Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 15

Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 15
LÉTT SUMARSAGA EFTIR JOHA MEYER kvmni að vera á verði gegn veröldinni, en var þó jafnframt ósegjanlega kvenleg. En nú voru tveir dagar síðan hann sá hana standa uppi á stökkpallinum svo hrífandi fagra, og hann var ekki vitund nær því að fá færi á að kyssa hana, en kvöldið góða. Hann hafði leikið golf og spilað bridge við hana, hann hafði synt með henni og dansað við hana, en aldrei hafði honum gefist tækifæri til að þoka henni á afvikinn stað, sem hentugur væri til kossa. Það er að segja, ekki fyrr en á þeirri heillastundu, þegar Gloría sló golfkúluna yfir fyrir runnann við elleftu holu. „Við hljótum að geta fundið hana,“ sagði Jim ákveðinn. Þegar þau voru komin í hvarf við runnann, lagði hann handlegginn þétt um herðar Gloríu, og lýsti því yfir, að nú vildi hann fá þennan umrædda koss. „Þetta mátti ég vita,“ andvarpaði Gloría. „En ég ætla mér þó ekki að hljóða, ef yður er nokkur huggun í að vita það.“ Jim kyssti hana eftirminnilega og fann til undrunar og gleði yfir því, að Gloría kyssti hann á móti. Hjarta hans barðist um eins og bilaður stimpill. Loks tókst honum að stynja upp: „Viltu giftast mér, Gloría?“ Gloría veik sér örlífið frá honum. „Nú, en þú hefur ekki einu sinni hugmynd um það, sem þú ættir fyrst og fremst að vita um mig.“ „Ég veit, að mig langar til að giftast þér,“ sagði hann og kyssti hana aftur. „Viltu það, Gloría?“ „Nei, væni minn, ekki ennþá.“ „BRÓÐIR ÞINN vill giftast mér,“ sagði Gloría. Anna lét sem ekkert væri. „Ertu viss um, að það hafi ver- ið þú? Nefndi hann þig með nafni?“ „Nei, hættu nú,“ öskraði Jim. „Nei,“ svaraði Anna. „Hjúskapartilboð frá gömlum pip- arsveini ætti ævinlega að vera skriflegt.“ „Ég er ástfanginn og þrái að kvænast,“ æpti Jim rauð- glóandi. „Er það nokkuð óvenjulegt?“ „Óvenjulegt með þig, já,“ anzaði Anna miskunnarlaus. „Hann gæti nú orðið indæll eiginmaður.“ „Hættið þið nú að gera grín að mér, báðar tvær,“ sagði Jim í örvæntingu sinni. „Gloría,“ hélt Anna áfram. „Hvers vegna fer þú ekki með litla bróður minn svona saklausan, út á einhverja afskekkta sjávarströnd, og segir honum þar ævisögu þína?“ „Mér stendur á sama um fortíð hennar. Það er framtíð hennar, sem ég vil eignast." „Hypjið ykkur þá í burtu, börnin góð,“ mælti Anna, „og reynið að gera út um málið.“ Tuttugu mínútum síðar lagði Jim bifreið sinni bak við afskekktan sandhól með útsýn til hafsins. Ætlaði hann þeg- ar í stað að taka Gloríu í faðm sinn, en hún ýtti honum frá sér. „Elskar þú mig í raun og veru, Jim,“ mælti hún al- varlegum rómi. „Já.“ Gloría varp öndinni. „Þú mátt annars kyssa mig.“ Það gerði Jim fúslega, mörgum sinniun. Þau sátu þegjandi litla stund. Því næst sagði Gloría: „Það eru vissar manneskjur, sem mig langar til að séu við- staddar brúðkaupið." Framh. á bls. 32.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.