Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 17

Fálkinn - 15.08.1962, Blaðsíða 17
Leiðin sem Marco Polo fór til hinna framandi, ótrúlegu heima. an veðurdag lögðu þeir aftur af stað og héldu austur á bóginn til hirðar Kublais. Og nú tóku þeir Marco með sér, þótt ekki væri hann eldri en fimm- tán ára. Voru það mikil viðbrigði hin- um unga manni, en þetta varð fyrsta spor hans á lífsleið, er síðar varð full af frægð og ævintýrum. Leið þeirra lá austur til Armeníu og Persíu, yfir hina mikiu persnesku eyði- mörk, yfir Kórassanfjöll til dalanna í Hindu-kush og Pamírhásléttunnar, með- fram Takla Makan eyðimörkinni og Góbí eyðimörk. Síðan yfir Norður-Kína til höfuðborgar Kublai Khans, Kanbalig, eða réttara sagt Kambúlak. Og þar bjó Marco Polo ásamt föður sínum og frænda í samfleytt seytán ár, þangað til minningarnar um borgarsíki Feneyja urðu þeim of rammar. Urðu þeir meiri virðingar aðnjótandi en æðstu menn landsins innfæddir. Mátti ekki sízt segja það um Marco, er ferðaðist í opinberum erindagjörðum um hið risa- vaxna kínverska ríki þvert og endilangt. Komst hann alla leið til landmæra Tí- bets, Jun Nan, Burma og jafnvel til Ind- lands. Það var sannkallaður sorgardagur í Kína, er Feneyjabúarnir þrír héldu af stað, hlaðnir gjöfum. Og á kveðjustund sýndi keisarinn bezt, hve óskorað traust hann bar til þessara útlendinga, er hann fól þeim að fylgja prinsessu, sem átti að giftast Persakonungi, til sinna nýju heimkynna. Þegar fyrsti gondólinn á síkjum Fen- eyja kom í augsýn, voru þeir Matteo og Nicolo orðnir gamlir menn. Og Marco var kominn yfir fertugt..... Þeir voru ekki sérlega fjölorðir um það sem á daga þeirra hafði drifið. Og það sem þeir höfðu frá að segja, var skoðað sem uppspuni einn. Þangað til kvöldið sem Marco breytt- ist skyndilega úr svínahirði í glæsilegan prins..... FRÁ hverju hafði hann þá að segja, þessi kaupmannssonar frá Feneyjum, er varð nánasti samstarfsmaður Kínakeis- ara? Um það má lesa, allt saman, í bók einni, er hann reit í fangelsi í Genúa Menn vita furðu lítið um ævi Marcos eftir að hann kom aftur heim. Hann kvæntist ungfrú Dónötu nokk- urri og lézt nálægt árinu 1324. Hann byggði sér hús við San Grisostomo — og að því er næst verður komizt, var hann jarðsettur í San Lorenzo kirkjunni. Allt eru þetta lausar línur, sem ekki verða dregnar saman í heildarmynd. En eitt vita menn með vissu: Hann var tekinn til fanga af verzlunarmönn- um frá erfðaóvinum Genúu og dreginn í dýflissu. Og árið 1298 las hann í fanga- klefanum samfanga sínum frá Písa fyrir áðurnefnda bók. Árangur þess upplesturs varð „Libro delle Maraviglie“, undrabókin, barma- full af daglegum athugunum kaup- mannsins, hugmyndaflugi ævin- týramannsins, frásagnakyngi söguhetj- unnar. í henni birtist svo einstæð mynd af framandi veröld, að ekki virðist ótrú- legt þótt andagarður Norðurálfunnar hafi gargað háðslega og gefið honum langt nef. í Kamúlag voru milli 8 og 10 mill- jónir íbúa! Óskiljanlegur fjöldi enn í dag, þegar aðeins Tokíó, Lundúnir og New York telja svo mikinn mann- fjölda. Þetta eitt stuðlaði mjög að því, að Marco Polo var ekki trúað. En hann hafði rétt fyrir sér. Mann- töl voru óþekkt fyrirbrigði þar og þá, en hann hafði hugmynd um, hve mörg hús og hreysi voru í borginni. Og svo var Marco fæddur kaupmaður, og hafði sinn sérstaka mælikvarða á hlutina. Hann vissi hversu miklu með,alfjölskylda eyddi af pappír á dag til jafnaðar. Meðalfjölskyldu áleit hann fjórar persónur, komst að því, að tíu þúsund pund af pappír voru flutt til Kambúlak á degi hverjum, — og reiknaði' þannig út íbúatölu er nam milli 7.2 og 10 milljónum! Það hefur verið ótrúleg risaborg. í miðju hennar voru tíu aðaltorg, hvert þeirra þriggja kílómetra breitt. Aðal- göturnar voru allt að 60 metra breið- Framh. á bls. 34 Höll í Feneyjum,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.