Fálkinn - 02.12.1963, Page 4
Endurbætt þjónusta í Húsgagnaverzlun Reykjavíkur
Nýlega hafa verið gerðar tniklar breytingar á Husgagna-
verzlun Reykjavíkur. Stálbitar klæddir tekki settir í loft
og tjöld hengd í þá svo mjög einfalt er að skipta verzlun-
lnni niður í misstór herbergi, þannig að viðskiptavinir
verzlunarinnar eiga hægara með að gera sér grein fyrir
húsgögnunum, sem til sölu eru, en þau eru bæði fram-
leidd hjá verzluninni sjálfri og nokkrum öðrum fyrir-
tækjum.
Það, sem þó vakti mesta athygli okkar, cr að verzlunin
mun einnig hafa á boðstólum íslenzk listaverk. í þetta sinn
voru mólverk og teikningar eftir Hafstein Austmann, Hring
Jóhannesson og Hauk Sturluson, höggmyndir eftir Jón
Benediktsson og veggteppi eftir Barböru Árnason. Keramik
er einnig £ miklu úrvali, bæði frá Glit h.f. og Edinbourgh
College of Art, eru það eingöngu módelsmíði.
Verzlunin hefur ráðið til sín Sigurð Karlsson „dekuratör“
til að aðstoða viðskiptavini fyrirtækisins við kaup og val
á húsgögnum og eins fyrirkomulag í íbúðum þess, ef ósk-
að er. -
Myndin til hægri er af járnmynd eftir Jón Benediklsson
og á bak við sjást rnyndir eftir Hring Jóhannesson.
4 í FÁLKINN