Fálkinn - 15.08.1962, Qupperneq 27
Strákahúfa á 2—3 ára.
Hlífir vel eyrunum og situr kyrr á
sínum stað.
Efni: Nál. 50 g ljósblátt, 4 þætt ull-
argarn (Bechine Fingering), af-
gangur af hliðstæðu hvítu
garni. Prjónar nr. 2%. Lítill
hnappur. 20 1. sléttprjón = 5%
cm.
Hægri hliðarstykki: Fitjið upp 9 lykkj-
ur með bláu garni og prjónið brugðn-
ingu (1 sl., 1 br.) í nál. 10 cm (höku-
bandið), endið á prjón, þar sem fyrsta
og síðasta lykkjan er brugðin. Á næsta
prjón (réttan) er byrjað að auka út
beggja vegna við miðlykkjuna þannig:
prjónið brugðningu að miðlykkjunni,
takið þar upp band og prjónið það slétt
þannig að tekið sé aftan í bandið (nefnt
neðan af bandlykkju), 1 sl., bandlykkja,
prjónið brugðningu út prjóninn. —
Næsti prjónn er prjónaður sem brugðn-
ing án útaukningar; athugið að 3 mið-
lykkjurnar eru allar brugðnar. — Næsti
prjónn: prjónuð brugðning að mið-
lykkjunni, bandlykkja, 1 sl., band-
lykkja, brugðning út prjóninn. — Næsti
prjónn, sem er án útaukningar er prjón-
uð brugðning, sem passar. Endurtekið
þessa 4 prjóna, þar til 611. eru á (endið
á prjón frá röngunni). Nú er hætt að
auka út í miðjunni, ávali búinn til
hnakkamegin á þann hátt, að prjónað-
ar eru 2 1. saman í annarri hverri um-
ferð þeim megin 4 sinnum. Nú eru
felldar af 2 1. í byrjun næstu 12 prjóna
og 3 1. í næstu 4 prjónum. 21 1„ sem
eftir eru, felldar af í einu.
Vinstra hliðarstykkið: Prjónað eins
og hægra hliðarstykkið, hökureiminni
sleppt. Ath. að þetta stykki á að vera
eins og spegilmynd af því fyrra.
Miðstykkið: Byrjið að framanverðu.
Fitjið upp 48 1. með bláu garni. Prjón-
ið 6 umf. brugðningu ( 1 sl. 1 br.),
takið jafnt úr í síðustu umf., svo 40 1.
séu á. Prjónið sléttprjón eftir mynstr-
inu: beint áfram þar til komnir eru
nál. 10 cm. Þá er 1 1. tekin úr hvoru
megin í 10. hverri umf. þrisvar sinnum,
síðan í 8. hverri umf. fjórum sinnum.
Prjónið beint áfram með þessum 20 1.,
sem eftir eru, þar til komnir eru nál.
27 cm, þá er 1 umf. prjónuð slétt með
bláu garni á réttunni og tekið jafnframt
úr svo 24 1. séu á. Prjónið því næst 5
umf. brugðningu með bláu garni. Fellt
af.
Frágangur: Pressið miðstykkið á
röngunni. Saumið hliðarstykkin við
miðjuna, þannig að fremri brún mið-
stykkisins nemi við fyrstu úrtökuna
að framanverðu á hliðarstykkjunum.
Látið miðstykkið hafast dálítið við, at-
hugið að það gangi jafn langt aftur á
hnakkann á báðum hliðarstykkjunum.
Hnappagat heklað á hökureimina,
hnappur saumaður í vinstra hliðar-
stykkið að innanverðu.
hhawnLiréttuu*
Yi kg makkaroni eða spaghetti
% kg nautahakk
125 g bacon
1 stór laukur
ögn af heillauk
2 dl tómatkraftur
(250 g sveppir)
V-í msk ensk sósa
salt
rifinn, sterkur ostur.
Makkaronið brotið smátt, soðið í miklu léttsöltuðu vatni
í 15—20 mínútur. Hellt á sigti, köldu vatni rennt yfir það.
Baconsneiðarnar skornar í bita, steiktar í þykkbotnuðum
potti, gróftskornum lauknum og hvítlauk hrært saman við.
Brúnað. Kjötinu hrært út í, hrært í með gaffli, þar til kjöt-
ið hefur aðskilið sig. Tómatkrafti og örlitlu vatni hrært
saman við. Kryddað. Látið sjóða við hægan eld í 15 mínútur,
en þá er smáttskornum sveppunum blandað saman við. Lát-
ið sjóða þar til þeir eru meyrir.
Eldfast mót smurt. Helmingnum af makkaroninu látið í
botninn, kjötjafningurinn látinn þar ofan á og svo makk-
aroni. Mikið af rifnum osti stráð yfir. Sett inn í heitan ofn,
þar til osturinn er bráðnaður og orðinn fallega gulbrúnn.
Borið fram með hráu salati, sem búið er til úr hvítkáli,
óflysjuðum eplum, appelsínum og rúsínum. Notuð salatsósa
úr sítrónusafa, matarolíu, salti og dálitlu hunangi.
FÁLKINN 27