit.
V2 tsk. hvít piparkorn.
1 gulrót, rifin.
Steinselja.
Kjötið þerrað og núið það
með hvítlauk. Blandið öllu
öðru saman, hellið leginum
yfir kjötið, sem liggur í skál.
látið bíða í nál. 3 klst, snúið
kjötinu við og við. Hitið ofn-
inn vel 275°. Látið síga vel af
kjötinu. Setjið það á grind
yfir ofnskúffunni. Þegar það
er orðið brúnað er hitinn
minnkaður. Ausið yfir við og
við með leginum. Steikt í IV2
klst..
Borið fram með soðnum
gulrótum, brúnkáli og frönsk-
um kartöflum.
Nautasteik, steikt í potti.
3A kg. nautahryggjarvöðvi.
1 dl. tómatkraftur.
1% dl. sjcðandi vatn.
1 msk. smjör.
Salt, pipar.
Kjötið þerrað, allar sinar
skornar burt. Smjörið brún-
að í potti, kjötið brúnað þar í.
Kryddað. Tómatkrafti og vatni
hellt yfir. Kjötið soðið við
vægan hita í nál. 40 mínútur.
Soðið jafnað með örlitlu kart-
öflumjöli og rjóma.
Borið fram með soðnum
kartöflum, hráu salati (gul-
rótum, eplum, pickles), sósu
og sykurlauk: Sjóðið litla
lauka í 10 mínútur í vatni.
síðan brúnaðir eins og kartöfl-
ur.
Franskar svínslundir.
2 svíslundir (mörbrad).
1 búnt steinselja.
1 appelsína, laukduft.
Salt, pipar paprika.
4 bananar.
Franskar kartöflur.
Lundirnar hreinsaðar. Sker-
ið 2 skurði í þær að endilöngu,
berjið þær flatar með lófan-
um. Núið þær með kryddinu.
Skerið hvora í 3 ræmur, sem
hanga saman annars vegar.
Fléttið ræmurnar saman, fest-
ið með bandi. Brúnaðar fal-
lega móbrúnar á djúpri
pönnu. Stingið steinselju og
appelsínubitum af V2 appel-
sínu inn í kjötið, þegar því
hefir verið snúið við. Hellið
appelsínusafa úr V2 appelsínu
yfir. Steikt við hægan eld
undir hlemmi í 8—10 mínút-
ur. Skerið kjötið niður, raðið
því á fat ásamt frönskum
kartöflum og klofnum, steikt-
um banönum.
Soðið síað jafnt með 1 tsk.
af köldu smjöri. Borið með í
sósukönnu.
„Steikt“ blómkál.
Girnilegur réttur, fljóttil-
búinn, lítur út eins og
steiktur í ofni.
1—2 blómkálshöfuð.
Salt.
1 búnt steinselja.
3 egg.
40 g smjör.
1 tsk. karry.
1 msk. hveiti, full.
2 y2 dl. mjólk.
3 msk. brauðmylsna.
2—3 msk. smjörlíki.
Kálið hreinsað og hríslað
niður, soðið í vægu saltvatni,
þar til það er rétt meyrt.
Soðið geymt. Eggin harðsoðin,
söxuð gróft. Venjuleg sósa
búin til. Smjörið brætt, karr-
ýið hrært saman við ásamt
hveitinu, þynnt út með mjólk-
inni og kálsoði ef vill. Sós-
an á að vera nokkuð þykk,
krydduð. Smjörlíkið brúnað á
pönnu, brauðmylsnan brúnuð
þar í. Steinseljan söxuð.
Blómkálið sett í fat, stráið
eggjunum þar ofan á. Sósunni
hellt yfir, steinseljunni stráð
ofan á og sjóðandi heitri
brauðmylsnunni. Borið fram
strax.
Lanibasteikin í leginum (að ofan) og ofninum (að neðan)
<■■■'■■■■' •