Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Side 36

Fálkinn - 15.08.1962, Side 36
LITLA SAGAN Framhald af bls. 24. getið notið fegurdarleyndardóms Pascale Petit „Fersk og hrein húð er undirstaða fegurðarinnar“ segir Pescale Petit. hvít, bleik, blá, græn og gul & Kvikmyndastjörnur á borð við Pascale Petit nota LUX til þess að halda húðinni hreinni og ferskri. Öðlizt jafn fallega húð og kvikmynda- stjörnurnar! Pascale Petit segir: „Varðveitið húð- ina á sama hátt og ég geri. Notið LUX HAND- SÁPU reglulega.“ :iíi miMw':'. 9 af hverjum 10 kvikmyndastjörnum nota Lux handsápu X-LTS 925/lC-8041-5O kostlegt, gjörsamlega ótrúlegt. Seðla- búntin hrúguðust upp. Nú átti hann næstum tvær milljónir franka. Ef hann héldi svona áfram mundi hann sprengja bankann. Umsjónarmaður borðsins blikkaði bankastjórann. Þetta var orðið geysi spennandi. — Mesdames et messieurs. Spilið, spilið og leggið ykkar til málanna, hljómaði tilbreytingalaus rödd banka- stjórans, og allir við borðið fylgdust spenntir með hverri hreyfingu Herberts. Hann yrði varkárari eftir þetta. Hann ætlaði að fara hægar í sakirnar. Bara að hann gæti tvöfaldað upphæðina, þá mundi hann vera ánægður. Hann tók skjótt ákvörðun og ýtti allri upphæð- inni á pair. Klukkan sló og rúllettan fór af stað. Hvað mundi hvíta kúlan færa honum í þetta skipti. Hann þorði ekki að fylgja rúllettunni eftir, lokaði augunum og beið úrslitanna. Pair. Fjórar milljónir franka. Herbert var of ruglaður til þess að vita, hvað hann ætti til bragðs að taka. — Mesdames et messieurs. Leggið í púkkið. Hættið einhverju. Herbert lét fjórar milljónirnar vera í pair. Síðan lokaði hann augunum og beið. Hann opnaði þau fyrst aftur, þeg- ar hann heyrði undrunaróp þeirra, sem stóðu í kringum borðið. í annað skipti hafði talan komið upp. Nú átti hann átta milljónir franka. Það var svimandi há upphæð. Gjörsamlega ótrúlegt. Hann varð að hætta núna. Bíllinn beið, Alice beið eftir honum. Aðeins einu sinni enn, og svo varð hann að fara. Mundi hann verða jafn heppinn aftur? Hann lét peningana vera á sömu tölu. Það fór hrollur um alla sem stóðu við borðið. Hann varð óöruggur og á síð- asta augnabliki flutti hann alla upp- hæðina yfir á impair. Rúllettan snérist, kúlan dansaði inn í henni, og stanzaði. Þá heyrðist hin tilbreytingalausa rödd bankastjórans: — 22, pair. Gjaldkerinn ýtti höllum seðlunum yfir í kassann. Það voru aðeins átta milljónir franka. Herbert stóð kyrr í nokkrar sekúndur, síðan hneppti hann að sér jakkanum, lagaði bindið og fór fljótt út úr spilavítinu. Menn biðu hans í bílnum, óþolin- móðir. — Jæja, sagði Alice, þegar hann sett- ist í sætið við hliðina á henni, — hvern- ig gekk? Þú tapaðir auðvitað, var það ekki? — Jú, sagði Herbert og kinkaði kolli, það voru fimm frankar. 36 FÁLKINN Willy Breinholst.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.