Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 19

Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 19
Sæluvika kom út um haustið 1951, þá var ég tuttugu og fimm ára. Hryggurinn í þeirri bók er tvær sögur, systur, Blá- stör og Vígsluhátíðin. Annars er bókin hraðaverk og hroðvirkni, sögurnar all- ar unnar upp úr eldra dóti, því sem ekki hafði fordjarfast í flutningum og flækingi. Mér hefur stundum dottið í hug að betra hefði verið að bíða, kannski ár eða tvö, — en þá er reyndar óvíst að sögurnar hefðu nokkurn tíma kom- ið út. Og þessar sögur varð ég að skrifa og birta, þær eru kveðja og reiknings- skil við ákveðin tímabil ævinnar. Til að mynda elzta sagan í bókinni, Dalur- inn, það er þannig saga að mér verður bumbult ef ég sé hana sem sjaldan kem- ur fyrir núorðið. En einhvern veginn bjargast maður frá þessu, frelsast næst- um ósjálfrátt — þegar búið er að skrifa söguna. Ég gekk frá bókinni til prentunar á þrem vikum norður í Tungusveit í Skagafirði. Ég hef ævinlega góðan vinnufrið í Skagafirðinum ef á liggur, þar lá ég upp á venzlafólki og vanda- lausum í heil tvö ár, var skráður lausa- maður á manntal, og það var mikið orð að sönnu. Þar tóku allir mér vel, fannst sjálfsagt að hjálpa stráknum úr því hann var að basla við að skrifa. Þessi umhugsunarvist mín í Skagafirði var mér dýrmætur tími, og ég er einlæg- lega þakklátur því góða fólki sem hjálp- aði mér þar. 79 AE STÖÐINNI? Æ, ég er hættur að geta talað um hana, hún er orðin svo ósköp leiðinleg. Það er dálítið annar handleggur að skrifa litla sögu en þurfa svo að standa í stöðugu spjalli og spurn- ingafjasi um hana! Hitt get ég sagt þér að ég skrifaði söguna á mjög stuttum tíma, eitthvað tveimur mánuðum, norð- ur á Akureyri, á hótel Goðafossi, sem nú er víst búið að leggja niður. Þar voru breima kettir í portinu, og á hótelinu bjó mikið af ungu og glöðu fólki, og það brakaði og brast og söng í þessu gamla og virðulega húsi ... Þetta var haustið 1954, rétt fyrir jól, og þegar sagan var tilbúin lá mikið á að koma henni í prentun, maður var svona í þá daga þó nú sé allur taugaæsingur í sam- bandi við handrit löngu úr sögunni. Nema það var blind hríð og ekki flogið í marga daga svo ég varð að fá leigu- bíl með mig suður, fór eins og ég stóð í rykfrakka og götuskóm. Við urðum víst fimm saman í bílnum, og þetta varð einhver versta ferð sem ég farið, við urðum næstum að bera bílinn á sjálfum okkur yfir mestalla Holtavörðu- heiði, ýta og draga, og vorum marga klukkutíma að paufast þarna í hríð- inni. Og þegar við vorum loksins kom- in yfir heiðina var ég allur klakaður, allt samfrosta hattur, rykfrakki og götu- skór, og munaði víst minnstu að saga Blástararskáldsins yrði ekki lengri. — Annars er ekki margt að segja um 79 af stöðinni, hún er ekki annað en stutt saga, línan i henni er hörð og bein þar sem skáldsaga á að vera breið og stór og 19 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.