Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1962, Síða 37

Fálkinn - 15.08.1962, Síða 37
□TTD — BARDAGINN 'tlM ARNARKASTALA Meðan bardaginn stóð sem hæst, lagði Fáfnir af stað með flokk manna til gömlu vatnsmyllunnar, sem var í nokkurri fjarlægð frá og sást ekki frá kastalaveggjunum. Hópurinn 'stanzaði við mylluna. Fáfnir horfði í kringum sig, rannsakandi. „Átta skref .... fimm frá húsinu. Lyftið steininum.“ Dimmur gangur kom í ljós. Fáfnir glotti. „Þetta er leynigangur inn í Arnarkastala. Jafnvel Klængur lávarður veit ekki, að þessi gangur er til. Þá fyrst mun innrásin verða algjör, þegar við birtumst allt í einu innan kastalaveggjanna." A meðan þetta gerðist, hafði Ottó stanzað hópinn og sent út njósnara. Hann beit á vörina og gekk fram og aftur. „Ég skil vel, að þú sért óþolinmóður, Ottó lávarður,“ sagði Stefán. „En árás okkar byggist á þvi, að við komum á réttu augnabliki. Styrkleikur okkar er kominn undir leifturárás." Allt í einu kom depill í ijós út við sjóndeildarhringinn. Hann varð stærri og stærri og nú sást, að þetta var reiðmaður. Var það einn af njósnurunum? Ottó og menn hans reyndu að greina, hver maðurinn væri. „Hann riður eins og andskotinn sjálfur væri á eftir honum,“ muldraði Ottó. „Horfið bara á rykskýið, sem hann þyrlar upp.“ Stefán greindi manninn fyrst. „Það er Uggi, Ottó lávarður," hrópaði hann undrandi. „Hann veif- ar, nei, hann er að benda okkur að koma. Það þýðir aðeins eitt.“ „Það þýðir, að árásin á Arnarkastala er þegar hafin,“ ályktaði Ottó strax. „Skipaðu mönnunum að fara á bak, Stefán.“ Nokkrum sekúndum seinna hafði reiðmaðurinn náð flokknum. Hann staðfesti það, sem þeir höfðu þegar búizt við. Allur flokk- urinn reið nú sem mest hann mátti. Mundu þeir sigra eða mundu þeir tapa? Næstu klukkustundirnar mundu ráða örlög- um þeirra. En á meðan þetta geröist, héldu Fáfnir og menn hans eftir leynigöngunum. Fáfnir tók á sig mikla áhættu. Ef þeir yrðu uppgötvaðir, yrðu þeir allir strádrepnir, því að ekki komst nema einn í einu inn í kastalann gegnum opið. En Fáfnir lét skeika að sköpuðu. „Fylgdu mér,“ skipaði hann. „Og verið viðbúnir með sverðin." Á meðan þessu fór fram, hélt bardaginn við kastalann áfram og fór harðnandi. Heimavarnarlið skorti að vísu þ.jálfun og vopn á við Fáfnismenn, en þeir unnu það upp með eldmóði sínum og áhuga á að verja kastalann. Hvatningarköll þeirra Klængs lávarðar og Lamba gerðu mikið gagn. Hver árásar- maðurinn á fætur öðrum féll dauður til jarðar. „Árásin er ekki eins hörð núna,“ sagði Lambi. „Það er gott, svo lengi sem það stendur yfir.“ Hann hélt áfram: „En Ottó verður að fara að skerast í leikinn( okkar menn eru teknir að þreytast." „Ég sá ekki Fáfni meðal árásarmannanna," svaraði Klængur lá- varður. „Það er augljóst, að raggeitin kýs að vera i skjóli.“ EEn gamli lávarðurinn hafði rangt fyrir sér að þessu sinni, því að Fáfnir var ískyggilega nærri. 1 fXlkinn 37

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.