Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Qupperneq 34

Fálkinn - 11.04.1962, Qupperneq 34
GABRIELA Framhald af bls. 32. degisverðinn. Henni til mikillar gleði bauðst Minna til þess að hjálpa henni og gerði það óspart. Þetta var í fyrsta skipti sem Julian og Gabriela fengu gest — ef frá var dregin gestamóttakan á brúðkaupsdaginn — og þess vegna vildi hún, að allt væri fyrsta flokks og færi hið bezta fram. Hún var Minnu afar þakklát fyrir að rétta henni hjálp- arhönd. Reynsla hennar í þessum efnum var ómetanleg. Hvílík gæfa! Brátt mundu þau losna við Tiibingen og allt sem þeim ógæfu- bæ fylgdi. Þau mundu fá sitt eigið heimili, hún og Julian... og Jurgen. Ef þau fengju aðeins að vera út af fyrir sig eins og aðrar fjölskyldur, þá mundi Júrgen án efa hætta að líta á stjúp- föður sinn sem ókunnan mann, sem tók alltof mikið af tíma móður hans. Og Julian... hann var innst inni barn- góður maður ... Það mundi taka eitt ár, í allra mesta lagi eitt ár, þangað til þau gætu flutt, hafði Julian sagt. Við verðum fyrst að hefja framleiðslu lyfsins. Hvað hefur eitt ár að segja, hafði Gabriela svarað. Aðalatriðið er, að við fáum tækifæri til þess að vera hamingjusöm. Þú verð- ur þinn eiginn húsbóndi og það er óend- anlega mikilsvirði fyrir þig, hafði hún bætt við. Gabriela lagði síðustu hönd á mið- degisverðarborðið, lagfærði blómin og flutti til einstaka hluti, en fór síðan að klæða sig. Hún stóð fyrir framan stóra spegilinn í stofunni og grandskoðaði útlit sitt. Þá heyrði hún fótatak í stig- anum og rödd Julians: — Gerið þér svo vel og gangið í bæinn! Ánægð og spennt strauk hún í snatri annarri hendi yfir hár sitt, en sneri sér síðan við brosandi. Hár og herðabreiður maður í dökkbláum fötum stóð í dyr- unum. Brosið á vörum Gabrielu stirnaði og hönd hennar fálmaði eftir stólbaki. Eins og í draumi heyrði hún rödd Julians: — Gabriela! Má ég kynna ... (Framhald í næsta biaði). Ilundrað |»<ijsund . . . Frh. af bls. 25 mynda páskaeggið. Þegar búið er að slá þær úr mótunum, eru þær sendar í kössum niður í annan sal, þar sem hafizt er handa um að láta sælgæti inn í eggið ásamt málshætti einum á bréfmiða. í þessum sal vinnur fjöldi stúlkna við að skreyta páskaeggin, Einn hópurinn setur helmingana saman, annar skreytir eggin með alls konar útflúri og svo er þriðji hópurinn, sem setur á eggin hænuungana. Einn hópur sér svo um 34 FÁLKINN að pakka eggjunum inn, annaðhvort í skrautlegar pappaöskjur, sem er ný- ung hér, eða setja þær í sellófanpoka. Það er geysimikil vinna við páska- eggin og stór hópur manna og kvenna vinur ár hvert við þau um páskaleytið. Nói framleiðir nú páskaegg í 11 stærð- um, og mest af millistærðunum. Hálf- um mánuði fyrir páska koma svo egg- in á markaðinn. Á skrifstofunni eru kaupmenn sem óðast að gera pantanir. Fyrir utan páska- eggin selst annað sælgæti vel yfir pásk- ana. Sumir kaupa súkkulaði í staðinn fyrir páskaeggin til þess að hafa til há- tíðabrigða. Páskarnir eru að verða eins konar sælgætishátíð, gósentími sælker- anna. Og á því leikur enginn hafi, að vatn mundi koma í munninn á mörgum, ef hann liti úrvalið af páskaeggjunum, sem blasir við á hillunum í sælgætis- verksmiðjunni Nóa. LITLA SAGAN Frh. af bls. 28. sama andblæinn og leikið hafði um mann, þegar maður var upp á sitt bezta og enn ókvæntur. Það gat ekki verið neitt ljótt á bak við þetta. Aðeins að fá sér einn wiskysnaps oð ef til vill bjóða einhverri stúlkunni upp á einn .... Ring, ring. Síminn hringdi. Það var Marianna, sem hringdi frá Holsterbro. Hún vildi bara vita, hvort allt gengi sinn gang og hvort ég hefði munað eftir að vökva blómin, og hvort ég hefði nóg að borða. Hún mundi koma á þriðjudaginn. Þegar hún hafði kvatt mig, vökvaði ég blómin. Það eru 322 kílómetrar til Holster- bro. Ef ég hef nokkru sinni tækifæri, þá hafði ég það nú. Féll öðrum eiginmönn- um þungt, þegar konur þeirra voru í burtu? Maður þurfti samt ekki að gefa sér alveg lausan tauminn. Var maður kannski ekki bundinn í báða skó, venju- lega? Hafði maður ekki þörf fyrir svo- litla uppörfun? Og hvað er einn manns- aldur? Var ekki til gamalt orðtæki, sem sagði, að oft mætti satt kyrrt liggja? Einbeittur á svip setti ég vatnskönn- una frá mér og fór í hvíta skyrtu og nýju, fallegu, bláu fötin mín . Hálfri klukkustund seinna tók ég hattinn niður af henginu í forstofunni, kveikti mér í sígarettu, lagaði bindið í síðasta sinn, og ég sannfærðist um það, er ég leit rannsakandi í spegilinn, að ég gat vel litið út sem 32 ára. Eg var glæsilegur maður. En einn lítill, þaulhugsaður, djöful- legur hiutur, eyðilagði þetta allt. Hann kom mér til á örfáum sekúndum að leggja hattinn á hilluna í fatahenginu og ég leit nú tíu árum eldri út en áð- an. Og ég læddist aftur skömmustu- legur inn, fór úr fallegu bláu fötun- um, tróð mér í gamla, slitna og ljóta hversdagsjakkann, settist niður í hæg- indastól og tók að lesa reyfara eftir Cooper til þess að gleyma þessu öllu. Það sem einfaldlega gerðist var það, að þegar ég stóð fyrir framan spegil- inn og skoðaði mig með ánægjusvip, þá stakk ég hendinni í vasann og dró þar upp svolítinn bréfmiða. Ég kuðl- aði honum saman og ætlaði að fleygja honum. En þá hugsaði ég mig um og fletti honum í sundur. Með hendi Mari- önnu stóð þar skrifað: — En hvað þú ert fínn. Hvert ertu að fara? Willy Breinholst. ísl. framkvæmdamenn Framh. af bls. 15. röntgentækjum sjúkrahúsanna í Rvík. og nágrenni og einnig á sjúkrhúsum annars staðar á landinu. Eiríkur er nú kominn á þann aldur að margir eru farnir að unna sér nokk- urrar hvíldar, en slíkt er honum fjarri. Hann fer á hverjum morgni um sjö- leytið að heiman frá Laufásvegi 34 niður á skrifstofu og vinnur þar langan dag. Eftir að stríðinu í Evrópu lauk og sérstaklega eftir endur-iðnvæðingu Þýzkalands hafa viðskipti fyrirtækja hans við útlönd aukist hröðum skrefum og þótt maðurinn sé með afbrigðum starfsamur vill hinn venjulegi skrif- stofutími stundum verða helzt til stuttur. Eins og margir þeir er dvelja í Þýzka- landi, varð hann hrifinn af þýzku þjóð- inni. Hrifinn af hinni þýzku nákvæmni og dugnaði og tæknilegri getu. Það er líka annað sem sá finnur er þar dvelst og býr við sömu kjör og hinn venju- legi Þjóðverji: heiðarleiki, tryggð og vinfesta. Er heimsstyrjöldin síðari skall á og Bretar hernámu ísland lá það orð á að þeir hinir brezku dátar væru Eiríki engir aufúsugestir. Er Bandaríkjamenn tóku að sér vernd landsins fannst hon- um það litlu betra. Sagt er að einu sinni á stríðsárunum hafi bandarískur liðsforingi komið inn í afgreiðsluna á verkstæði Eiríks að Vesturgötu 3. Afgreiðslumaður var eitthvað slakur í enskunni og bar Eirík þar að. Bandaríkjamaðurinn sneri sér þá að honum og bar upp erindið, Eiríkur ætlaði að snúa hann af sér og spurði hvasst. ,,Sprechen Sie Deutsch“? Liðsforinginn tókst á loft. Jú, hann hélt nú það, fæddur og uppalinn í Þýzkalandi. Upp frá þessu spratt góður kunningsskapur sem hélzt meðan liðs- foringinn dvaldi hér á landi. Eiríkur Ormsson er manna spengi- legastur að vallarsýn, í hærra lagi og tá-grannur. Hann var á yngri árum talinn heljarmenni að burðum og skák- ar mörgum sér yngri mönnum enn í dag. Hann hefur alla tíð ástundað reglu- semi og vinnusemi svo til fyrirmyndar er og hann hefur á þessum næstum sjötíu og fimm árum ævi sinnar vart

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.