Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Síða 31

Fálkinn - 15.08.1962, Síða 31
Alli cr ókeypis Framhald af bls. 11. himna kom fram á enni hans. Hann þekkti engan með þessu nafni, og það, sem meira var: Enginn þekkti nafnið, sem hann hafði valið til að skrifa í gestabókina. Það var aðeins til ein skýring á þessu: lögreglan var komin á sporið. Hann hugsaði sig um eitt andartak og sneri sér síðan að Maureen: — Viltu bíða andartak eftir mér? Ég kem aftur eftir fimm til tíu mín- útur. — Auðvitað, John. Mike Darby fór á eftir drengnum að stóra glerveggnum, sem sneri út að anddyrinu. — Sýndu mér fyrst þennan Brown. Ég held þetta hljóti að vera einhver misskilningur. — Drengurinn kinkaði kolli í átt- ina til Peters, sem stóð þarna enn og naut þess að horfa í kringum sig í þess- um glæsilegu húsakynnum. Já, hugsaði Mike Darby. Hann varð þurr í hálsinum. Hér var ekki um að villast. Framkoma hans og klæðaburð- ur ber það með sér, að hann er dulbú- in leynilögreglumaður. Þeir kjósa allt- af svona ópersónulegar manngerðir í slíkt. — Takk, sagði hann við drenginn. — Þetta er þá í lagi. Hann sneri sér við og kveikti sér skjálfhentur í sígarettu. Það var ekki annað að gera en flýja undir eins. Hann fann hvernig kaldur sviti spratt fram um allan líkama hans. Nú hafði farið illa, og ekki fyrsta skipti: Hann hafði flúið borg úr borg eins og hund- eltur . . . og í þetta sinn var netið farið að þrengjast ískyggilega. Hann reyndi að ná stjórn á sjálfum sér, meðan hann flýtti sér að hliðar- dyrum, til að komast út. Hann þorði ekki einu sinni að gefa sér tíma til að fara upp á herbergið sitt og ná í hafur- task sitt. Honum fannst allir horfa á sig undrunaraugum, og hann grunaði, að þetta væri byrjunin á endalokunum. Taugar hans voru ekki lengur jafn- sterkar og í gamla daga. Gott að hann var með skammbyssuna á sér. Hann flýtti sér gegnum lystigarðinn að hópn- um, sem beið við áætlunarbílinn. Með honum kæmist hann til ítölsku landa- mæranna . .. Þegar liðinn var hálftími fann Maur- een ekki lengur til áhrifanna af kampa- víninu, hún var farin að hugsa skýrt, og skyndilega greip hana skelfing — hún hefði aldrei átt að segja já við þessu. Nú, þegar John hennar var far- inn, fannst henni hann vera sem hver annar ókunnugur maður. Hún leit illum augum á glasið, sem enn var hálffullt. Hún hugsaði enn um skáldsögurnar, sem hún hafði lesið um ástarævintýri við Rivieruna. í þessum sögum hafði staðið ýmislegt um samvizkulausa æv- intýramenn, sem helltu ungar stúlk- ur fullar. Hún hafði aðeins þekkt þenn- an John í einn lítinn sólarhring, og hún hafði þegar fallizt á að fara með honum upp á herbergið hans. Hana hryllti við, þegar hún sá fyrir sér áhyggjufull andlit foreldra sinna. í þokkabót hafði hún hlegið að þeim. í fyrsta sinn. Nei ... nei. Bezt að grípa tækifærið, á meðan hann var í burtu. Þá mátti hann halda það um hana, sem hann vildi. Hún lét ekki bjóða sér slíkt framar. Þegar hún kom inn í anddyrið, fór hún fram hjá litlum jmanni í ljósum frakka, sem var fullstuttur. Peter Brown elti hana með augun- um, þar til hún hvarf út um væng- dyrnar. Yndisleg stúlka, hugsaði hann. Síðan leit hann í síðasta sinn inn í veitingasalinn og gekk burt úr þessu glæsilega gistihúsi. Þetta var mikil lífsreynsla, eins og ég hafði búizt við, hugsaði hann og brosti ánægður með sjálfum sér, þegar hann gekk niður tröppurnar með mar- maraljónunum. Ókeypis. Og — eins og Bob hafði sagt: — Þetta er alveg óhætt. Kæri Astró, Mig langar ákaflega mikið að biðja þig að lesa eitthvað úr stjörnunum um framtíð mína. Ég er fædd (fæðingar- dag, ári og stað sleppt úr birt- ingunni) klukkan 4.15 að degi til. Til sjö ára aldurs átti ég heima í sveit, en flutti þá í smá þorp við sjávarsíðuna. 8. júlí 1961 kynnist ég pilti, sem á heima langt í burtu og höfum við haldið uppi sam- bandi bréflega okkar á milli. Þessi piltur er fæddur (fæð- ingardag og ári sleppt samkv. ósk úr bréfinu) en klukkan hvað veit ég ekki. Ég hef mjög mikinn áhuga á að vita hvað þú getur sagt mér í sam- bandi við ástamál mín og hvort þessi piltur á eftir að koma við framtíð mína. Vin- samlegast ekki birta ár og mánaðardaga og ekki vil ég heldur vita hver — hvenær endir ævi minnar verður. Iris. Svar til Iris, Það sem fyrst vekur at- hygli manns í stjörnukorti þínu er hve margar plánetur eru í níunda húsi eða níundu grein hringsins. Níunda hús stendur meðal annars fyrir útlönd, heimspeki, trúarbrögð og heildsölu. Af þessu verður ekki dregin önnur ályktun en sú að þú eigir eftir að eyða ævi þinni að mestu leyti erlendis og þar virðist mér gifting þín eiga eftir að eiga sér stað, þótt þetta hljóði ef til vill undarlega í eyrum. að minnsta kosti þá er gæfu þinnar að leita erlendis en ekki hér heimafyrir. í níunda húsi er Sólin, Venus, Merkúr, Júpíter, Mars, Plútó og höfuð Drekans. Sól í níunda húsi bendir til að í útlöndum munirðu hljóta mikla virðingu og viðurkenn- ingu fyrir vel unnin störf. Sérstaklega virðist þetta standa í sambandi við heimilislíf þitt, því urmull af heimilisvinum virðist umlykja þig þar. Ég er heldur ekki frá því að vinir þínir séu eitthvað í sambandi við trúar- brögð, dulfræði og heimspeki, en í þá átt mun hugur þinn sveigjast að nokkrum tíma liðnum. Merkúr í níunda húsi þykir benda til tíðra ferðalaga er- lendis, og svo virðist vera sem þú kjósir þér að mestu ferðir á vötnum eða sjó. Merkúr bendir til að þessi ferðalög geti bæði verið í sambandi við nám og við- skipti. Venus í níunda húsi bendir til að þú munir fá áhuga á að þroska og bæta félagslíf þess fólks, sem þú umgengst Bendir einnig til þess að skyldfólk þitt í gegnum maka þinn verði konur í meirihluta. Júpíter í níunda húsi bendir til þess að þú tileinkir þér háar hugsjónir og oft kemur þetta fram í kortum þeirra, sem gegna mikilvægum hlut- verkum í hópi trúbræðra sinna. Höfuð Drekans er sérstak- lega hagstætt fyrir fólk, sem mikið ferðast einnig í sam- bandi við trúmálin. Bendir einnig til mikils stuðnings ættingja makans. Nautsmerkið í geisla sjö- unda húss bendir til að þú verðir sérstaklega trygglynd þínum maka. Nautsmerkið hér er algengt í kortum þeirra hjóna, sem skilja ekki fyrr en dauðinn tekur í taumana. Hins vegar á giftingin sér fremur seint stað og er oft lengi að komast á það stig að verða að giftingu, en þegar til hennar hefur einu sinni verið stofnað þá stendur hún á traustu bjargi. Merki Fiskanna á geisla fjórða húss þykir benda til tíðra breytinga á bústað. Þess þó fremur sem Máninn var staddur þar á fæðingarstund þinni. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.